(24.11.2010)

Bókin Árni Matt - Frá bankahruni til byltingar hefur vakið gríðarlega athygli en hún kemur út í dag. Þar segir Árni M. Mathiesen hreinskilnislega frá því sem gerðist á bak við tjöldin í aðdraganda þessara miklu atburða haustið 2008, eftirmálum þeirra og tildrögum þess að hann sagði skilið við stjórnmálin. Fjölmiðlar hafa keppst við að segja tíðindi úr bókinni. Pressan sagði frá því að Glitnir vildi styrk - ekki lán frá ríkinu á sínum tíma og það skýri að mati Árna hörð viðbrögð eigenda bankans. Eyjan greindi frá því að Árni telji að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafi átt að stöðva gengislánin á sínum tíma. DV upplýsti að Árni segi að það hafi verið óskynsamlegt af Geir H. Haarde forsætisráðherra að bjóða Davíð Oddssyni á ríkisstjórnarfundinn fræga eftir Glitnishelgin. Morgunblaðið greindi frá því að Árni hefði neitað að samþykkja kaup á bréfum úr Sjóði 9 hjá Glitni og fleira mætti nefna, enda tíðindin í bókinni óþrjótandi. Hún er nú komin í verslanir en fæst einnig hér.

meira >

(23.11.2010)

Réttindastofa Veraldar hefur hefur samið við þýska kvikmyndafyrirtækið teamworx um að kvikmynda allar bækur Yrsu Sigurðardóttur um Þóru Guðmundsdóttur lögmann. Teamworx er dótturfyrirtæki FreemantleMedia sem er hluti af stærsta miðlunarfyrirtæki heims, Bertelsmann. Ráðgert er að taka myndirnar upp á þýsku á Íslandi. Samkvæmt samningnum hefur teamworx einnig rétt til að framleiða eigin sögur byggðar á persónum í bókum Yrsu. Bækurnar sem um ræðir eru Þriðja táknið, Sér grefur gröf, Auðnin og Horfðu á mig, auk væntanlegra bóka um Þóru.

 

Framleiðandi myndanna um Þóru Guðmundsdóttur, Benjamin Benedict hjá teamworx, segist vera mikill aðdáandi bóka Yrsu, hann hafi heillast af aðalpersónunni og strax séð að bækur hennar gengju upp sem kvikmyndir. Hann reiknar með að það taki eitt til eitt og hálft ár að framleiða fyrstu myndina. Áður hefur hann meðal annars framleitt kvikmyndir eftir bókum bandaríska metsöluhöfundarins Donna Leon sem gerast í Feneyjum.

 

Kvikmyndafyrirtækið Pegasus vinnur nú að gerð kvikmyndar sem byggð er á Ösku og er hún undanskilin í samningi Yrsu við teamworx.

meira >

Snjóblindu hrósað á Bókmenntavefnum
(23.11.2010)

"Snjóblinda er lipurlega skrifuð og flétta sakamálasögunnar gengur fyllilega upp," segir Ingibjörg Rögnvaldsdóttir í gagnrýni sinni um glæpasögu Ragnars Jónassonar, og bætir við: "Ragnar Jónasson er höfundur sem vert er að fylgjast með." Hún er þarna á sömu slóðum og Ásdís Halla Bragadóttur sem sagði að sagan væri skemmtileg og vel skrifuð og hún biði spennt eftir næstu bók. Guðríður Haraldsdóttir, gagnrýnandi á Vikunni, skrifaði að bókin væri "spennandi, grípandi og heldur manni við efnið", Páll Baldvin Baldvinsson skrifaði í Fréttatímanum að fléttan væri prýðilega byggð og að lesandanum væri komið á óvart í lokin. Þá gaf Heiðrún Sveinsdóttir, bóksali í Eymundsson Austurstræt, Snjóblindu hvorki meira né minna en fjórar stjörnur.

meira >

- segir Hrafn Jökulsson um Þórs - Leyndarmál guðanna
(22.11.2010)

"Friðrik Erlingsson fer á kostum í bók um sjálfan þrumuguðinn Þór, og mislukkaðar tilraunir hans til að þóknast bæði guði og mönnum," segir Hrafn Jökulsson bókmenntagagnrýnandi í Viðskiptablaðinu og bætir við: "Ótal höfundar hafa sótt í brunn norrænnar goðafræði, en bók Friðriks um Þór er frábær endursögn og túlkun á þeim guði sem um langa hríð var í mestum hávegum hafður hjá forferðrum okkar." Þór - Leyndarmál guðanna segir frá Þór Óðinssyni sem þeytist um heiminn frá morgni til kvölds að sinna skyldum sínum við guði og menn, í von um að faðir hans vígi hann endanlega inn í goðheima. Gömlu guðirnir eru hins vegar fullir öfundar yfir vinsældum Þórs og reyna að losa sig við hann.

meira >

Spennusaga sem fær hárin til að rísa
(22.11.2010)

Yrsa Sigurðardóttir hefur sent frá sér nýja spennusögu, Ég man þig. Ungt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri í Jökulfjörðum um miðjan vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Á sama tíma dregst ungur læknir á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu. Hún virðist hafa verið hugfangin af syni hans sem hvarf fyrir þremur árum og fannst aldrei.

 

Þessir ólíku þræðir fléttast saman í grípandi sögu þar sem rómaðir hæfileikar Yrsu til að kveikja spennu og magna upp dulúð njóta sín til hins ítrasta.

