YRSA SIGURĐARDÓTTIR
Yrsa Sigurđardóttir (1963) er í hópi fremstu glćpasagnahöfunda Norđurlanda, ađ mati breska stórblađsins The Times. Yrsa vakti mikla athygli ţegar hún sendi frá sér sína fyrstu glćpasögu, Ţriđja tákniđ haustiđ 2005. Áđur en sagan kom út á íslensku hafđi útgáfurétturinn veriđ seldur víđar en dćmi voru áđur um ţegar um íslenskt verk er ađ rćđa. Ţá hafđi veriđ gengiđ frá samningum um útgáfu á bókinni á ellefu tungumálum í yfir ţrjátíu löndum. Ţriđja tákniđ kemur um ţessar mundir út á yfir 30 tungumálum í yfir 100 löndum í öllum byggđum heimsálfum veraldar.
Engin íslensk skáldsaga eftir núlifandi höfund er vćntanleg á jafn mörgum tungumálum og Ţriđja tákniđ. Um Yrsu er fjallađ í erlendum stórblöđum og tímaritum á borđ viđ New York Times, Times Literary Supplement, Daily Telegraph, Wall Street Journal, Stern og víđar.
Önnur glćpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, kom út hjá Veröld í nóvember 2006 en útgáfurétturinn á henni hafđi ţá ţegar veriđ seldur um allan heim, m.a. til Bandaríkjanna, Bretlands, Ţýskalands, Ítalíu og til allra spćnskumćlandi landa heims. Sér grefur gröf er tilnefnd til Shamus-verđlaunanna í Bandaríkjunum sem veitt verđa í október 2010. Síđan hefur Yrsa sent frá sér glćpasögurnar Ösku (2007), Auđnina (2008), Horfđu á mig (2009), Ég man ţig (2010), Brakiđ (2011) og Kulda (2012) sem allar eru vćntanlegar á ýmsum tungumálum.
Yrsa Sigurđardóttir hóf feril sinn sem barnabókahöfundur áriđ 1998 međ bók sinni Ţar lágu Danir í ţví. Hún hlaut Íslensku barnabókaverđlaunin áriđ 2003 fyrir Biobörn. Áriđ 2000 fékk hún viđurkenningu Barnabókaráđs Íslands, Íslandsdeildar IBBY, fyrir bókina Viđ viljum jólin í júlí.
Međfram skriftum starfar Yrsa sem verkfrćđingur í Reykjavík.

