|
Í dag kemur út hjá Veröld bókin Frá Evróvisjón til Evru - Allt um
ESB eftir Eirík Bergmann dósent við Háskólann á Bifröst og forstöðumann
Evrópufræðaseturs. Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitthvert
umdeildasta mál síðari tíma. En hvað er þetta ESB? Hver er saga þess?
Hvernig er það byggt upp? Hvert er eðli Evrópusamvinnunar? Hvaða áhrif
hefur Evrópusambandið á líf, störf og viðskipti Íslendinga nú þegar –
og hvað breytist ef ákveðið verður að ganga í sambandið? Um hvað snýst samvinna þessara 27 aðildarríkja þar sem býr hálfur milljarður manna og talar 89 tungumál? Íslendingar
verða á næstunni að gera upp hug sig sinn til ESB. Bókin Frá Evróvisjón
til Evru eftir Eirík Bergmann hefur að geyma allt sem þú vildir vita um
Evrópusambandið en þorðir ekki að spyrja um; bók sem á erindi inn á
hvert heimili í landinu. Á bókarkápu er vitnað til
umsagna tveggja lesenda bókarinnar. Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra segir: "Liprasti texti sem Íslendingur hefur skrifað
um ESB og fjandi skemmtilegur aflestrar. Á köflum einsog leiftrandi
spennusaga." Og Svanhildur Hólm Valsdóttir lögfræðingur segir:
"Lipurlega ritað yfirlit um ESB, aðgengilegt g yfirgripsmikið, eftir
höfund sem er ástríðufullur hugamaður um alþjóðasamvinnu."
Til baka
|