Sá fáheyrði atburðir hefur nú gerst að nýr höfundur nær fyrsta sæti metsölulista Eymundssonar með sinni fyrstu skáldsögu. Fölsk nóta eftir Ragnar Jónasson kom út í liðinni viku og hefur þegar tekið flugið - fór beint á toppinn. Þá er spennusaga hans þriðja mest selda bók vikunnar þegar allir titlar eru metnir saman. Þá er bók Eiríks Bergmanns, Frá Evróvisjón til Evru, í þriðja sæti yfir handbækur, fræðibækur og ævisögur og situr í níunda sæti listans yfir allar bækur. Það er því óhætt að segja að Veröld hefji haustið með látum.
Ekkert
lát er á vinsældum Stiegs Larssons hjá systurforlagi Veraldar, Bjarti,
en Stúlkan sem lék sér að eldinum fylgir Falskri nótu fast á eftir í
innbundnum skáldverkum, svo og Karlar sem hata konur. Þá er sú síðar
nefnda næst mest selda kilja vikunnar. Loks má geta þess að
sálfræðitryllirinn Í meðferð eftir Sebastian Fitzek er í tíunda sæti
kiljulistans. Bjartur & Veröld eru síðan með alls fjórar af tíu
mest seldu bókum vikunnar.

