
Dóttir mćđra minna eftir Sindra Freysson er "stór bók um mikil örlög", sagđi Auđur Ađalsteinsdóttir, gagnrýnandi Víđsjár í Ríkisútvarpinu í gćr. Bókin er "skemmtileg aflestrar og höfundur heldur manni viđ efniđ allan tímann. ... Kristín Eva kemur á óvart út alla bókina, er alls ekki öll ţar sem hún er séđ," sagđi Auđur og bćtti viđ ađ Sindra hefđi tekist "ađ skapa afskaplega bitastćđa skáldsögu." Hún sagđi enn fremur ađ margar lýsingar vćru ţannig ađ ţćr hreinlega lifnuđu viđ líkt og kvikmynd í huga lesandans. Hún er ţannig sammála Jóni Yngva Jóhannssyni en hann sagđi ađ Dóttir mćđra minna vćri "áhrifamikil örlagasaga og flottur og ţroskađur skáldskapur. Hún lýsir ţroska ungrar konu sem kemur breytt og sterk út úr nćr óbćrilegum ađstćđum á sannfćrandi hátt." Og gaf henni hálfa fjórđu stjörnu. Hér má síđan sjá skáldsögu Sindra á einni mínútu og fimmtán sekúndum í túlkun Jóns Egils Bergţórssonar.
meira >
Bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátriđ - Fall Íslands og endurreisn, kemur út á föstudag. Eftirvćnting lesenda er mikil, enda er hér um ađ rćđa einstakt verk um ţađ sem gerđist á bak viđ tjöldin í ađdraganda ţess ađ Ísland hrundi.
meira >
Dóttir mćđra minna eftir Sindra Freysson hefur vakiđ verđskuldađa athygli í jólabókaflóđinu. Sagan er "hvort tveggja í senn, áhrifamikil örlagasaga og flottur og ţroskađur skáldskapur. Hún lýsir ţroska ungrar konu sem kemur breytt og sterk út úr nćr óbćrilegum ađstćđum á sannfćrandi hátt," sagđi Jón Yngvi Jóhannsson í dómi um bókina á Pressunni og gaf Dóttur mćđra minna ţrjár og hálfa stjörnu. Myndband Jóns Egils Bergţórssonar kvikmyndagerđarmanns upp úr bókinni á ekki síđur hrós skiliđ en ţađ getur ađ líta hér. Ţarna dunar dansinn á Ísafirđi viđ hernám Íslands, skipin ösla úfinn sjó til Englands, London brennur - og sautján ára stúlka dúsir í Holloway-fangelsi ţar í borg og veit ekki hvort eđa hvenćr hún mun losna. Sannarlega magnađ myndband viđ stórbrotna sögu – heil skáldsaga á einni mínútu og fimmtán sekúndum!
meira >

"Saga ţessara íslensku alţýđukvenna lćtur vart nokkurn, sem hana les, ósnortinn. Ţetta er örlagasaga, sem dregur upp mynd af átakanlegu hlutskipti íslenskrar alţýđu, og ţá sérstaklega kvenna, allt fram yfir miđja 20. öld," segir Ólafur Arnarson, gagnrýnandi Pressunnar, um skáldsögu Bjarna Harđarsonar, Svo skal dansa. Ţar rekur Bjarni sögu formćđra sinna frá síđari hluta 19. aldar og langt fram eftir ţeirri 20. Allar áttu ţćr ţađ sammerkt ađ ţurfa ađ gefa frá sér börn. Ólafur gefur Bjarna ţrjár stjörnur af fjórum mögulegum og er ţar á svipuđum slóđum og gagnrýnandi Fréttablađsins, Kolbeinn Óttarsson Proppé, sem skenkti bókinni fjórar stjörnur af fimm og sagđi ţetta "heillandi bók."
meira >

Hjálmar Jónsson er "međ skemmtilegri mönnum eins og endurminningar hans eru til vitnis um," segir Hrafn Jökulsson í dómi um ćvisögu hans, Hjartslátt, í Viđskiptablađinu og bćtir viđ: "Ţá er hann pennfćr í betra lagi, hjartahlýr og elskulegur, svo úr verđur hin ágćtasta bók." Ţarna er Hrafn á svipuđum slóđum og gagnrýnandi Pressunnar, Hanna Brynhildur Jónsdóttir, sem gaf ćvisögu séra Hjálmars fjórar stjörnur, hvorki meira né minna, og mćlti hiklaust međ bókinni viđ fólk á öllum aldri.
Í lok umsagnar sinnar skrifar Hrafn: "Ţađ er ánćgjulegt einkenni á frásögn séra Hjálmars hve umtalsgóđur og jákvćđur hann er. Ađ auki hefur hann nćmt auga fyrir hinu spaugilega og bókin er ríkulega krydduđ kveđskap, enda séra Hjálmar einhver besti vísnasmiđur landsins."
meira >
Umsátriđ - Fall Íslands og endurreisn eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóra Morgunblađsins, er nú á lokametrunum í Prentsmiđjunni Odda. Hún er vćntanleg í síđari hluta vikunnar og er óhćtt ađ segja ađ eftirvćntingin sé mikil.
Í ţessari einstöku bók varpar Styrmir nýju ljósi á fall Íslands og ađdraganda ţess. Hann rekur atburđarásina sem leiddi til gjaldţrots bankanna ţar sem fjölmargt nýtt og óvćnt kemur í ljós. Hér segir frá dramatískum neyđarfundum sem haldnir voru fjarri kastljósi fjölmiđla, sögulegum símtölum, sviptingum á bak viđ tjöldin í heimi stjórnmála og banka og ómótstćđilegum tilbođum um “koss dauđans”. Ţá fjallar hann um ţađ hvernig eigi ađ reisa Ísland aftur viđ og byggja ţađ upp til framtíđar.
Styrmir Gunnarsson hefur um áratuga skeiđ haft beinan ađgang ađ ráđamönnum í stjórnmálum og atvinnulífi. Hann styđst einnig viđ fjölmörg óbirt gögn sem hvergi hefur veriđ vitnađ til áđur. Ţá eru í bókinni stórmerkilegar upplýsingar úr innsta hring um tildrög ţess ađ Ísland hrundi. Umsátriđ er ómissandi fyrir alla ţá sem vilja komast ađ ţví hvađ gerđist á bak viđ tjöldin á einum mestu örlagatímum Íslandssögunnar.
meira >

