Guđni - Af lífi og sál
eftir Sigmund Erni Rúnarsson

Guđni Ágústsson hefur lifađ dramatísku lífi. Hann ólst upp í frumstćđu bćndasamfélagi en varđ ráđherra á 21. öldinni, hann var feiminn piltur í Hérađsskólanum á Laugarvatni en varđ einn vinsćlasti stjórnmálamađur ţjóđarinnar; hann lenti í hringiđu mikils valdabrölts ţar sem átti ađ koma honum út úr pólitík en stóđ eftir sterkari en áđur.

 

Í bókinni Guđni - Af lífi og sál rćđir hann umbúđalaust um viđkvćm pólitísk deilumál liđinna ára, bćđi innan Framsóknarflokksins og á vettvangi ríkisstjórnar Davíđs Oddssonar. Í henni er einnig fjallađ um einkalíf Guđna, međal annars sagđar skemmtilegar sögur frá uppreisn ćskunnar á sjöunda áratugnum, greint frá kostulegum uppákomum í starfi hans sem ţingmanns og ráđherra og dregnar upp lifandi myndir af uppvexti hans í sextán systkina hópi á Brúnastöđum um og upp úr miđri síđustu öld.

 

Sigmundur Ernir Rúnarsson byggir bókina á samtölum sínum viđ Guđna og samferđamenn hans, birtum og áđur óbirtum heimildum, međal annars minnisblöđum Guđna, sem ekki hefur veriđ vitnađ til áđur.

 

Hér leggur Guđni Ágústsson spilin á borđiđ og segir söguna eins og hún horfir viđ honum.

 

Sigmundur Ernir Rúnarsson á ađ baki glćstan feril sem rithöfundur og ljóđskáld. Ţá er hann einn reyndasti fréttamađur landsins. Hann hefur sent frá sér margar ljóđabćkur og má ţar nefna Innbćr útland (2002), Sögur af aldri og efa (2000) og Sjaldgćft fólk (1998). Ţá skrifađi Sigmundur Ernir bókina Barn ađ eilífu (2004) ţar sem hann fjallar um dóttur sína og baráttu hennar viđ óţekktan sjúkdóm og vakti hún ţjóđarathygli.

 

Atli Már Hafsteinsson tók kápumynd af Guđna Ágústssyni en Ragnar Helgi Ólafsson hannađi kápuna. Eyjólfur Jónsson braut um en bókin er prentuđ í Odda.

 




Bjartur er systurforlag Veraldar