Röntgenminni og hagsýni

Hagsýni og hamingja freistar Íslendinga nú í kreppunni en ekki síður að efla minnið. Það sýnir metsölulisti Eymundssonar sem birtur er í dag. Hagsýni og hamingja eftir Láru Ómarsdóttur er fimmta mest selda bók vikunnar hjá þessari stærstu bókabúðakeðju landsins og MEMO eftir Norðmanninn Oddbjörn By fylgir fast á eftir í sjötta sæti. Með því að lesa bók Láru Ómarsdóttur komast menn að því hvernig hægt er að lifa af litlu með bros á vör og eftir að hafa tileinkað sér MEMO-aðferð Oddbjörns öðlast menn sannkallað röntgenminni!

 

Hagsýni þarf ekki að vera leiðinleg og með því að tileinka sér ákveðna hugsun og skipulag á fjármálum heimilisins verður ráðdeild þvert á móti gleðileg og gefandi. Í áhugaverðri bók sinni, Hagsýni og hamingju,  fjallar Lára Ómarsdóttir um það hvernig hægt er að endurskoða fjárhag og neyslu og spara tugi þúsunda í hverjum mánuði.  

 

Memo eftir Oddbjörn By lýsir aðgengilegu og auðveldu kerfi sem hjálpar fólki að leggja á minnið flest það sem svo erfitt getur verið að muna: nöfn, símanúmer, afmælisdaga og ártöl svo eitthvað sé nefnt. Einnig ýmislegt í daglegu lífi, svo sem að finna hluti og muna ræður og brandara. Síðast en ekki síst auðveldar kerfið fólki að tileinka sér námsefni á mun styttri tíma en ella.



Bjartur er systurforlag Veraldar