Páll Baldvin eys WikiLeaks-bókina lofi
(11.02.2011)

„Bókin um sögu Wikileaks er opinberun," segir Páll Baldvin Baldvinsson í umsögn sinni um bókina WikiLeaks - Stríđiđ gegn leyndarhyggju í Fréttatímanum í dag og gefur bókinni fjórar stjörnur. "Sagan er reyfarakennd og einstök heimild um hiđ svokallađa frjálsa kerfi upplýsinga. ... Sagan sem blađamennirnir rekja er spennandi ţótt ţeir gangi býsna langt í lýsingum sínum, býsna berorđum, um persónulega hagi Assange." Áđur hafđi Páll Baldvin sagt í Kiljunni ađ ţetta sé "hin merkasta bók".

meira >

- WikiLeaks-bókin mćrđ í Kiljunni
(9.02.2011)

WikiLeaks - Stríđiđ gegn leyndarhyggju er "hin merkasta bók, skrifuđ af mönnum í storminum miđjum," sagđi Páll Baldvin Baldvinsson í Kiljunni og bćtti ţví viđ ađ hún gćfi okkur "einstćđa sýn á hvađ gerđist ţarna eftir ađ Assange nćr sambandi viđ Guardian". Ţá hćldi Páll Baldvin ţýđingu Arnars Matthíassonar. Kolbrún Bergţórsdóttir hnykkti á ţví ađ bókin vćri "snaggaralega skrifuđ" og ţetta vćri "harđsođin rannsóknarblađamennska". Ţá nefndi Kolbrún ađ hún hefđi framan af óttast ađ Julian Assange yrđi gerđ ađ einhverri hetju í bókinni en sem betur fer breyttist ţađ ţegar á liđi.

 

Bókin er sem kunnugt er skrifuđ á mettíma og ţýdd jafnvel ennţá hrađar; hún var gefin út í Bretlandi ţann 1. febrúar og ţremur dögum síđar var hún komin í verslanir á Íslandi.

meira >

Vannstu bók?
(9.02.2011)

WikiLeaks - Stríđiđ gegn leyndarhyggju er ein mest selda handbók vikunnar, samkvćmt metsölulista Eymundssonar sem birtur er í dag. Bókin kom í verslanir um nýliđna helgi og hefur ţegar vakiđ mikla athygli. Međal annars má lesa kaflabrot úr bókinni í Fréttatímanum 4. febrúar sl. Ţá er athyglisvert ađ Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur er enn á metsölulistanum og Snjóblinda Ragnars Jónassonar fylgir ţar fast á eftir en báđar bćkur eru vćntanlegar í kilju fljótlega. Í tilefni af ţví drögum viđ út ţrjá af póstlista Veraldar og geta ţeir vitjađ vinninga sinna hjá útgáfunni ađ Brćđraborgarstíg 9. Hinir heppnu eru:

 

einardis@simnet.is hlýtur WikiLeaks - Stríđiđ gegn leyndarhyggju

 

LaufeyO@siminn.is fćr Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur

 

kristin@ki.is fćr Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson

 

meira >

WikiLeaks - Stríđiđ gegn leyndarhyggju
(4.02.2011)
Út er komin hjá Veröld bókin WikiLeaks – Stríđiđ gegn leyndarhyggju eftir David Leigh og Luke Harding, blađamenn á Guardian. Á örskömmum tíma hefur WikiLeaks fengiđ ráđamenn um allan heim upp á móti sér međ afhjúpunum á skjölum sem aldrei áttu ađ koma fyrir almenningssjónir. Saga uppljóstrunarsíđunnar er dramatísk og ćvintýri líkust.

Ísland og Íslendingar koma mjög viđ sögu WikiLeaks; ţegar blađamenn Guardian reyndu ákaft ađ ná sambandi viđ óţekktan Ástrala, Julian Assange, sem átti ađ sitja á sannkallađri fjölmiđlabombu var ţeim bent á ađ tala annađhvort viđ Kristin Hrafnsson eđa Birgittu Jónsdóttur. Og hér á landi var fyrsta sprengja síđunnar búin til birtingar.

Höfundar bókarinnar hafa haft ótakmarkađan ađgang ađ öllum helstu persónum og leikendum í ţessum sögulegu atburđum. Hér er lesendum veitt einstök innsýn í herbúđir WikiLeaks í stríđinu gegn leyndarhyggju stjórnvalda og er bókin á köflum eins og ćsilegasta spennusaga. Bókin kom út í Bretlandi fyrr í vikunni og er fjallađ um atburđi allt fram í miđjan janúar. Bókin kemur nú út samtímis víđa um heim. meira >

Hringnum lokađ fćr frábćra dóma í Danmörku
(27.01.2011)
Hringnum lokađ eftir Michael Ridpath var gefin út í Danmöku ţann 11. janúar síđastliđinn en bókin kom út hjá Veröld nú fyrir jól. Skemmst er frá ţví ađ segja ađ Danir halda ekki vatni yfir bókinni, segja ađ sagan sé "heillandi og hörkuspennandi", menn geta ekki beđiđ eftir framhaldinu, ţetta er "sannfćrandi og skemmtileg glćpasaga" og hún er óađfinnanlega skrifuđ. Hringnum lokađ gerist sem kunnugt er hér á landi og er fyrsta bók Ridpaths um Magnús Ragnarsson lögreglumann sem búiđ hefur og starfađ í Boston um langt árabil en snýr til Íslands. Hringnum lokađ kemur fljótlega út í kilju hér á landi en nćsta bók Ridpaths í seríunni er vćntanleg á íslensku í haust. meira >

- Kemur út hjá Veröld í febrúar
(14.01.2011)

Ţriđjudagsmorgun einn í nóvember 2010 sást sérkennilegur hópur fólks trođa sér inn í lúna bifreiđ í Paddington hverfinu í London: hörkulegur Íslendingur, nördaleg ungmenni og óvenju hávaxin eldri kona í kápu og međ slćđu. Konan var sjálfur Julian Assange í dulargervi. Hópurinn var á leiđ á leynilegan felustađ, međ slökkt á öllum farsímum af ótta viđ ađ starfsmenn varnarmálaráđuneytis Bandaríkjanna fylgdust međ ţeim. Förinni var heitiđ á sveitasetur fyrrum foringja í breska hernum sem skotiđ hafđi skjólshúsi yfir ţađ sem kallađ var mesti leki sögunnar.

