sagði Goddur í Kiljunni um Svavar Guðnason
(25.02.2010)

"Hún er flott," sagði Egill Helgason í upphafi samtals þeirra Godds, prófessors við Listaháskólann um bókina Svavar Guðnason eftir Kristínu G. Guðnadóttur í Kiljunni í gærkvöldi. Goddur tók hann á orðinu og sagði: "Hún er mjög flott, hún er alveg glæsileg." Skemmst er frá því að segja að hann hlóð bókina slíku lofi að annað eins hefur tæpast heyrst. "Það er varla hægt að ímynda sér að það sé hægt að gera honum [Svavari Guðnasyni] veglegri minnisvarða. Hún er vel skrifuð, Kristín er með látlausan stíl, bókin er afar vel upp sett og staðið að þessu með algjörum sóma. Hún er eins og bækur geta flottastar orðið," sagði hann og hældi að auki prentun þeirra Oddaverja, ljósmyndum af málverkunum, útlitshönnun bókarinnar og sagði gífurlegan feng að henni. Egill hlýddi andaktugur á lofræðu prófessorsins en sagði síðan í lokin: "Glæsilegur minnisvarði."

meira >

Tilnefndur af Englandsdeild IBBY á heiðurslista ráðsins
(25.02.2010)
Englandsdeild Alþjóða barnabókaráðsins (IBBY) hefur tilnefnt skáldsögu Friðriks Erlingssonar, Fish in the Sky, á heiðurslista ráðsins árið 2010 fyrir þýðingar. Bókin kom út í Englandi árið 2008, tíu árum eftir að hún var gefin út á Íslandi undir heitinu Góða ferð, Sveinn Ólafsson. Friðrik Erlingsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1992 fyrir Benjamín dúfu og hefur hún verið gefin út víða um lönd, m.a. í Englandi árið 2006. Síðasta bók Friðriks, Þór – í Heljargreipum, kom út árið 2008 hjá Veröld og hefur útgáfurétturinn á henni þegar verið seldur til Svíþjóðar.

Ensk þýðing Friðriks Erlingssonar á Góða ferð, Sveinn Ólafsson er tileinkuð minningu Bernards Scudder, sem lést skömmu áður en bókin kom út á Englandi, en Scudder þýddi meðal annars Benjamín dúfu á ensku og hafði Friðrik áætlað samstarf við Scudder um þýðingu bókarinnar, en svo fór að þýðingin var unnin í samstarfi við Lucy Cuthew, ritstjóra Friðriks hjá útgefanda hans í Bretlandi, Meadowside Children’s Books. meira >

(24.02.2010)

Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur var ein mest selda skáldsaga liðins árs og hlaut frábæra dóma gagnrýnenda. Úlfhildur Dagsdóttir fullyrit á www.bokmenntir.is að þetta væri „án efa besta bók Yrsu til þessa.“ Katrín Jakobsdóttir tók í sama streng á Eyjunni og taldi þetta líklega bestu sögu Yrsu hingað til. Þá lauk Páll Baldvin Baldvinsson miklu lofsorði á plott bókarinnar sem hann sagði „mjög vel hugsað“.

 

Þóra Guðmundsdóttir lögmaður reynir að fá endurupptekið mál fatlaðs manns sem vistaður er á réttargeðdeildinni á Sogni fyrir að kveikja í sambýli með skelfilegum afleiðingum. Ungum útvarpsmanni berast torkennileg skilaboð og ógnvekjandi símtöl. Og látin stúlka sækir í að standa við fyrirheit um að passa lítinn dreng. Saman fléttast þessir þræðir í glæpasögu sem fær hárin til að rísa.

meira >

Runólfi Ágústssyni hrósað í Kiljunni
(18.02.2010)

Kolbrún Bergþórsdóttir lýsti mikilli ánægju með bók Runólfs Ágústssonar, Enginn ræður för, í Kiljunni í gærkvöldi. Henni fannst gaman að lesa hana, höfundurinn áhugaverður og mikill tilfinningamaður. Hún hrósaði Runólfi fyrir að segja sláandi hluti í stuttum texta og voru þau Egill Helgason sammála um að hann væri vel skrifandi og bókin væri skemmtilega skrifuð.

 

Runólfur Ágústsson fékk mikið lof fyrir reisubók sína um Ástralíu fyrir síðustu jól. Einar Falur Ingólfsson gaf bókinni þrjár stjörnur. Gígja Hólmgeirsdóttir birti dóm á Miðjunni þar sem sagði: "Í heild er þessi ferðasaga áhugaverð, fræðandi og snyrtilega skrifuð.

meira >

(4.02.2010)
Allir sem skráðir eru á póstlista Veraldar, Veröldina okkar, fá bókina Strákurinn í röndóttu náttfötunum á Lagersölu forlaganna í Borgartúni 29 gegn framvísun á útprenti af tölvupósti sem sendur hefur verið á listann eða á þessari frétt á heimasíðunni. Strákurinn í röndóttu náttfötunum er stórkostleg saga sem gerð var vinsæl kvikmynd eftir. Lagersölu forlaganna lýkur nú um helgina svo það er ekki eftir neinu að bíða! Nýttu ávísunina og gerðu góð kaup. Þess má geta að allir sem versla fá bók að gjöf og ef þú kaupir fyrir meira en 10.000 krónur færðu að auki glæsilega handbók í kaupbæti, Topp tíu. meira >

