Í samtalsbókinni Auður Eir – Sólin kemur alltaf upp á ný ræðir Edda Andrésdóttir, fjölmiðlamaður og fréttalesari á Stöð 2, við fyrsta íslenska kvenprestinn um líf hennar og lífssýn. Auður Eir Vilhjálmsdóttir hefur verið með storminn í fangið um árabil og líf hennar einkennst af einurð, baráttuvilja og þrautseigju.
Auður hlaut prestsvígslu fyrst kvenna á Íslandi árið 1974 en margir starfsbræður hennar lögðust eindregið gegn vígslunni. Þar sem hún bauð sig fram í prestkosningum var framboð hennar sjaldnast tekið alvarlega.
Hún lýsir meðal annars í bókinni þeirri örvæntingu, vonleysi og reiði sem þessu fylgdi og hvernig hún brást við. Þetta er því uppgjör brautryðjanda en um leið veitir Auður Eir lesendum margvíslega leiðsögn um hvernig á að lifa lífinu.