 

Á ţessum viđburđum hefst bókin WIKILEAKS – Stríđiđ gegn leyndarhyggju eftir blađamenn á breska dagblađinu Guardian en bókin kemur út hjá Veröld nú febrúar, á sama tíma og hún verđur gefin út í Bretlandi, Bandaríkjunum og víđa um heim. Ísland og Íslendingar koma  sem kunnugt er mjög viđ sögu WikiLeaks, s.s. Kristinn Hrafnsson og Birgitta Jónsdóttir. Höfundarnir hafa haft ótakmarkađan ađgang ađ öllum helstu persónum og leikendum í ţessu sögulega máli, allt frá diplómötum og stjórnmálamönnum til Julian Assange sjálfs.

meira >

Ég man ţig hefur mikil áhrif á lesendur
(14.01.2011)
Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur virđist hafa mögnuđ áhrif á lesendur, ef marka má pistil Ragnheiđar Tryggvadóttur í Fréttablađinu í gćr. Ţar segir međal annars: "Ég heyri fólk lýsa hvernig hrćđslan náđi heljartökum á ţví viđ lesturinn svo ţađ gat hvorki hreyft legg né liđ. Einhverjir gátu ekki lagt bókina frá sér og lásu hana nćturlangt í einum rykk, stjarfir af ótta. Mćttu svo vansvefta og hvekktir eftir lesturinn til vinnu sinnar, međ ónot um sig alla. Ađrir urđu svo hrćddir ađ ţeir ţurftu ađ taka löng hlé frá lestrinum til ađ jafna sig áđur en ţeir gátu haldiđ áfram." Ég man ţig fór hvađ eftir annađ í efsta sćti metsölulista fyrir jólin, var nćst mest selda skáldsaga nýliđins árs, hlaut frábćra dóma og virđast gagnrýnendur á einu máli um ađ ţetta sé besta bók Yrsu Sigurđardóttur. Og lesendur eru greinilega djúpt snortnir! meira >

- segir Pétur Gunnarsson um bók Árna Matt. og Ţórhalls
(23.12.2010)

Árni Matt - Frá bankahruni til byltingar er "hreinskilnasta uppgjör íslensks stjórnmálamanns viđ hruniđ," segir Pétur Gunnarsson í umsöng sinni um bók ţeirra Árna M. Mathiesen og Ţórhalls Jósepssonar í Fréttablađinu í dag og bćtir viđ ađ ţeir félagar eigi hrós skiliđ fyrir bókina. Hann skenkir henni ţrjár stjörnur.

 

"Markverđustu pólitísku tíđindin í bókinni held ég," segir Pétur, "ađ felist í ţeim lćrdómi sem Árni dregur af reynslu sinni af ţví ađ rćđa viđ erlenda ráđamenn vikurnar í kringum hruniđ haustiđ 2008. Niđurstađa hans er sú ađ ćtli Íslendingar sér ađ leita bandamanna erlendis standi ađeins einar dyr opnar, ţađ eru dyr Evrópusambandsins." Ţá segir Pétur ađ lýsingar á fundum ráđherra međ bankamönnum í ađdraganda hrunsins séu forvitnilegar, "ţegar ráđherrarnir gera sér fyrst grein fyrir ţví á síđustu metrunum ađ eigendur bankanna hafa veriđ ađ beita ţá blekkingum."

meira >

Stelpur mest selda barna- og unglingabókin
(22.12.2010)
Ég man ţig eftir Yrsu Sigurđardóttur er mest selda bók vikunnar, samkvćmt metsölulista Eymundssonar sem birtur er í dag. Bókin er uppseld á lager í 16.000 eintökum en enn munu eintök fáanlega í verslunum. Stelpur eftir Kristínu og Ţóru Tómasdćtur er mest selda barna- og unglingabókin eina ferđina enn og er fjórđa prentun nálega á ţrotum hjá útgáfunni - 9.000 eintök, takk fyrir. Ţá er Ţór - Leyndarmál guđanna eftir Friđrik Erlingsson í níunda sćti barnabókalistans. meira >

Hér er kominn krónprins!
(22.12.2010)
"Vel byggđ, vel stíluđ og spennandi sakamálasaga međ góđri persónusköpun og lausn sem kemur lesanda algjörlega í opna skjöldu," segir Friđrika Benónýsdóttir í Fréttablađinu í dag um Snjóblindu Ragnas Jónassonar og skenkir henni ţrjár stjörnur. "Sagan er mjög vel byggđ og prýđilega skrifuđ. Spennan er byggđ upp hćgt og bítandi og eins og viđ á í sakamálasögu af ţessari gerđ stendur lesandinn sig ađ ţví ađ gruna hverja persónuna á fćtur annarri um ódćđin. Lausnin er snjöll og kemur gjörsamlega á óvart, sem er mikill og allt of fáséđur kostur í sakamálasögum," segir hún enn fremur og bćtir viđ ađ hann blandi "sér hressilega í slaginn um krónprins- og kóngstitilinn sem einhver blessađur gagnrýnandinn setti í gang međal íslenskra krimmahöfunda."  meira >

Síđa 15 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar