Mögnuð ævisaga
Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar um Magneu Guðmundsdóttur
Í dag kemur í verslanir bókin Magnea eftir Sigmund Erni Rúnarsson.
Þetta er stórbortin ævisaga Magneu Guðmundsdóttur en hún hefur mætt
margs kyns mótlæti í lífinu, reynt ýmislegt en ekki látið neitt stöðva
sig - hvorki barnamissi né annað andstreymi. Hún stendur óbuguð eftir
og segir nú sögu sína sem á sér enga sína líka.
Magnea fæddist í Reykjavík árið 1951, dóttir einstæðrar móður, og ólst upp fyrstu árin á loftinu fyrir ofan Víkingsprent þar sem hún kynntist fólki úr ýmsum áttum, allt frá prenturunum á gólfinu til Ragnars í Smára og Halldórs Laxness. Hún flutti í skrautlegt samfélag á Sogaveginum þar sem reykvísk alþýða reisti sér hús af misjöfnum efnum á sjötta áratugnum, giftist ung og eignaðist fjögur börn. En tilvera fjölskyldunnar varð öðruvísi en ætlað var.
Í ævisögu Magneu fáum við innsýn í veruleika þar sem líf og dauði fá nýja merkingu. Þetta er áhrifamikil saga móður sem fórnar öllu fyrir börnin sín í von um að dag einn geti þau lifað venjulegu lífi; saga konu sem sýnir hvernig hægt er að yfirstíga það sem virðist óyfirstíganlegt og þola það sem ekki verður þolað; þetta er saga sigurvegara sem gefst aldrei upp, sama hvað á dynur.
Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar einstaka sögu Magneu Guðmundsdóttur; ógleymanlega ævisögu sem lætur engan ósnortinn.