segir Jón Yngvi Jóhannsson um Dóttur mćđra minna
(5.11.2009)
"Dóttir mćđra minna er hvort tveggja í senn, áhrifamikil örlagasaga og flottur og ţroskađur skáldskapur. Hún lýsir ţroska ungrar konu sem kemur breytt og sterk út úr nćr óbćrilegum ađstćđum á sannfćrandi hátt," segir Jón Yngvi Jóhannsson í dómi um Dóttir mćđra minna eftir Sindra Freysson á Pressunni. Hann gefur bókinni hálfa fjórđu stjörnu. Jón Yngvi er afar hrifinn af sögumanni bókarinnar og segir: "Kristín Eva er heillandi sögumađur, hún setur sig óhikađ í spor mćđra sinna, og í gegnum sögur ţeirra og eigin reynslu ljúkast henni upp nýir heimar.  Ţótt hún sé kotroskin og stundum háfleyg sem sögumađur er hún líka sautján ára og forvitin um ţann fullorđinsheim sem hún hefur ţegar fengiđ forsmekkinn af." meira >

segir Falska nótu gefa ágćt fyrirheit
(5.11.2009)

Einn beittasti gagnrýnandi landsins, Hrafn Jökulsson, gefur Ragnari Jónassyni fína umsögn í Viđskiptablađinu í dag. Hann segir ađ Ragnar gefi ágćt fyrirheit međ ţessari bók. Hann sýni ađ hann kunni ađ flétta söguţráđ og byggja sögu, og ţví sé full ástćđa til ađ gefa honum gaum í framtíđinni. Fléttan sé haganlega gerđ, höfundurinn valhoppi fram og aftur í tíma og rúmi, og takist ágćtlega upp. Sagan sé prýđilega uppbyggđ og um margt lagleg frumraun.

meira >

(4.11.2009)

Nú streyma bćkurnar á markađ hjá Veröld. Ćvisaga Hjálmars Jónssonar kemur út á morgun, fimmtudag, Merkiskonur sögunnar eftir Kolbrúnu S. Ingólfsdóttur fer í verslanir í dag, skáldsögur Bjarna Harđarsonar, Svo skal dansa, og Sindra Freyssonar, Dóttir mćđra minna, hafa mćlst frábćrlega fyrir og glćpasaga Ragnars Jónassonar er "ágćtis byrjun" eins og gagnrýnandi komst ađ orđi og vísađi ţar í Sigur Rós. Menn hafa dregiđ út ánćgđa vinningshafa af minna tilefni. Ţrír heppnir fá bók ađ gjöf og eru netföng ţeirra eftirfarandi:

 

olinak@vortex.is hlýtur Hjartslátt séra Hjálmas Jónssonar

romana@nett.is fćr Merkiskonur sögunnar eftir Kolbrúnu S. Ingólfsdóttur

sigr@simnet.is fćr Svo skal dansa eftir Bjarna Harđarson

 

Hinir heppnu geta vitjađ vinninganna í höfuđstöđvum Veraldar ađ Brćđraborgarstíg 9 í Reykjavík.

meira >

í Bókabúđ Máls og menningar, fimmtudaginn 5. nóvember
(4.11.2009)

Á morgun, fimmtudaginn 5. nóvember, fögnum útgáfu ćvisögu Hjálmars Jónssonar í Bókabúđ Máls og menningar, Laugavegi 18 kl. 17.00. Hjálmar hefur lifađ dramatísku lífi. Bernska hans í Biskupstungum og Eyjafirđi var full af andstćđum; ţar voru bćđi einstćđingar á örreitiskotum og skrautleg athafnaskáld, fađir hans flugkappi menntađur vestur í Ameríku en móđir hans sveitastúlka sem undi sér hvergi betur en í túninu heima. Vinnubrögđin voru eins og aftan úr fornöld en síđan var ţeim kippt inn í vélvćđingu nútímans.


Hjálmar lýsir í ćvisögu sinni, sem nefnist Hjartsláttur, glímunni viđ Guđ, prestskap í Húnavatnssýslu, Skagafirđi og í Reykjavík, fjallar um eftirminnileg ár á Alţingi og segir frá ýmsu sem ţar gerđist ađ tjaldabaki. Ţá greinir hann frá tildrögum ţess ađ hann sagđi skiliđ viđ stjórnmálin og gerđist dómkirkjuprestur. Og ađ sjálfsögđu fylgir međ ógrynni af landsfrćgum vísum hans.


