

Horfđu á mig eftir Yrsu Sigurđardóttur stekkur beint í fjórđa sćti skáldverkalista Eymundssonar sem birtur er í dag og situr ţar ađ auki í sjötta sćti ađallistans. Umsátriđ eftir Styrmi Gunnarsson er fjórđa mest selda bókin í flokki handbóka, frćđibóka og ćvisagna og situr í tíunda sćti ađallistans. Hins vegar er Hjartsláttur séra Hjálmars Jónssonar uppseldur en ný prentun er vćntanleg fyrir helgi. Ţá er ekki ónýtt ađ sjá tvćr bćkur frá stóra bróđur Veraldar, Bjarti, á ađallista Eymundssonar en ţar fara kappar tveir, Stieg Larsson međ Loftkastalann sem hrundi í ţriđja sćti og Dan Brown međ Týnda tákniđ í ţví áttunda. Harmur englanna eftir Jón Kalman er í sjöunda sćti skáldverkalistans, Góđi elskhuginn eftir Steinunni Sigurđardóttur í ţví tíunda og Fćreyskur dansur Huldars Breiđfjörđ í ţví tólfta.
meira >
"Ég fann ţađ eftir fyrstu síđurnar ađ ţessi bók yrđi lesin í einum rykk," segir Bergur Ebbi Benediktsson á www.midjan.is um Falska nótu eftir Ragnar Jónasson. Hann heldur síđan áfram: "Sú tilfinning er góđ og ber vott um ađ strax á fyrstu síđum takist höfundi ađ vekja upp ţađ mikla forvitni ađ mađur verđi ađ vita lausn gátunnar innan nokkura klukkustunda. Ţađ ţýđir ekki ađ bíđa til morguns." Hann líkir lestri bókarinnar viđ rússíbanareiđ í myrkri ţar sem lesandinn situr í öruggum höndum höfundarins.
Á dögunum sagđi Hrafn Jökulsson, einn beittasti gagnrýnandi landsins, ađ Ragnar gefi ágćt fyrirheit međ ţessari bók. Hann sýni ađ hann kunni ađ flétta söguţráđ og byggja sögu, og ţví sé full ástćđa til ađ gefa honum gaum í framtíđinni. Fléttan sé haganlega gerđ, höfundurinn valhoppi fram og aftur í tíma og rúmi, og takist ágćtlega upp. Sagan sé prýđilega uppbyggđ og um margt lagleg frumraun.
meira >

Kristín G. Guđnadóttir er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverđlaunanna fyrir stórvirki sitt um Svavar Guđnason. Ţetta var upplýst viđ hátíđlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Međal annarra bóka sem hlutu tilnefningu í flokki bóka almenns efnis var Mynd af Ragnari í Smára eftir Jón Karl Helgason. Ţá var skáldsagan Góđi elskhuginn eftir Steinunni Sigurđardóttur tilnefnd í flokki fagurbókmennta. Veröld óskar ţeim innilega til hamingju međ verđskuldađa viđurkenningu.
Bók Kristínar um Svavar Guđnason hefur vakiđ mikla hrifningu en Páll Baldvin Baldvinsson sagđi í Kiljunni ađ ţetta vćri hvorki meira né minna en "tímamótaverk í rannsóknum á íslenskri myndlistarsögu." Egill Helgason var á sama máli og fannst ţetta "ótrúlega glćsilegt verk".
meira >
Yrsa Sigurđardóttir hefur nú sent frá sér sína bestu bók, ađ mati Úlfhildar Dagsdóttur. Umsátriđ eftir Styrmi Gunnarsson fer af stađ međ miklum látum og hefur skekiđ samfélagiđ undanfarna daga. Fjögurra stjörnu ćvisaga Hjálmars Jónssonar selst í bílförmum um land allt. Menn hafa fagnađ af minna tilefni og ţví drögum viđ út ţrjá heppna af póstlista Veraldar sem geta vitjađ vinninga sinna á Brćđraborgarstíg 9.
Netföng ţeirra eru:
lolo@fjarhitun.is sem hlýtur Horfđu á mig eftir Yrsu Sigurđardóttur
bibs@simnet.is sem hlýtur Umsátriđ eftir Styrmi Gunnarsson
svanurmg@mi.is sem hlýtur Hjartslátt séra Hjálmars
meira >




Í dag kemur út fimmta glćpasaga Yrsu Sigurđardóttur og nefnist hún Horfđu á mig. Fyrsta upplag bókarinnar er 10.000 eintök, hvorki meira né minna! Ţóra Guđmundsdóttir lögmađur reynir ađ fá endurupptekiđ mál fatlađs manns sem vistađur er á réttargeđdeildinni á Sogni fyrir ađ kveikja í sambýli međ skelfilegum afleiđingum. Ungum útvarpsmanni berast torkennileg skilabođ og ógnvekjandi símtöl. Og látin stúlka sćkir í ađ standa viđ fyrirheit um ađ passa lítinn dreng. Saman fléttast ţessir ţrćđir í glćpasögu sem fćr hárin til ađ rísa.
Gagnrýnendur heimspressunnar hafa á liđnum árum hlađiđ Yrsu Sigurđardóttur lofi og sagt ađ hún sé tvímćlalaust í hópi fremstu glćpasagnahöfunda Norđurlanda (The Times); Ţóra er uppáhalds kvenspćjari annars (Guardian) og "ţađ er ekki oft sem mađur rekst á glćpasögu sem er hvorttveggja í senn hrollvekjandi og fyndin - og ţađ er sannarlega ánćgjuleg blanda." (Spectator).
meira >
Í dag kemur Horfđu á mig eftir Yrsu Sigurđaróttur út og er fyrsta prentun 10.000 eintök. Ţegar viđ bćtist ađ ţjóđfélagiđ er ađ fara á annan endann út af nýjum upplýsingum í bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátrinu, og Hjartsláttur séra Hjálmars verđur hrađari og hrađari - ef miđa á viđ fjölda bók sem fer af lager - ţá er full ástćđa til ađ fagna. Viđ höfum dregiđ út ţrjú netföng af póstlista Veraldar. Hinir heppnu geta nálgast vinningana hjá Veröld á Brćđraborgarstíg 9 en ţeir eru:
eirikurh@islandia.is sem fćr Umsátriđ eftir Styrmi Gunnarsson
elfa@fsa.is sem fćr Horfđu á mig eftir Yrsu Sigurđardóttur
asdisester@centrum.is sem fćr Hjartslátt eftir Hjálmar Jónsson
Síđa 30 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

