|
Þýðandi: Ellen Gunnarsdóttir Bókin Þú ert þinnar gæfu smiður! kom út á Spáni á síðasta ári en síðan hafa verið gerðir samningar um sölu útgáfuréttar á bókinni í yfir 70 löndum. Hún kemur út í flestum þeirra á þessu ári og hefur þegar selst í meira en tveimur milljónum eintaka. Höfundar hennar, Alex Rovira og Fernando Trias de Bes, eru prófessorar við viðskiptaháskóla á Spáni, ásamt því að vera markaðsráðgjafar, en urðu óvænt metsöluhöfundar. Þú ert þinnar gæfu smiður veltir upp spurningunni um það hvort sumir séu heppnari en aðrir. Höfundarnir halda því fram að tilviljanakennd heppni vari stutt en gæfuna geti maður skapað sjálfur og hún vari að eilífu. En hvernig fáum við gæfuna í lið með okkur? Svarið er að finna í bókinni.
Til baka
|