(22.01.2010)
Bjartur & Veröld gefur stórvirkið Svavar Guðnason til stuðnings Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni. Þetta er hluti af átakinu "Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí". Fjögur forlög gefa í samvinnu við Eymundsson sjö ný stórvirki á sviði útgáfu að söluverðmæti um 4,5 milljónir króna til stuðnings rústabjörgunarsveit Landsbjargar við að endurnýja búnað sem sveitin skildi eftir á Haítí til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu. Stórvirkin verða seld í Eymundsson um allt land nú um helgina og er þetta upphaf átaksins „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“.  Allir fjármunir sem koma inn fyrir sölu á þessum bókum renna óskertir til að endurnýja búnað sveitarinnar. Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta 10% af allri sölu íslenskra barnabóka í verslunum sínum þessa daga við söfnunarupphæðina. Útgáfufélögin eru auk Bjarts & Veraldar, Forlagið, Opna og Uppheimar. Íslenska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að greiða fimm milljónir fyrir þann búnað sem rústabjörgunarsveit Landsbjargar skildi eftir en markmiðið er að bókaþjóðin bjargi því sem upp á vantar. Félagar í rústabjörgunarsveit Landsbjargar hleypa átakinu af stað í Eymundsson Austurstræti kl. 14 í dag, föstudaginn 22. janúar. Átakið stendur til mánudagins 25. janúar. meira >

Ekkert lát á útrás Yrsu Sigurðardóttur
(22.01.2010)

Réttindastofa Bjarts & Veraldar hefur gengið frá samningum við hollenska forlagið The House of Books um útgáfu á Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þar með er ljóst að bókin, sem er önnur glæpasaga Yrsu, kemur út á að minnsta kosti sautján tungumálum. Sér grefur gröf var fyrsta verk hennar sem komst inn á erlenda metsölulista, auk þess sem viðtökur hafa verið sérstaklega góðar. Má þar nefna að breska stórblaðið Times sagði í umsögn um bókina að Yrsa væri án efa í hópi fremstu glæpasagnahöfunda Norðurlanda og Independent að þetta væri ein besta glæpasagan á markaðnum fyrir nýliðin jól.

 

The House of Books gefur meðal annars út höfunda á borð við Clive Cussler, Tami Hoag, Tess Gerritsen, Andy McNab, Sophia Kinsella og John Grogan.

 

meira >

á lagersölu forlaganna í Borgartúni 29
(21.01.2010)

Lagersala forlaganna er í fullum gangi í Borgartúni 29. Þar bjóðast um tvö þúsund titlar frá tuttugu bókaútgáfum með allt að 90% afslætti. Og þeir sem versla fyrir 10.000 krónur eða meira fá bókina Topp tíu að gjöf, hvorki meira né minna. Lagersalan er opin alla daga frá kl. 11-18.

 

Bækur nýliðinnar jólavertíðar eru afar áberandi og því hægt að gera ótrúlega góð kaup. Takmarkað upplag er af fjölda titla en þarna ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi; myndskreyttar barnabækur, magnþrungnar skáldsögur, vegleg fræðirit, áhugaverðar ævisögur og glæsilegar handbækur, svo nokkuð sé nefnt. Og þarna er hægt að afgreiða afmælisgjafir ársins á einu bretti fyrir lítinn pening!

meira >

(15.01.2010)
Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur var nýlega gefin út í kilju í Noregi og er það þriðja bók hennar á norsku. Á kápu er vitnað til umsagnar Bergens Tidende þar sem segir að þetta sé "þétt og vel skrifuð saga, með svörtum húmor og kemur lesandanum hvað eftir annað á óvart." Bækur Yrsu koma nú út víðs vegar um lönd, allt frá Tævan til Bandaríkjanna. Umsagnir hafa verið afar lofsamlegar og er skemmst að minnast þess að Spiegel valdi Auðnina bók vikunnar í desember síðastliðnum og Sér grefur gröf var ein besta glæpasagan á breskum bókamarkaði nú fyrir jólin, að mati Independent. meira >

Hefst á morgun í Borgartúni 29
(15.01.2010)
Laugardaginn 16. janúar kl. 11 hefst lagersala hátt í tuttugu bókaforlaga í Borgartúni 29. Þarna verða á boðstólum um tvö þúsund titlar af öllum stærðum og gerðum á allt að 90% afslætti! Bækur nýliðinnar jólavertíðar verða afar áberandi og því hægt að gera ótrúlega góð kaup. Þeir sem versla fyrir 10.000 krónur eða meira fá bókina Topp tíu að gjöf. Takmarkað upplag er af fjölda titla svo það er vissara að mæta snemma! Þarna ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi; myndskreyttar barnabækur, magnþrungnar skáldsögur, vegleg fræðirit, áhugaverðar ævisögur og glæsilegar handbækur, svo nokkuð sé nefnt. Láttu ekki happ úr hendi sleppa og mættu strax á morgun! meira >

Síða 27 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar