- eða magnaða bók?
(12.11.2010)

Fimbulfamb er komið á markað eftir sautján ára hlé, Snjóblinda Ragnars Jónassonar er fjögurra stjörnu glæpasaga, Michael Ridpath á leið til landsins að kynna metsölubók sína Hringnum lokað, ævisaga Guðrúnar Ögmundsdóttur slær í gegn og Stelpur eftir Kristínu og Þóru Tómasdóttur er að gera allt vitlaust! Menn hafa glaðst af minna tilefni og því drögum við út hvorki meira né minna en fimm heppna af póstlista Veraldar, sem geta vitjað vinninga sinna í höfuðstöðvum útgáfunnar að Bræðraborgarstíg 9. Hinir heppnu eru:

 

ragnhek@hotmail.com hlýtur Fimbulfamb

 

sigrun_jonsdottir@hotmail.com fær Guðrúnu Ögmundsdóttur - Hjartað ræður för

 

silja.g@simnet.is fær Hringnum lokað eftir Michael Ridpath

 

klisja@internet.is fær Snjóblindu Ragnars Jónassonar

 

gudnyrg@simnet.is fær Stelpur! eftir Kristínu og Þóru Tómasdætur

meira >

Kynnir Hringnum lokað í Eymundsson Skólavörðustíg á þriðjudag
(12.11.2010)

Michael Ridpath, höfundur alþjóðlegu spennusögunnar Hringnum lokað, sem gerist á Íslandi, er á leið til landsins. Hann hyggst kanna aðstæður fyrir þriðju bókina í seríunni um Magnús Jónsson lögreglumann en hann hefur nú þegar lokið aðra bókina í röðinni. Á þriðjudag mun hann kynna Hringnum lokað í Eymundsson á Skólavörðustíg kl. 17 og eru allir velkomnir.

 

Ridpath sló í gegn um miðjan tíunda áratuginn með bók sinni Myrkraverk og var samstundis kallaður "hinn breski John Grisham". Í kjölfarið fylgdu fjármálatryllar af ýmsu tagi en fyrir nokkru ákvað hann að söðla um og beina sjónum sínum að Íslandi. Í Hringnum lokað er "Íslandi eftir hrunið lýst með glöggu gestsauga," eins og Ármann Jakobsson, dósent í íslensku segir. Prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands telur sig hafa fundið handrit að Íslendingasögu sem menn töldu glatað en sagan á meðal annars að hafa veitt höfundi Hringadróttinssögu innblástur. Skömmu síðar finnst hann látinn í Þingvallavatni.

meira >

"Ætla að panta þig í jólagjöf"
(12.11.2010)
Guðrún Ögmundsdóttir og Halla Gunnarsdóttir hafa varla undan við að sinna beiðnum um að koma og lesa upp úr bók þeirra, Guðrún Ögmundsdóttir - Hjartað ræður för. Bókin hefur enda slegið í gegn, verið þaulsetin á metsölulistum og á fésbókarsíðu Guðrúnar má sjá athugasemdir lesenda sem fallið hafa í stafi yfir bókinni. Hún er sögð "yndisleg", ein ætlar "að panta þig í jólagjöf", önnur "byrjaði á bókinni í gær og hlakka til að lesa meira, en er nú samt að treina mér hana :-) Mikil Gunna a.m.k. í fyrstu köflunum :-) Þú ert bara flott". Og þar fram eftir götum. Það er ljóst að hér er komin jólabók konunnar! meira >

- fjögurra stjörnu krimmi Ragnars Jónassonar
(12.11.2010)

Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson er "spennandi, grípandi og heldur manni við efnið," að sögn Guðríðar Haraldsdóttur, sem er betur þekkt undir gælunafninu Gurrí, í Vikunni, og bætir við að það sé aldrei of mikið af góðum íslenskum krimmum. Þá gaf Heiðrsún Svinsdóttir, bóksali í Eymundsson í Austurstræti Snjóblindu fjórar stjörnur, hvorki meira né minna!

