Þriðja táknið fær fjórar stjörnur í Sunday Express
Yrsa og Arnaldur leiða innrásina í Bretland
Sunday Express gefur Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur fjórar stjörnur af fimm mögulegum og segir gagnrýnandi blaðsins að þetta sé mjög góð spennusaga. Hann talar um innrás Íslendinga í tískuverslanir og fjármálastarfsemi í Bretlandi og nú síðast bætist við fyrsta flokks spennusögur.

 

Að undanförnu hefur Þriðja táknið verið hlaðið lofi í breskum fjölmiðlum. Gagnrýnandi The Times ritaði að breskir lesendur yrðu nú að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum, Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur, Daily Telegraph sagði að Þriðja táknið væri létt og leikandi, bókin fékk fimm stækkunargler af fimm mögulegum í vefmiðlinum Crime Squad gaf bókinni og fjórar stjörnur af fimm í tímaritinu SHE. Sunday Telgraph sagði að bókin væri „fullkomin frumraun“, gagnrýnandi Guardian skrifaði að bókin væri „fyndin og áhugaverð“ og að mati tímaritsins Woman and Home er Þriðja táknið „æsispennandi frumraun.“

 

Áður fiskur – nú fyrsta flokks spennusögur

Gagnrýnandi Sunday Express, David Connett, byrjar umsögn sína með svofelldum orðum: “Áður fyrr fluttu Íslendingar út til Bretlands fisk, meiri fisk og síðan aðeins meiri fisk. Frá því að þetta var hefur orðið hljóðlát bylting á þessari litlu eyju í Norður-Atlantshafi. Afleiðingin er sú að nú eiga Íslendingar umtalsverðan hluta af tískuverslunum Bretlands, úrvalsdeildarlið, bankarnir bjóða okkur húsnæðislán og Reykjavík er aftur og aftur álitin “svalari” höfuðborg en London.

 

Fast á hæla þessari fjármálalegu og viðskiptalegu innrás kemur önnur menningarleg – bókmenntaleg – að minnsta kosti fyrsta flokks spennusögur.”

 

Margbrotin flétta

Hann segir að Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur sé mjög góð spennusaga. Hann rekur þráð bókarinnar og segir að fléttan sé margbrotin og lesandinn spyrji stöðugt hver sé sá seki – eða hvort þetta hafi verið morð yfirleitt – allt til enda. Yrsa feti þarna í fótspor metsöluhöfundarins og landa síns Arnaldar Indriðasonar og það sé alveg ljóst að þótt Reykjavík kunni vissulega að vera svöl þá sé hún líka miðstöð morða, ef marka megi ímyndunarafl sumra íbúanna. Niðurstaða gagnrýnandans er skýr: Fjórar stjörnur af fimm mögulegum.



Bjartur er systurforlag Veraldar