|
Dagurinn byrjađi eins og allir ađrir dagar í lífi hinnar ţrettán ára gömlu Áróru. Hún var alein inni í glerhvolfinu, í litlum heimi ţar sem ekkert skorti – nema félagsskap. En svo kemur hún auga á dökkan kollinn á Rökkva og allt breytist. Hún flýr úr ţessari lokuđu veröld út í harđan veruleikann ţar sem nýr heimur bíđur hennar og kynngimögnuđ atburđarás fer af stađ.
Hún leggur á flótta undan harđskeyttum yfirvöldum, kynnist fólki sem hefur neyđst til ađ leita í felur en ákveđur svo ađ freista inngöngu í Borgina ţar sem fólk lifir í miklum vellystingum. En ţá kemur ýmislegt óvćnt í ljós …
Gegnum glervegginn er ćsispennandi saga eftir Ragnheiđi Gestsdóttur, einn fremsta barna- og unglingabókahöfund ţjóđarinnar. Hún hefur hlotiđ margvíslegar viđurkenningar fyrir verk sín, međal annars Norrćnu barnabókaverđlaunin.
Gegnum glervegginn er 270 blađsíđur ađ lengd. Ragnheiđur Gestsdóttir teiknađi myndir og Anna Cynthia Leplar braut um og hannađi bókarkápu. Bókin er prentuđ í Odda.

