
"Bók fyrir forvitnar Stelpur! eftir systurnar Kristínu og Þóru Tómasdætur er verk sem allar unglingsstelpur ættu að hafa aðgang að," segir Björg Magnúsdóttir í umsögn sinni um bókina á Pressunni sem ber fyrirsögnina: "Stelpur! Þetta verðið þið allar að gjöra svo vel að lesa". Hún heldur síðan áfram: "Bókin er uppfull af nauðsynlegum fróðleik fyrir þær sem eru að feta sig í heimi þeirra sem eldri eru." Björg lýkur grein sinni með þessum orðum: "Það besta við Stelpur! er að hún er skrifuð á hispurslausan hátt og inniheldur öll þau nauðsynlegu tabú sem unglingsstelpur þurfa fyrr eða síður að fræðast um." Hún gefur bókinni fjórar stjörnur, rétt eins og Hólmfríður Gísladóttir í Morgunblaðinu á dögunum.
meira >

Ævisaga Guðrúnar Ögmundsdóttur "gerir mann að betri manni," segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, sem er ekki amaleg umsögn! Þá segir Regína Ásvaldsdóttir að bókin sé full af "skemmtilegum frásögnum sem gefa innsýn í viðburðaríka ævi hjá yndislegri konu með stórt hjarta."
Guðrún Ögmundsdóttir á að baki litríka og dramatíska ævi; dóttir konu sem „fór heim án barns“ af fæðingardeildinni og ólst upp hjá kjörforeldrum, tók síðan sjálf barn í fóstur. Hún er holdgervingur ’68 kynslóðarinnar og fyrrverandi borgarfulltrúi og alþingismaður.
Guðrún sogaðist inn í hringiðu nýrra hugmynda á áttunda áratugnum – m.a.
í Kaupmannahöfn, þar sem hún dvaldist lengi – en fann sína fjöl í
kvenréttindabaráttunni, fyrst með rauðsokkum og síðar Kvennalistanum og
sat í borgarstjórn fyrir hann. Hún var meðal stofnenda Samfylkingarinnar
og sat á þingi fyrir flokkinn.
meira >




Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur er mest selda skáldverk vikunnar, samkvæmt metsölulista Hagkaupa. Stelpur eftir Kristínu og Þóru Tómasdóttur fylgir fast á hæla Yrsu og situr í níunda sæti aðallista Hagkaupa. Yrsa hefur aldrei fengið aðrar eins viðtökur við nokkurri bók sinni hér á landi og Kristín og Þóra koma heldur betur sterkar inn með sinni fyrstu bók. Þar sem þetta er eins og í draumi höfum við ákveðið að draga út þrjá heppna af póstlista Veraldar sem fá glæsilegan bókavinning og geta þeir vitjað glaðningsins á Bræðraborgarstíg 9. Þeir eru:
fjolaae@internet.is fær Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur
katrin@mfa.is sem fær Stelpur
hbhjalt@simnet.is sem fær Nýju draumaráðningabókina
meira >



"Síðustu kaflarnir koma sannarlega á óvart. Virkilega gaman að sjá hvernig Ragnar hnýtir saman þessa gömlu þræði við þá nýju sem verið var að rannsaka … Framúrskarandi verk," segir hinn annálaði fjölmiðlamaður Gunnar Salvarsson á fésbókasíðu sinni um bók Ragnars Jónassonar, Snjóblindu, þá hina sömu og þýskir útgefendur bitust um fyrr í haust. Gunnar er ekki einn á báti í lofi sínu um Snjóblindu. Heiðrún Sveinsdóttir bóksali í Eymundsson gefur bókinni fjórar stjörnur, Guðríði Haraldsdóttur á Vikunni sagði að sagan væri spennandi, grípandi og héldi manni við efnið (og hvað þarf maður meira í spennusögur?), Páll Baldvin Baldvinsson sagði að fléttan væri prýðilega byggð og lesandanum væri komið á óvart í sögulok. Þá skrifaði Ingibjörg Rögnvaldsdóttir á bokmenntir.is að sagan væri lipurlega skrifuð og fléttan gengi fyllilega upp, Ragnar væri höfundur sem vert væri að fylgjast með.
Ragnar Jónasson hefur því yfir ýmsu að gleðjast nú fyrir jólin; samningi við risaforlag í Þýskalandi, frábærum dómum og ítrekaðri viðveru á metsölulistum!
meira >
Stelpur er mest selda barna- og unglingabók landsins, samkvæmt metsölulistas Eymundssonar og Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur fylgir Arnaldi eins og skugginn - nema þar sem hún skýst fram úr honum - og hefur aldrei farið betur af stað fyrir jólin. Þá er baráttan um Fimbulfambið að ná hámarki, tekist er á um þau spil sem komu á lager. Ekki er heldur leiðinlegt að sjá að bók Árna Mathiesen og Þórhalls Jósepssonar, Árni Matt - Frá bankahruni til byltingar hefur vakið verðskuldaða athygli. Menn hafa fagnað af minna tilefni og því drögum við út þrjá heppna af póstlista Veraldar sem fá vinning og geta þeir vitjað þeirra á Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík. Þeir eru:
joi@toyota.is fær Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur
gsm@ismennt.is fær Stelpur eftir Kristínu og Þóru Tómasdætur
hbhjalt@simnet.is fær Fimbulfamb
meira >Síða 17 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