Í lok nćstu viku er von á bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátriđ - Fall Íslands og endurreisn, og glćpaögu Yrsu Sigurđardóttur, Horfđu á mig, úr Prentsmiđjunni Odda. Vegna ítrekađra fyrirspurna skal tekiđ fram ađ Oddaverjar sverja og sárt viđ leggja ađ ţeir muni gera allt sem í mannlegu valdi stendur til ađ tryggja ađ bćkurnar verđi komnar á markađ fyrir nćstu helgi.
Marteinn Jónasson, yfirmađur stórviđskipta, Björn Svanur Víđisson viđskiptastjóri á risaupplagasviđi og Díana Sigurfinnsdóttir ađalforstöđumađur prentráđgjafasviđs hafa öll stađfest ţetta í samtölum viđ tíđindamenn Veraldarvefjarins. Ţá mun Marteinn sjálfur persónulega hafa smurt vélarnar svo ekkert fćri úrskeiđis en hann tekur líka fram ađ ţađ sé hćgara sagt en gert ađ koma tíu ţúsund eintökum af bók Yrsu í gegnum prentverkiđ, enda fátítt ađ svo stórt upplag sé prentađ hér á landi. Ţá sé upplagiđ á bók Styrmis í stćrra lagi - en viđráđanlegt. Bjarni Ţorsteinsson útgáfustjóri Veraldar segir ađ hann hafi aldrei reynt Oddaverja ađ ţví ađ ganga á bak orđa sinna og ţví trúi hann ekki öđru en ađ báđir titlar verđi komnir í hús fyrir ađra helgi.
meira >
"Hjartsláttur einkennist af mjög svo skemmtilegum frásögnum úr lífi séra Hjálmars og eru ţćr líflegar og glettnin aldrei langt undan. Hún er afar vel skrifuđ, hvorki of stutt né of löng og stundum var hreinlega erfitt ađ leggja hana frá sér, svo skemmtileg var hún," segir Hanna Brynhildur Jónsdóttir, gagnrýnandi Pressunnar, í dómi um ćvisögu séra Hjálmars Jónssonar. Hún mćlir "hiklaust međ ţessari bók fyrir fólk á öllum aldri" og gefur henni fjórar stjörnur. Ţađ er ţví óhćtt ađ segja ađ klerkur taki bókamarkađinn međ trompi ţví ađ ćvisaga hans fór beint í efsta sćti metsölulista Bókabúđar Máls og menningar í liđinni viku - daginn eftir útgáfudag - og fćr nú fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda Pressunnar.
Hjálmar er eftirsóttur upplesari nú fyrir jólin og er um ţessar mundir á mikilli yfirreiđ yfir landiđ, má ţar nefna ađ hann var á Blönduósi um helgina og Akranesi í gćr. Dóm Hönnu Brynhildar má lesa í heild sinni hér.
meira >
Hjartsláttur séra Hjálmars Jónssonar er mest selda bókin í Bókabúđ Máls og menningar samkvćmt metsölulista verslunarinnar sem birtur er í dag. Í öđru sćti eru Svörtuloft Arnaldar Indriđasonar. Árangur Hjálmars er ţeim mun athyglisverđari ţegar á ţađ er litiđ ađ bókin kom út síđasta daginn sem salan var mćld. Ţađ má ţví fastlega reikna međ Hjartslćtti í toppbaráttunni á metsölulistum ársins.
Hjálmar hefur lifađ dramatísku lífi. Bernska hans í Biskupstungum og Eyjafirđi var full af andstćđum; ţar voru bćđi einstćđingar á örreitiskotum og skrautleg athafnaskáld, fađir hans flugkappi menntađur vestur í Ameríku en móđir hans sveitastúlka sem undi sér hvergi betur en í túninu heima. Vinnubrögđin voru eins og aftan úr fornöld en síđan var ţeim kippt inn í vélvćđingu nútímans.
Hjálmar lýsir í
ćvisögu sinni, sem nefnist Hjartsláttur, glímunni viđ Guđ, prestskap í
Húnavatnssýslu, Skagafirđi og í Reykjavík, fjallar um eftirminnileg ár
á Alţingi og segir frá ýmsu sem ţar gerđist ađ tjaldabaki. Ţá greinir
hann frá tildrögum ţess ađ hann sagđi skiliđ viđ stjórnmálin og gerđist
dómkirkjuprestur. Og ađ sjálfsögđu fylgir međ ógrynni af landsfrćgum
vísum hans.
Saga Hjálmars Jónssonar er full af húmor og gleđi
en hann hefur líka kynnst myrkari hliđum tilverunnar, bćđi í lífi og
starfi. Hrífandi bók sem vekur lesandann til umhugsunar um hinstu rök
tilverunnar – en kveikir líka bros.
meira >
Síđa 32 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