 

Áður hafði Páll Baldvin Baldvinsson hrósað Snjóblindu fyrir að vera prýðilega byggð og að hún komi lesandanum á  óvart í bókarlok. Þá hældi hann persónulýsingu sakamanns í sögunni. Þá gefur  Snjóblinda var sem kunnugt er mikið bitbein þýskra stórforleggjara á dögunum sem allir vildu hreppa hnossið en á endanum stóð risinn Fischer Verlag uppi sem sigurvegari.

meira >

Loksins, loksins!
(12.11.2010)

Hið sögufræga borðspil Fimbulfamb er loksins fáanlegt aftur. Spilið kom upphaflega út árið 1993 og seldist strax upp. Eftir það hefur það verið ófáanlegt og hafa verið uppi miklar áskoranir til útgefenda um að endurútgefa spilið. Spilið er nú endurútgefið með algjörlega nýjum orðaforða og í nýjum búningi. Spilið byggist sem fyrr á útsjónarsemi og ímyndunarafli þátttakenda sem eiga að búa til sannfærandi skýringar á sjaldgæfum íslenskum orðum sem þeir hafa ekki hugmynd um hvað þýða. Sá sigrar sem tekst best að blekkja mótspilara sinn.

 

Að baki nýrri útgáfu á spilinu liggur mikil vinna fjölmargra aðila síðastliðin tvö ár. Við söfnun orðanna, sem eru hátt í 2.000, var þess gætt að spilið yrði skemmtilegt en einnig að með spilinu yki fólk orðaforða sinn og skilning á íslenskri tungu. Var víða leitað fanga og fjölmargir aðilar hafa aðstoðað við orðasöfnun. Meðal annars var leitað orða hjá Íslenskri málstöð, Orðabók Háskólans og að auki í Íslenskri orðabók, Orðabók Blöndals og Orðsifjabók, íðorðasöfnum svo dæmi séu nefnd. Þá voru skáldsögur og fræðirit notadrjúg en í spilinu eru bæði gömul og ný orð allt frá því að vera ættuð úr íslenskum fornritum til nútímaslanguryrða í íslenskri tungu en öll eru þau sjaldgæf.

meira >

Bók Kristínar og Þóru Tómasdætra slær í gegn
(10.11.2010)
Stelpur!, eftir þær Kristínu og Þóru Tómasdætur, er næst mest selda bókin í flokki barna- og unglingabóka í verslunum Eymundssonar og situr þar að auki í áttunda sæti heildralista keðjunnar. Þá eru Stelpur í níunda sæti Bóksölulistans sem mælir sölu í öllum verslunum um allt land. Þá er gaman að segja frá því að Þór - Leyndarmál guðanna eftir Friðrik Erlingsson er einnig á barnabókalista Eymundssonar, svo og hinar stórskemmtilegu bækur Fróði sóði og Má ég kíkja í bleyjuna þína? meira >

Frá Aristotelesi til Ásdísar Ránar
(8.11.2010)

Út er komin hjá Veröld Nýja tilvitnanabókin í samantekt Kolbrúnar Bergþórsdóttur. Bókin inniheldur á fimmta þúsund tilvitnanir víða að úr heiminum og frá umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum fornaldar til stjarnanna í dægurheimi samtímans.

 

Tilvitnanirnar eru af ýmsum toga – úr ræðum og ritum, fagurbókmenntum og öðrum bókmenntum, íslenskum og erlendum. Þeim er raðað upp í aðgengilega efnisflokka sem auðveldar lesandanum að finna tilvitnun fyrir sérhvert tilefni.

 

Í snjallyrðunum er fólgin lífsspeki aldanna, jafnt sem kaldhæðni nútímans; í stuttri setningu er oft fólgin meiri viska, hvassari ádeila eða dýpri mannúð en í langri ræðu.