 

Ég man þig mun án efa bera hróður Yrsu Sigurðardóttur víða um lönd þar sem verk hennar koma nú út við miklar vinsældir. Að undanförnu hafa birst afar lofsamlegir dómar um bækur hennar og er þar skemmst að minnast að virtasta bókmenntatímarit heims, Times Literay Supplemen, sagði að Aska stæðist samanburð við það sem best gerðist í glæpasögum samtímans, hvar sem er í heiminum.

meira >

Ný sending væntanleg en fæst enn í helstu verslunum
(18.11.2010)

Salan á borðspilinu Fimbulfambi hefur farið fram úr björtustu vonum útgáfunnar. Fyrsta sending hvarf eins og dögg fyrir sólu af lager á innan við viku en ný sending er væntanleg nú um mánaðarmótin. Enn er hægt að kaupa spilið í helstu verslunum en einnig geturðu tryggt þér eintak með því að smella hér en spilið verður síðan afhent strax í byrjun desember. Hér gildir sem víðar: Fyrstir koma - fyrstir fá!

 

Fimbulfamb kom fyrst út fyrir 17 árum en seldist fljótlega upp og hefur verið gjörsamlega ófáanlegt síðan - nema fyrir stórfé á Barnalandi. Nú er sagan greinilega að endurtaka sig. Það þýðir ekkert að framleiða Fimbulfamb - það selst alltaf upp!

meira >

Svaraðu léttri spurningu og þú átt möguleika á að fá bókina senda heim á föstudag
(18.11.2010)
Á laugardaginn kemur út bókin Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur. Vegur Yrsu hefur líklega aldrei verið meiri: virtasta bókmenntarit heims, Times Literary Supplement, segir að verk hennar standist samanburð við það sem best gerist í glæpasögum, hvar sem er í heiminum, The Times segir að hún sé í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda og svo mætti lengi telja. Nú er svo komið að verk hennar eru gefin út á yfir þrjátíu tungumálum. Af þessu tilefni efnum við til svolítils leiks: Nefndu 10 tungumál sem útgáfurétturinn á bókum Yrsu hefur verið seldur á, sendu listann á verold@verold.is og á hádegi á morgun, föstudag, verða dregin út nöfn þriggja þátttakenda sem svarað hafa rétt og fá þeir nýju bókina hennar senda heim annað kvöld sér að kostnaðarlausu. Þetta gildir ekki utan höfuðborgarsvæðisins - þar verða menn að bíða þess að pósturinn beri bókina til þeirra eftir helgi. meira >

Áskorun til lesenda Michael Ridpaths
(17.11.2010)
Michael Ridpath hefur vakið mikla athygli fyrir mestölubók sína Hringnum lokað, alþjóðlega spennusögu sem gerist hér á landi. Lesendur hafa veitt því sérstaka eftirtekt hvað hann er næmur á smáatriði í íslensku þjóðlífi og hefur sett sig vel inn í mál. Af þessu tilefni hefur Veraldarvefurinn ákveðið að efna til áskorunar meðal lesenda bókarinnar. Sá sem fyrstur finnur staðreyndavillu um Ísland eða Íslendinga í bókinni fær að gjöf næstu bók Ridpaths um Magnús Jónsson en hún er væntanleg er á næsta ári! meira >

Kristín og Þóra fylgja Arnaldi eins og skugginn
(17.11.2010)

Stelpur eftir Kristínu og Þóru Tómasdætur er mest selda bókin í flokki barna- og unglingabóka í verslunum Eymundssonar, samkvæmt metsölulista vikunnar. Þá fylgja þær Furðuströndum Arnaldar fast eftir á aðallistanum. Það er því óhætt að segja að þær systur hafi slegið rækilega í gegn með þessari frábæru bók sem er sannkallaður viskubrunnur um fjölmargt sem fylgir því að vera stelpa. Í henni er að finna svör við ótal spurningum sem vakna um ólíkustu mál – allt frá förðun til fjárhaglegs heilbrigðis og frá mataræði til misgóðra foreldra. Það er stundum ekkert grín að vera stelpa þótt það geti líka verið algjört grín!

meira >

Kynnir Hringnum lokað í Eymundsson Skólavörðustíg
(15.11.2010)

Breski metsöluhöfundurinn Michael Ridpath kynnir alþjóðlega spennusögu sína, Hringnum lokað í Eymundsson, Skólavörðustíg á morgun, þriðjudag, kl. 17 en sagan gerist sem kunnugt er hér á landi. Ridpath notaði helgina í að kanna aðstæður fyrir þriðju bók sína um Magnús Jónsson lögreglumann en Hringnum lokað er fyrsta bókin í seríunni um hann. Önnur bókin er þegar frágengin í handriti og kemur út á næsta ári.

 

Ridpath sló í gegn um miðjan tíunda áratuginn með bók sinni Myrkraverk og var samstundis kallaður "hinn breski John Grisham". Í kjölfarið fylgdu fjármálatryllar af ýmsu tagi en fyrir nokkru ákvað hann að söðla um og beina sjónum sínum að Íslandi. Í Hringnum lokað er "Íslandi eftir hrunið lýst með glöggu gestsauga," eins og Ármann Jakobsson, dósent í íslensku segir. Prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands telur sig hafa fundið handrit að Íslendingasögu sem menn töldu glatað en sagan á meðal annars að hafa veitt höfundi Hringadróttinssögu innblástur. Skömmu síðar finnst hann látinn í Þingvallavatni.

meira >

Síða 19 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar