Reykjavík í allri sinni dýrð
Borgin við Sundin með gests auga
|
Bókaforlagið Veröld hefur gefið út bókina Reykjavík eftir ljósmyndarann Mariu Alva Roff og er hún í ritröðinni Iceland – Cool and Crisp.
Reykjavík er óvenjuleg höfuðborg: ung, kraftmikil og full af hugmyndum og leyndum þrám. En það er alltaf stutt í kyrrð og einfaldleika; gamalt bárujarnshús og forvitinn kött. Í bókinni Reykjavík er brugðið upp grípandi myndum þar sem borgin við Sundin er séð með auga gests sem tengst hefur henni sterkum böndum. Í stuttum textum er svo fjallað um það sem fyrir augu ber og ýmsa þætti borgarlífsins. Reykjavík er einnig fáanleg í þýskri útgáfu í bókaflokknum Island – Kurz und gut.
Báðar útgáfurnar eru í innbundnu formi og er hvor um sig 94 blaðsíður að lengd. Bókarkápur og innsíður hannaði Bergdís Sigurðardóttir en bækurnar eru prentaðar í Danmörku.

