- einnig samiđ um portúgalska útgáfu
(9.10.2010)
Bandaríska risaforlagiđ Macmillan tryggđi sér í gćr á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurđardóttur. Á sýningunni náđust einnig samningar viđ Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal. Aska kom út í Bretlandi nú í sumar og fékk afar lofsamlega dóma, Yrsa var m.a. sögđu „svar Íslands viđ Stieg Larsson“ í Daily Telegraph.  Sagan hefur komiđ út víđa um lönd, međal annars í Englandi, Ţýskalandi, Frakklandi, Grikklandi, Póllandi, Danmörku, Svíţjóđ, Noregi og Tékklandi, ađ viđbćttum öllum hinum spćnskumćlandi heimi. Önnur glćpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, er tilnefnd til bandarísku Shamus-glćpasagnaverđlaunanna en ţau eru veitt ár hvert fyrir bćkur međ einkaspćjurum í ađalhlutverki. Sér grefur gröf er eina ţýdda glćpasagan sem tilnefnd er til verđlaunanna í ár en samtök bandarískra glćpasagnahöfunda sem veita ţau. Upplýst verđur 15. október hver hlýtur ţau í ár. meira >

(4.10.2010)

Í tilefni af ţví ađ eintak númer 80.000 mun seljast af glćpasögu eftir Yrsu Sigurđardóttur núna á nćstunni, bráđskemmtileg bók um forvitna mús er ađ koma út og Snjóblindu Ragnars Jónassonar er spáđ mikilli velgengni drögum viđ út ţrjá heppna af póstlista Veraldar. Vinningshafarnir geta vitjađ glađningsins í höfuđstöđvum Veraldar ađ Brćđraborgarstíg 9.

karenb@tmd.is fćr nýja útgáfu af Ösk.

edda@mfa.is fćr hina splukunýju bók Má ég kíkja í bleyjuna ţína?

gudgu@simnet.is fćr Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson um leiđ og hún kemur úr prentsmiđjunni.

meira >

Skemmtileg bók um hrikalega forvitna mús!
(4.10.2010)
Má ég kíkja í bleyjuna ţína eftir Guido van Genechten er bráđskemmtileg myndabók međ flipum um hrikalega forvitna mús. Músi verđur ađ skođa allt sem hann sér, jafnvel bleyjur vina sinna. Hann kannar máliđ hjá Héra, Geitu, Voffa, Kusu, Fáki og Svínku. En ţegar ţau vilja líka fá đa sjá hvađ er í bleyjunni hans verđa ţau heldur en ekki hissa! meira >

Ekkert lát á vinsćldum Yrsu
(1.10.2010)

Í haust eru fimm ár liđin frá ţví ađ Yrsa Sigurđardóttir sendi frá sér sína fyrstu glćpasögu, Ţriđja tákniđ. Síđan hafa bćst viđ Sér grefur gröf, Aska, Auđnin og Horfđu á mig. Allar hafa ţćr selst í stórum upplögum hér á landi og setiđ í meira en 250 vikur á metsölulista Eymundssonar. Innan skamms mun eintak númer 80.000 af glćpasögu Yrsu seljast og fćr sá  heppni veglega bókargjöf frá Veröld og fyrsta eintakiđ af vćntanlegri spennusögu hennar sem kemur út í nóvember, áritađ og glóđvolgt, beint úr prentsmiđjunni.

meira >

Segja Siglfirđingar sem aldrei fara međ fleipur!
(30.09.2010)

Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson "verđur örugglega í toppbaráttunni á jólabókamarkađinum í ár," segir á vefnum Siglfirdingur.is. Á vefnum er miklu lofi hlađiđ á kápu bókarinnar og hún sögđ "algjört meistaraverk, og ţó bara smjörţefurinn af ţví sem er inni fyrir." Ţess má geta ađ Ragnar Jónasson og Ragnar Helgi Ólafsson kápuhönnuđur eru brćđrasynir og ćttađir frá Siglufirđi en bćrinn er einmitt sögusviđ Snjóblindu.

 

Á Siglufirđi finnst ung kona blóđug og hálfnakin í snjónum, nćr dauđa en lífi. Aldrađur rithöfundur deyr á grunsamlegan hátt á ćfingu hjá áhugaleikfélagi bćjarins, daginn fyrir frumsýningu. Ari Ţór Arason, nýútskrifađur lögreglumađur, reynir ađ komast ađ ţví hvađ er satt og hvađ er logiđ í samfélagi ţar sem engum virđist hćgt ađ treysta. Einangrunin, myrkriđ og snjórinn ţrengja ađ honum, óttinn nćr tökum á bćjarbúum og gleymdir glćpir fortíđar koma upp á yfirborđiđ.

meira >

(28.09.2010)