Saga Hjálmars Jónssonar er full af húmor og gleđi en hann hefur líka kynnst myrkari hliđum tilverunnar, bćđi í lífi og starfi. Hrífandi bók sem vekur lesandann til umhugsunar um hinstu rök tilverunnar – en kveikir líka bros.

 

Útgáfufagnađurinn er öllum opinn og hefst, eins og áđur segir, kl. 17 á morgun, fimmtudag.

meira >

Á erindi viđ konur á öllum aldri!
(4.11.2009)
Bókaforlagiđ Veröld hefur gefiđ út bókina Merkiskonur sögunnar eftir Kolbrúnu S. Ingólfsdóttur. Mannkynssagan hefur ađallega snúist um Evrópu og einkum og sér í lagi karlmenn. Í ţessari stórfróđlegu bók er fjallađ um 33 konur í veraldar- og Íslandssögunni sem settu mark á samtíđ sína – og ţar međ söguna – og létu ekki hlut sinn svo auđveldlega ţegar kom ađ breytingum og völdum.

Sumar af söguhetjum ţessarar bókar eru vel ţekktar, svo sem Kleópatra, sem var síđasti faraóinn, og Elísabet I. sem lagđi grunninn ađ heimsveldi Breta. Fćrri hafa vitađ um konur á borđ viđ Hatsepút, fyrstu konuna sem ríkti sem ţjóđhöfđingi í Egyptalandi, og Yehonölu keisaraynju, en hún er ein valdamesta konan í sögu Kína.

Hér segir frá merkiskonum sögunnar frá örófi alda til loka 19. aldar er tími hinnar eiginlegu kvennabaráttu gekk í garđ. Kolbrún Ingólfsdóttir bregđur hér lifandi ljósi á kvenskörunga fyrri tíđar í áhugaverđri bók sem á brýnt erindi viđ konur á öllum aldri.
meira >

- og finnst hún skemmtileg aflestrar
(30.10.2009)
"Ekki skal ég endilega segja um hvort bćkur Ragnars Jónassonar muni ná álíka ćstum vinsćldum [og Ágćtis byrjun Sigur Rósar], en fyrsta glćpasaga hans, Fölsk nóta, er sannarlega ágćtis byrjun og ţađ er erfitt ađ forđast frasann ađ hér hafi bćst viđ nýr tónn í íslenska spennusagnaflóru," segir Úlfhildur Dagsdóttir í umsögn sinni á www.bokmenntir.is. Hún ritar enn fremur: "sagan er skemmtileg aflestrar, flakk fram og til baka í tíma gerir sig vel og sú mynd sem er dregin upp af fremur einmana ungum manni er áhugaverđ og skýr; hér er ekki farin sú leiđ ađ velta sér uppúr ýktum tilfinningum heldur er áherslan á ađ sýna hvernig áfall sem munađarleysiđ og dularfullt hvarf föđurins hefur í för međ sér, hefur áhrif á einstakling og tilveru hans" og bćtir viđ ađ sagan sverji sig í ćtt viđ fyrri bćkur Agöthu Christie "sem eru einmitt ađ stórum hluta til persónustúdíur - og gefa sér ađ allir hafi alltaf eitthvađ ađ fela." Kannski ţađ viđri vel til loftárása hjá Ragnari ţessa dagana, eins og hjá Sigur Rós? meira >

