„EITT AF MEISTARVERKUM 20. ALDARINNAR“
Stórvirki Ólafs Jóhanns Sigurđssonar vćntanlegt í kilju
Á nćstunni kemur út hjá Veröld “Páls saga” Ólafs Jóhanns Sigurđssonar í tilefni ţess ađ hann hefđi orđiđ nírćđur ţann 26. september nćstkomandi. Ţríleikur hans kom upphaflega út á árunum 1955-1983. Fyrstu tveimur hlutum hans, Gangvirkinu og Seiđi og hélogum, er nú steypt saman í eitt bindi en lokahluti bálksins, Drekar og smáfuglar, er vćntanlegur á markađ á nýju ári. Verkiđ hefur veriđ ófáanlegt um langt árabil. Ólafur Jóhann Sigurđsson (1918-1988) er međal virtustu rithöfunda ţjóđarinnar á 20. öld. Hann hlaut bókmenntaverđlaun Norđurlandaráđs áriđ 1976, fyrstur Íslendinga. Á vćntanlegri bókarkápu Páls sögu er vitnađ í Vigdísi Finnbogadótur, fyrrverandi forseta Íslands, Arnald Indriđason rithöfund, og Véstein Ólason prófessor um verk Ólafs Jóhanns. Arnaldur segir ađ ţríleikurinn sé “eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar” en Vigdís segir:"Ţessi magnađa saga Ólafs Jóhanns um tíđarandann á miđri síđustu öld kemur hér til okkar upp á nýtt, - pćlingar Páls blađamanns í heimsmyndinni eins og hún var ţá, - og ţađ er eins og sú heimsmynd hafi lítiđ breyst. Ţessi saga er líka um leit okkar ađ sjálfsmynd, sem alltaf er jafn ađkallandi, ţó leiksviđ heimsins í áranna rás fćrist eitthvađ til.“ Ţá skrifađi Vésteinn ritdóm í Tímarit Máls og menningar á sínum tíma um sagnabálkinn ađ hann vćri “eitt af öndvegisverkum íslenskrar skáldsagnagerđar.” Ţóra Sigríđur Ingólfsdóttir bókmenntafrćđingur ritar formála ađ báđum bindunum. Páls saga Ólafs Jóhanns Sigurđssonar kemur eins og fyrr segir út hjá Veröld í tveimur hlutum, sá fyrri nú á haustdögum en sá síđari eftir áramót.

