

Yrsa Sigurđardóttir hlýtur í ár Blóđdropann, glćpasagnaverđlaun Hins íslenska glćpafélags, fyrir bók sína Ég man ţig. Ţetta er í fimmta sinn sem Blóđdropinn er afhentur en upplýst var um niđurstöđu dómnefndar í gćr. Ţar međ er ljóst ađ Ég man ţig verđur framlag Íslands til Norrćnu glćpasagnaverđlaunanna, Glerlykilsins en međal ţeirra sem hlotiđ hafa ţau eftirsóttu verđlaun eru Henning Mankell, Jo Nesbö, Stieg Larsson og Arnaldur Indriđason.
Í umsögn dómnefndar sagđi međal annars ađ í verđlaunabókinni Ég man ţig sýni Yrsa ađ hún sé fullfćr um ađ leika sér međ glćpasöguformiđ; nýta sér ţađ á skapandi hátt en ekki sem formúlu en helsti kostur bókarinnar sé ađ hún nái ađ gera ţađ sem allar góđar glćpa- og spennusögur geri: Ađ halda lesandanum í heljargreipum allt fram á síđustu blađsíđu.
meira >
Út er komin hjá Veröld seinna bindi Pálssögu eftir Ólaf Jóhann Sigurđsson međ lokahluta ţríleiksins, Drekum og smáfuglum. Pálssaga er ađ mati Arnaldar Indriđasonar "eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar." Skáldverk Ólafs Jóhanns Sigurđssonar um Pál Jónsson blađamann er stórbrotiđ uppgjör viđ mestu átakatíma síđustu aldar á Íslandi, hernámiđ og eftirstríđsárin. Áđur eru komnir fyrri tveir hlutar verksins í einu bindi, Gangvirkiđ og Seiđur og hélog. Ólafur Jóhann Sigurđsson (1918–1988) var einn af helstu stílsnillingum síns tíma og fer á kostum í Pálssögu. Persónurnar endurspegla margslungiđ andrúmsloftiđ í samfélaginu og eru í senn skoplegar og tragískar. Ólafur Jóhann hlaut bókmenntaverđlaun Norđurlandaráđs áriđ 1976, fyrstur Íslendinga.
meira >
Bandaríska risaforlagiđ Macmillan hefur tryggt sér
réttinn á tveimur metsölubókum Yrsu Sigurđardóttur, Auđninni og Ég man ţig. Auđnin
kom upphaflega út á Íslandi áriđ 2008 og hefur nú ţegar fariđ víđa, m.a. var
hún bók vikunnar í Spiegel ţegar hún kom út í Ţýskalandi áriđ 2009. Ég man ţig
kom út fyrir síđustu jól og hefur veriđ ţaulsetin á metsölulistum hér á landi
allt frá útgáfudegi. Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á
bókinni en hún er einnig vćntanleg á markađ í Englandi, í hinum ţýskumćlandi
heimi, Portúgal og víđar. Bandaríkjamarkađur er lítt opinn fyrir erlendum
rithöfundum og ţví eru ţetta mikil gleđitíđindi, ekki síst ađ Macmillan skuli
hafa keypt réttinn á Ég man ţig sem er ekki hluti af seríunni um Ţóru
Guđmundsdóttur lögmann heldur draugasaga frá Hesteyri í Jökulfjörđum.
Á liđnu hausti festi Macmillan kaup á Ösku sem er vćntanleg á markađ á ţessu ári.
Yrsa tekur um ţessar mundir ţátt í Crimefest, mikilli glćpsagnahátíđ í Englandi
ţar sem fjöldi rithöfunda – einkum breskra – stígur á stokk. Ţar kemur hún
tvisvar fram í pallborđi í dag, föstudag.
meira >

meira >


Íslenskt ţjóđerni og viđhorf til sjálfstćđis og fullveldis hafa allt frá lýđveldisstofnun einkennt umrćđur – og deilur – um samband Íslands viđ ađrar ţjóđir. En hvernig skynjum viđ okkur sem ţjóđ? Og hvernig hefur ţađ haft áhrif á samskipti okkar viđ umheiminn? Ţetta eru lykilspurningarnar sem Eiríkur Bergmann fćst viđ í nýrri bók sinni, Sjálfstćđ ţjóđ - Trylltur skríll og landráđalýđur, sem fer í verslanir á morgun, fimmtudag. Útgáfu bókarinnar verđur síđan fagnađ í Eymundsson, Skólavörđustíg, á föstudaginn kl. 17.Bókin hefur ţegar vakiđ mikla athygli, ekki síst eftir fróđlegt samtal ţeirra Eiríks og Egils Helgasonar í Silfrinu síđastliđinn sunnudag. Ţá var hann í viđtali á Bylgjunni í morgun
Í stórfróđlegri bók sinni fjallar Eiríkur Bergmann um ţađ hvernig ţjóđernishugmyndir hafa sett mark sitt á umrćđur um samskipti Íslands viđ önnur ríki, allt frá inngöngunni í NATO til átakanna um IceSave og ađild ađ Evrópusambandinu.
meira >

Á morgun, fimmtudaginn 28. apríl kl. 12.00, hefst Vorhreingerning útgefenda í Borgartúni 29. Ţar verđa á bođstólum ţúsundir titla á frábćru verđi, allt frá bókum ársins 2010 til eldri gersema. Ţá verđur metsöluspiliđ Enn meiri Popppunktur til sölu á ótrúlegu verđi. Ný Popppunkts-sería fer í gang nú í sumar á Rúv og ţví er ekki seinna vćnna ađ spreyta sig í ţessum bráđskemmtilega leik.
Takmarkađ magn er af ýmsum frábćrum titlum - ekki síst barnabókum - og ţví rétt ađ drífa sig strax á stađinn. Lagerhreinsunin verđur opin alla daga frá kl. 11-18 en opnar á fimmtudaginn 28. apríl.
meira >
Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur er mest selda bók vikunnar í Eymundsson, samkvćmt metsölulista keđjunnar sem birtur var fyrir stundu. Á réttri hillu eftir Árelíu Eydísi Guđmundsdóttur er í fyrsta sćti handbókalistans og ţar rétt á eftir er Betri nćring - betra líf eftir Kolbrúnu Björnsdóttur grasalćkni en báđar eru ţćr á topp tíu yfir allar bćkur. Menn hafa fagnađ af minna tilefni og ţví drögum viđ út ţrjá af póstlista Veraldar og geta ţeir vitjađ vinninga sinna í höfuđstöđvum forlagsins ađ Brćđraborgarstíg 9. Hinir heppnu eru:
hafsteinn@kopavogur.is fćr Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur
gudest@ismennt.is fćr Á réttri hillu eftir Árelíu Eydísi Guđmundsdóttur
joka101@internet.is hlýtur Betri nćring - betra líf eftir Kolbrúnu Björnsdóttur
meira >Síđa 12 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

