Fimbulfamb


Hið sögufræga borðspil Fimbulfamb er loksins fáanlegt aftur. Spilið kom upphaflega út árið1993 og seldist strax upp. Eftir það hefur það verið ófáanlegt og hafaverið uppi miklar áskoranir til útgefenda um að endurútgefa spilið. Spilið er nú endurútgefið með algjörlega nýjum orðaforða og í nýjumbúningi. Spilið byggist sem fyrr á útsjónarsemi og ímyndunarafli þátttakendasem eiga að búa til sannfærandi skýringar á sjaldgæfum íslenskum orðum sem þeirhafa ekki hugmynd um hvað þýða. Sá sigrar sem tekst best að blekkja mótspilarasinn.

 

Að baki nýrri útgáfu á spilinu liggur mikil vinnafjölmargra aðila síðastliðin tvö ár. Við söfnun orðanna, sem eru hátt í 2.000,var þess gætt að spilið yrði skemmtilegt en einnig að með spilinu yki fólkorðaforða sinn og skilning á íslenskri tungu. Var víða leitað fanga ogfjölmargir aðilar hafa aðstoðað við orðasöfnun. Meðal annars var leitað orðahjá Íslenskri málstöð, Orðabók Háskólans og að auki í Íslenskri orðabók,Orðabók Blöndals og Orðsifjabók, íðorðasöfnum svo dæmi séu nefnd. Þá voruskáldsögur og fræðirit notadrjúg en í spilinu eru bæði gömul og ný orð allt fráþví að vera ættuð úr íslenskum fornritum til nútímaslanguryrða í íslenskritungu en öll eru þau sjaldgæf.

 

Spilið hentar öllum aldurshópum.

 

Það er uppselt hjá útgefanda en fæst enn í helstu verslunum. Einnig er hægt að tryggja sér eintak úr síðustu sendingu fyrir jól sem væntanleg er í vikunni með því að kaupa það hér.




Bjartur er systurforlag Veraldar