Danska bókaútgáfan Lindhardt og Ringhof hefur tryggt sér útgáfuréttinn á Auđninni eftir Yrsu Sigurđardóttur. Ţetta er fjórđa bók Yrsu sem forlagiđ tekur til útgáfu en áđur hafa komiđ út hjá ţví Ţriđja tákniđ, Sér grefur gröf og Aska. Nú ţegar hefur veriđ samiđ um útgáfu á Auđninni í Bretlandi, Ţýskalandi, Frakklandi og víđar. Bókin kom upphaflega út áriđ 2008 og varđ međal söluhćstu titla fyrir jólin ţađ ár. Dómar voru lofsamlegir og sagđi Páll Baldvin Baldvinsson međal annars ađ ţetta vćri hörkutryllir og besta bók Yrsu. Ári síđar var hún gefin út í Ţýskalandi ţar sem hún hlaut afar góđar viđtökur, var m.a. valin bók vikunnar í Spiegel. Yrsa leggur nú lokahönd á sjöttu spennusögu sína, Ég man ţig, sem kemur út nú í nóvember.

 

meira >

Áratugagömul bók í nýjum búningi slćr í gegn
(16.09.2010)
Spói eftir Ólaf Jóhann Sigurđsson er í öđru sćti barnabókalista Eymundssonar sem birtur var í vikunni. Ţá er bókin sú sjöunda mest selda ţegar allir titlar eru taldir međ. Spói kom upphaflega út áriđ 1962 en hefur nú veriđ endurútgefinn í nýjum og glćsilegum búningi. Bókina prýđa fallegar myndir af fuglum í náttúru Íslands eftir Jón Baldur Hlíđberg og henni fylgir geisladiskur međ lestri Ólafíu Hrannar Jónsdóttur á sögunni. meira >

Úlfar Ţormóđsson kynnir Ţú sem ert á himnum
(16.09.2010)

Föstudaginn 17. september kl. 17-18 kynnir Úlfar Ţormóđsson bók sína Ţú sem ert á himnum - Rýnt í bresti biblíunnar međ guđi almáttugum í Eymundsson, Skólavörđustíg. Bođiđ verđur upp á léttar veitingar.

Úlfar Ţormóđsson er eini núlifandi Íslendingurinn sem dćmdur hefur veriđ fyrir guđlast. Í bókinni fer hann Úlfar í gegnum biblíuna, bók fyrir bók, og leitast viđ ađ draga upp mynd af ţeim guđi sem ţar er ađ finna. meira >

- hefst í Borgartúni 29 ţann 18. september!
(16.09.2010)
Laugardaginn 18. september klukkan 11.00 hefst Rýmingarsala bókaútgefenda í Borgartúni 29. Ţar verđa á bođstólum ţúsundir titla af öllum stćrđum og gerđum sem eiga ţađ eitt sameiginlegt ađ vera á dúndrandi afslćtti. Á rýmingarsölunni verđur sérstaklega mikiđ úrval barnabóka en einnig glćsilegar handbćkur, magnađar spennusögur, stórbrotin skáldverk, svo fátt eitt sé nefnt. Útgefendur rýma til fyrir nýju jólabókunum - nú á allt ađ seljast. Láttu ekki happ úr hendi sleppa, mćttu í Borgartúniđ strax á laugardag ţví ađ takmarkađ upplag er af sumum titlum. meira >

Ţú sem ert á himnum - ný og áhugaverđ bók
(10.09.2010)

Ţú sem ert á himnum. Rýnt í bresti biblíunnar međ guđi almáttugum er ný bók eftir Úlfar Ţormóđsson en hann er eini núlifandi Íslendingurinn sem dćmdur hefur veriđ fyrir guđlast.

 

Í bókinni fer Úlfar í gegnum biblíuna, bók fyrir bók, og leitast viđ ađ draga upp mynd af ţeim guđi sem ţar er ađ finna. Á ferđ sinni um hina helgu bók hnýtur Úlfar um fjölmargt sérkennilegt í og kemst m.a. ađ ţví ađ sá himnafađir sem ţar er ađ finna er býsna ólíkur ţeim góđlátlega guđi sem kirkjan bođar ađ vaki yfir velferđ okkar. Inn á milli bregđur höfundurinn sér inn í nútímann og tengir innihald biblíunnar veruleika okkar og útleggingum kirkjunnar manna á bók bókanna. Bókin er skrifuđ í léttum og ađgengilegum stíl og byggir höfundurinn á biblíulestri til margra áratuga. Ţetta er bók sem fćr lesandann til ađ velta rćkilega fyrir sér ţeim grunni sem kirkjan byggir á og hvernig hann rímar viđ veruleikann og yfirbygginguna. 

meira >

Síđa 23 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar