Fréttir
Bækur
Yrsa Sigurðardóttir
Um Veröld
Hafðu samband
Veröldin okkar
English

 
 


 


12. 07. 2010

Spói - barnasaga

Ólafur Jóhann Sigurðsson

Spói – barnasaga eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson er komin út í nýjum búningi. Hann sendi bókina upphaflega frá sér árið 1962, hún hefur verið gefin út á fjölmörgum tungumálum en verið ófáanleg um langt árabil.

 

Hér segir frá íslenskum spóa sem finnst fínna að kalla sjálfan sig Filippus að hætti erlendra stórhöfðingja og þykist öðrum spóum gáfaðri og menntaðri. Hann leggur upp í mikla reisu til að finna sér konuefni við hæfi og hefst þá kostuleg atburðarás!

 

Bókina prýða myndir af íslenskum fuglum eftir Jón Baldur Hlíðberg og henni fylgir geisladiskur þar sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona les söguna.

 

Á bókarkápu er vitnað í umsögn Andrésar Kristjánssonar í Tímanum frá árinu 1962 þar sem segir: „Þessi stutta en frábæra barnasaga er slíkur feginsfengur, að manni hlýnar um hjartarætur ... ljómandi gimsteinn.“

 

Ólafur Jóhann Sigurðsson (1918-1988) er meðal virtustu rithöfunda þjóðarinnar á 20. öld. Hann er þekktastur fyrir skáldverk sín fyrir fullorðna, bæði breiðar epískar skáldsögur og ljóð, en skrifaði einnig fáeinar sögur fyrir yngri lesendur. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976, fyrstur Íslendinga fyrir ljóðabækur sínar Að laufferjum og Að brunnum. 

 

Jón Baldur Hlíðberg hefur málað myndir í fjölda bóka og má þar nefna stórvirkin Íslenskir fuglar, Íslensk spendýr og Íslenskir fiskar. Bækur sem hann hefur myndskreytt hafa hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga. Þá hefur Jón hlotið Verðlaun Hagþenkis fyrir vinnu sína. 

 

 

Spóa fylgir geisladiskur með sögunni í lestri Ólafíu Hrannar Jónsdóttur leikkonu. Ólafía Hrönn hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar  fyrir frammistöðu sína á leiksviði, sjónvarpi og í bíómyndum, m.a. bæði Grímuna og Edduna. 

 

 

Spói er 44 síður að lengd. Anna Cynthia Leplar hannaði kápu og útlit bókarinnar og braut hana um. Hún er prentuð í Odda. Gísli Helgason hjá Hljóðbók.is annaðist upptöku á lestri sögunnar.



meira

 

11. 05. 2010

Hrunadans og horfið fé - Skýrslan á 160 síðum

Styrmir Gunnarsson

Hrunadans og horfið fé er greinargóð úttekt Styrmis Gunnarssonar á grundvallaratriðum Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann fjallar á gagnrýninn hátt um bankana og einkavæðingu þeirra, hvernig þeir stjórnuðu verði hlutabréfa í sjálfum sér – og hver í öðrum – og verðbréfasjóði á villigötum. Hann ritar um útrásarvíkinga, Fjármálaeftirlitið, Seðlabankann, ríkisstjórn landsins, fjölmiðla og hjarðhegðun smáþjóðar, svo fátt eitt sé nefnt.

 

Í þessari stórfróðlegu bók er að finna heildstæða úttekt á skýrslunni sem markaði þáttaskil í þjóðfélagsumræðunni auk þess sem horft er fram á veginn. Hér kemur Styrmir Gunnarsson lesandanum hvað eftir annað á óvart með því að setja hlutina í nýtt og óvænt samhengi – og hlífir engum.

 

Hrunadans og horfið fé er 160 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda.



meira

 

24. 02. 2010

Horfðu á mig - kilja

Yrsa Sigurðardóttir

Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur var ein mest selda bók ársins 2009 en er nú gefin út í kilju.

 

 

Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem vistaður er á réttargeðdeildinni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með skelfilegum afleiðingum. Ungum útvarpsmanni berast torkennileg skilaboð og ógnvekjandi símtöl. Og látin stúlka sækir í að standa við fyrirheit um að passa lítinn dreng. Saman fléttast þessir þræðir í glæpasögu sem fær hárin til að rísa.

 

 

Gagnrýnendur heimspressunnar hafa á liðnum árum hlaðið Yrsu Sigurðardóttur lofi og skipað henni í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda. Horfðu á mig hlaut mjög góðar viðtökur hjá íslenskum gagnrýnendum.

 

 

Kiljuútgáfan af Horfðu á mig er 478 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda.

 

 



meira

 

26. 11. 2009

Horfðu á mig

Yrsa Sigurðardóttir

Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem vistaður er á réttargeðdeildinni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með skelfilegum afleiðingum. Ungum útvarpsmanni berast torkennileg skilaboð og ógnvekjandi símtöl. Og látin stúlka sækir í að standa við fyrirheit um að passa lítinn dreng. Saman fléttast þessir þræðir í glæpasögu sem fær hárin til að rísa.

 

Gagnrýnendur heimspressunnar hafa á liðnum árum hlaðið Yrsu Sigurðardóttur lofi og skipað henni í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda.

 

Þóra Guðmundsdóttir er uppáhalds kvenspæjarinn minn. Ég bíð spennt eftir næstu bók.“ Guardian

 

Það er ekki oft sem maður rekst á glæpasögu sem er hvorttveggja í senn hrollvekjandi og fyndin og það er sannarlega ánægjuleg blanda.“ Spectator

 

Horfðu á mig er 388 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda. 

 



meira

 

20. 11. 2009

Umsátrið - Fall Íslands og endurreisn

Styrmir Gunnarsson

Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn er einstök bók þar sem Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, varpar nýju ljósi á fall Íslands og aðdraganda þess. Styrmir rekur atburðarásina sem leiddi til gjaldþrots bankanna þar sem fjölmargt nýtt og óvænt kemur í ljós. Hér segir frá dramatískum neyðarfundum sem haldnir voru fjarri kastljósi fjölmiðla, sögulegum símtölum, sviptingum á bak við tjöldin í heimi stjórnmála og banka og ómótstæðilegum tilboðum um koss dauðans“. Þá fjallar hann um það hvernig eigi að reisa Ísland aftur við og byggja það upp til framtíðar.

 

Styrmir Gunnarsson hefur um áratuga skeið haft beinan aðgang að ráðamönnum í stjórnmálum og atvinnulífi. Hann styðst einnig við fjölmörg óbirt gögn sem hvergi hefur verið vitnað til áður. Þá eru í bókinni stórmerkilegar upplýsingar úr innsta hring um tildrög þess að Ísland hrundi.

 

Umsátrið er ómissandi fyrir alla þá sem vilja komast að því hvað gerðist á bak við tjöldin á einum mestu örlagatímum Íslandssögunnar.

 

Umsátrið er 309 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu. Bókin er prentuð í Odda.



meira

 

Síða 1 af 14: | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14