 

Nýja tilvitnanabókin er handhægt uppflettirit sem gott er að grípa til við öll tækifæri. Kolbrún Bergþórsdóttir safnaði spakyrðunum.

meira >

Biðin brátt á enda - tryggðu þér eintak í tíma
(4.11.2010)

Brátt verður biðin á enda. Eftir sautján ára bið rennur stundin upp í næstu viku. Hið sögufræga spil Fimbulfamb er á leiðinni! Spilið, sem hefur verið ófáanlegt í hálfan annan áratug, er með algjörlega nýjum orðaforða og í nýjum búningi. Það byggist sem fyrr á útsjónarsemi og ímyndunarafli þátttakenda sem eiga að búa til sannfærandi skýringar á sjaldgæfum íslenskum orðum sem þeir hafa ekki hugmynd um hvað þýða. Sá sigrar sem tekst best að blekkja mótspilara sinn.

 

Fimbulfamb kemur í takmörkuðu upplagi og verður ekki hægt að framleiða það á ný fyrir jól. Smelltu hér til að tryggðu þér Fimbulfamb á einstökum kjörum - og haltu skemmtileg jól!

meira >

Fékkstu vinning?
(4.11.2010)

Stelpur! eftir Kristínu og Þóru Tómasdóttur og Guðrún Ögmundsdóttir - Hjartað ræður för eftir þær Höllu Gunnarsdóttur eru báðar á meðal mest seldu bóka vikunnar, samkvæmt metsölulista Eymundssonar. Stelpur! er í öðru sæti barnabókalistans og ævisaga Guðrúnar sú fjórða mest selda í flokki handbóka,  fræðibóka og ævisagna. Samkvæmt því er hún rauunar mest selda ævisaga vikunnar! Báðar bækurnar ná inn á topp tíu.

 

Veraldarbækur gera það ekki endasleppt á metsölulistanum því að Hringnum lokað eftir Michael Ridpath er á topp tíu yfir innbundin skáldverk, Þór - Leyndarmál guðanna eftir Friðrik Erlingsson er meðal mest seldu barnabóka, Nýja draumaráðningabókin eftir Símon Jón er líka á listanum og að sjálfsögðu á Yrsa Sigurðardóttir eina af mest seldu kiljum vikunnar, Ösku. Þá á stóri bróðir Veraldar, Bjartur, nokkra fulltrúa á listanum og ber þar hæst Fyrirgefningu Lilju Sigurðardóttur, Sýrópsmána Eiríks Guðmunssonar og hina sívinsælu metsölubók Bókmennta- og kartöflubökufélagið.

 

Menn hafa fagnað af minna tilefni og því drögum við út þrjá fulltrúa af póstlista Veraldar sem hljóta glæsilega bókavinninga. Hinir heppnu, sem geta vitjað vinninga sinna á Bræðraborgarstíg 9, eru:

 

dorastef@bluewin.ch hlýtur Stelpur! eftir Kristínu og Þóru Tómasdætur

svandisbeta@brynjasig.com fær Hringnum lokað eftir Michael Ridpath

lea@visir.is fær Guðrúnu Ögmundsdóttur - Hjartað ræður för eftir þær Höllu Gunnarsdóttur

meira >

Risaforlagið Fischer tryggir sér Snjóblindu Ragnars Jónassonar
(30.10.2010)

Þýska forlagið Fischer Verlag, sem hefur á sínum snærum glæpahöfunda á borð við Henning Mankell, Jens Lapidus - og Yrsu Sigurðardóttur, hefur tryggt sér útgáfuréttinn á Snjóblindu, annarri bók Ragnars sem er nýkomin út hér á landi.  Fjórar af helstu bókaútgáfum Þýskalands bitust um réttinn en á endanum hreppti hið virta Fischer Verlag hnossið. Snjóblinda verður aðaltromp kiljuforlags Fischer næsta haust þegar Ísland verður heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

 

"Ég er ánægðastur með að koma Siglufirði, því sagan gerist þar, inn á heimili þýskra lesenda. Ég vona að Þjóðverjarnir verði eins hrifnir af Siglufirði og ég er," segir Ragnar í samtali við blaðið.

meira >

Síða 20 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar