Ómunatíđ - kilja
Styrmir Gunnarsson


„Ég kom heim til mín síđla dags ţetta vor. Vissi ađ ţađ var eitthvađ ađ. Ţađ var búiđ ađ draga gluggatjöld fyrir alla glugga. Konan mín ćddi um íbúđina. Ţađ mátti hvergi sjást ljósskíma. Hún var ađ verjast einhverju. Svo bráđi af henni. Hún lagđist upp í rúm og sagđi:

 

„Varstu hrćddur?“

 

„Já, ég er hrćddur,“ sagđi ég.

 

„Ţetta er allt í lagi. Ţetta er búiđ,“ sagđi hún.

 

Hún var nýorđin 25 ára. Ég ţrítugur. Viđ áttum tvćr dćtur. Tveggja og hálfs árs og fimm mánađa gamlar.

 

Ţessa dagsstund breyttist líf okkar međ óafturkallanlegum hćtti.“

 

Ţannig hefst saga Styrmis Gunnarssonar um sjúkdómsbaráttu eiginkonu hans og ţau áhrif, sem veikindin hafa haft á líf fjölskyldu ţeirra í meira en fjóra áratugi. Í ţeirri glímu hafa skipst á skin og skúrir, dimmir dagar og glađar stundir en geđveikin hefur ćvinlega veriđ nálćg. Styrmir fjallar einnig um ólíkar ađferđir í geđlćkningum og afleiđingar veikindanna fyrir ţá sem nćst standa, ekki síst börn geđsjúks foreldris.

 

Bókin fékk sérlega jákvćđa dóma og kallađi fram sterk viđbrögđ frá lesendum sem m.a. varđ til ţess ađ höfundurinn hefur bćtt nýjum upplýsingum inn í textann.

 

„Stór bók međ brýnt erindi.“ *****  Ţór Jónsson, Pressan.is

 

 

„Stórmerkileg … tvímćlalaust einhver mikilvćgasta bók ársins.“ Hrafn Jökulsson, Viđskiptablađinu

 

„Djúpur sársauki … Hugvitsamlega smíđuđ og fróđleg bók, skrifuđ af sjaldséđri einlćgni.“ **** Ţórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, Fréttablađinu

 

Ómunatíđ – Saga um geđveiki er 216 blađsíđur ađ lengd. Jón Ásgeir hannađi bókarkápu og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíđna. Bókin er prentuđ í Odda.




Bjartur er systurforlag Veraldar