- segir Hrafn Jökulsson um bók Eiríks Bergmanns
(29.10.2009)
"Eiríkur Bergmann hefur tekiđ saman ţarfa og upplýsandi bók. Texti hans er lipur, gagnorđur og jafnvel skemmtilegur, sem verđur ađ teljast nokkurt afrek," segir Hrafn Jökulsson í ýtarlegum dómi um bók hans Frá Evróvisjón til Evru í Viđskiptablađinu í dag. Hann ritar ađ Eiríkur gjörţekki umfjöllunarefniđ og hafi lengi veriđ ötull talsmađur ađildar Íslands ađ Evrópusambandinu. "Bók hans er hinsvegar ekkert trúđbođsrit, heldur mjög gagnlegt og um margt stórfróđlegt yfirlit um sögu Evrópusambandsins og ţróun á gangvirki sem verđur stöđugt flóknara eftir ţví sem ađildarríkjum fjölgar." Hrafn segir ađ bók Eiríks sé virđingarvert innlegg í umrćđuna um Evrópumál, tiltekur sérstaklega kafla um sjávarútveg og landbúnađ og lýkur umsögn sinni međ ţeim orđum ađ Eiríkur eigi "hrós skiliđ fyrir upplýsandi og greinargóđa samantekt um ţađ fyrirbćri sem allir verđa ađ kynna sér, hvort sem okkur líkar ţađ betur eđa verr." meira >

eftir Sindra Freysson
(28.10.2009)

Bókaforlagiđ Veröld hefur gefiđ út skáldsöguna Dóttir mćđra minna eftir Sindra Freysson.
Dansinn dunar á Ísafirđi ţegar hermenn međ alvćpni ganga ţar á land á bjartri sumarnótt áriđ 1941. Ţeir stilla upp vélbyssum og handtaka sjö heimamenn. Ţeirra á međal er Kristín Eva, 17 ára stúlka, og móđir hennar. Síđar um nóttina eru ţćr fluttar ásamt hinum föngunum til stríđshrjáđs Englands, sakađar um ađ vera óvinir ríkisins.


Ţar bíđur ţeirra fangelsi um óvissa tíđ. Í prísundinni spinnur Kristín Eva áhrifamikla og átakanlega sögu kynmóđur sinnar; konunnar sem gaf hana forđum. Og utan múranna geisar styrjöld – rétt eins og innan ţeirra.


Sindri Freysson ritar hér kröftuga sögu um innilokađar konur, glćpi sem aldrei fyrnast og sakleysi sem glatast og verđur aldrei endurheimt. Sindri fékk Bókmennataverđlaun Halldórs Laxness áriđ 1998 og síđasta skáldsaga hans, Flóttinn, hlaut einróma lof gagnrýnenda.

meira >

(28.10.2009)

Hjá Veröld gefast nú ýmis tćkifćri til ađ gleđjast. Svo skal dansa eftir Bjarna Harđarson rauk beint í annađ sćti metsölulista Bókabúđar Máls og menningar á dögunum, Enginn rćđur för eftir Runólf Ágústsson lék sama leik á handbókalista Eymundssonar í dag og Dóttir mćđra minna eftir Sindra Freysson fór einnig beint á metsölulista Eymundssonar. Menn hafa fagnađ af minna tilefni og ţví drögum viđ út ţrjá af póstlista Veraldar og hlýtur hver ţeirra eina af ţessum miklu metsölubókum.

Hinir heppnu eru međ neđangreind netföng og geta vitjađ vinningsins í höfuđstöđvum Veraldar á Brćđraborgarstíg 9:

Enginn rćđur för - olafsson@ten.fr 

Dóttir mćđra minna - adda@simnet.is

Svo skal dansa - hannabj@visir.is

 

meira >

í Eymundsson, Skólavörđustíg, á morgun
(28.10.2009)

Á morgun, fimmtudaginn 29. október, kl. 16.30, fögnum viđ útgáfu bókarinnar Frá Evróvisjón til Evru eftir Eirík Bergmann í Eymundsson á Skólavörđustíg og eru allir velkomnir á međan húsrúm leyfir.

 

Frá Evróvisjón til Evru hefur vakiđ mikla athygli síđan hún kom í verslanir. Pétur Gunnarsson gaf henni fjórar stjörnur í Fréttablađinu og Bjarni Harđarson, einn rammasti andstćđingur ađildar Íslands ađ ESB, sagđi ađ bókin vćri "mikilvćgt, áhugavert innlegg í umrćđuna." Áđur hefur komiđ fram ađ bćđi Össur Skarphéđinsson utanríkisráđherra og Svanhildur Hólm Valsdóttir lögfrćđingur hrósa bókinni á kápu, Össur segir ađ hún sé á "einsog leiftrandi spennusaga" og Svanhildur Hólm ađ ţetta sé "ađgengilegt og yfirgripsmikiđ" yfirlit.

meira >

Síđa 33 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar