
Enginn ræður för eftir Runólf Ágústsson er í öðru sæti metsölulista Eymundssonar yfir handbækur, fræðibækur og ævisögur sem birtur er í dag. Þá er bókin sú sjötta mest selda yfir allar bækur. Skáldsagnahöfundar Veraldar koma sterkir inn á listanum, Svo skal dansa eftir Bjarna Harðarson er í sjötta sæti yfir innbundin skáldverk, Dóttir mæðra minna eftir Sindra Freysson kemur fast á hæla Bjarna og Ragnar Jónasson er í tólfta sæti á sama lista.
meira >
"Vel skrifuð saga um erfiða lífsbaráttu fátækra en viljasterkra kvenna. Heillandi bók." Þetta er niðurstaða Kolbeins Óttarssonar Proppé í umsögn um Svo skal dansa eftir Bjarna Harðarson í Fréttablaðinu í dag og skenkir hann bókinni fjórar stjörnur, hvorki meira né minna. " Hann segir að Bjarna Harðarsyni takist á lipran hátt að flétta eigin ættarsögu saman við sögu íslensku þjóðarinnar, sögu alþýðukvenna, sögu erfiðrar lífsbaráttu og einbeitts vilja. Bjarni kunni að segja sögur, sjái það skoplega í lífinu og bregði fyrir sig lýríkinni þegar við eigi. Hann lýkur dómnum með svofelldum orðum: "Svo skal dansa er mikil saga mikilla kvenna sem lifðu við lítil efni." Það er ekki amalegt að hefja skáldsagnaferilinn með slíkum dómi!
Bjarni Harðarson byggir þessa stórbrotnu sögu á harðri en ævintýralegri
lífsbaráttu formæðra sinna en allar þurftu þær að yfirgefa börn sín. Hann sýnir
hér á sér óvænta hlið í skáldsögu sem er harmræn og gleðileg í senn; heillandi
óður til horfinna kvenna.
meira >

Á morgun, miðvikudaginn 28. október kl. 17, verður haldinn fagnaður í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18 í tilefni af útgáfu bókarinnar Íslandsveður eftir Sigga Storm - eða Sigurð Þ. Ragnarsson - og Hólmfríði Þórisdóttur. Þetta er handhæg bók um það hvernig fólk getur gert sínar eigin veðurathuganir og haldið veðurdagbók þar sem einnig er að finna veður- og hamfaraannál alla daga ársins. Þá hefur bókin að geyma aðgengilega umfjöllun um ýmsa þætti veðurfræði sem eykur enn á gildi hennar.
Íslandsveður er í senn nytsamleg veðurdagbók og fróðleiksnáma um veðrið sem á erindi inn á hvert heimili. Fagnaðurinn hefst sem fyrr segir kl. 17 á morgun í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18 og eru allir hjartanlega velkomnir!
meira >
Forsíðufrétt Morgunblaðsins um nýjar upplýsingar í bók Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra blaðsins, vakti á dögunum mikla athygli. Þar var vitnað til frásagnar Styrmis í bókinni Umsátrið - Fall Íslands og endurreisn um að Bjarni Benediktsson hefði í janúar síðastliðnum tilkynnt Geir H. Haarde, formanni Sjálfstæðisflokksins, að hann íhugaði að bjóða sig fram gegn honum í formannskjöri á landsfundi flokksins. Fjölmargir hafa haft samband við höfuðstöðvar Veraldar til að fá upplýsingar um útgáfudag bókar Styrmis. Það skal upplýst að hún er væntanleg nú um miðjan nóvember en Oddarverjar eru þegar farnir að smyrja vélarnar.
Óhætt er að segja að í Umsátrinu komi
margt fram sem fram til þessa hefur verið á fárra manna vitorði.
Styrmir hefur um áratuga skeið haft beinan aðgang að ráðamönnum í
stjórnmálum og atvinnulífi og þannig verið með puttann á
þjóðarpúlsinum. Bók hans hefur að geyma nýjar upplýsingar úr innsta
hring, þar er greint frá því sem gerðist á bak við tjöldin í aðdraganda
þess að Ísland hrundi og óvæntu ljósi varpað á mestu örlagatíma lýðveldissögunnar.

Bókaforlagasamsteypan Bjartur & Veröld er með fimm af tíu mest seldu bókum í Bókabúð Máls og menningar samkvæmt fyrsta metsölulista þeirrar verslunar sem birtur var í gær. Bjarni Harðarson stekkur beint í annað sæti listans með skáldsögu sína Svo skal dansa, Stúlkan sem lék sér eldinum eftir Stieg Larsson er í fjórða sæti, Harmur englanna eftir Jón Kalman í því fimmta, Fölsk nóta Ragnars Jónassonar situr í sjöunda sæti og Eiríkur Bergmann er í því tíunda með Frá Evróvisjón til Evru.
Forsvarsmenn Bjarts & Veraldar telja ekki ástæðu til að kvarta yfir þessum árangri!
meira >
Á morgun, föstudaginn 23. október, kemur út bókin Enginn ræður för eftir Runólf Ágútsson. Þann dag kl. 17. verður efnt til útgáfufagnaðar á Ölstofunni í Reykjavík og er það engin tilviljun. Enginn ræður för er reisubók Runólfs en ferðin hófst á Ölstofunni í janúar fyrr á þessu ári og því er við hæfi að henni ljúki þar einnig.
Runólfur Ágústsson hafði verið atkvæðamikill rektor á Bifröst og frumkvöðull í að byggja upp nýtt háskólasamfélag á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Nú var komið að skuldadögum. Ef hann ætlaði sér að ná líkamlegri heilsu og andlegu jafnvægi yrði hann að snúa blaðinu við og breyta lífi sínu. Þá hefur ýmsum reynst vel að halda út í eyðimörkina.
Enginn ræður för er reisubók manns sem heldur yfir þvera Ástralíu. Þar kynnist hann lífsháttum frumbyggja sem fyrrum voru skotnir á færi, horfist í augu við kengúru, keyrir niður kóalabjörn og gistir í neðanjarðarbæ. Hann fetar í fótspor Jörundar hundadagakonungs, finnur gröf hans – og hlustar á Ellý Vilhjálms í lúnu kassettutæki heima hjá fólki sem yfirgaf Ísland fyrir fjörutíu árum.
Reisubók Runólfs Ágústssonar er einlæg, áleitin og bráðfyndin lesning, uppfull af fróðleik um framandi slóðir. Þetta er heillandi frásögn manns sem fór yfir hálfan hnöttinn og fann þar fyrir sjálfan sig.
meira >
Þann 22. janúar síðastliðinn skýrði Bjarni Benediktsson alþingismaður Geir H. Haarde formanni Sjálfstæðisflokksins frá því að hann íhugaði að gefa kost á sér við formannskjör á landsfundi, sem þá stóð fyrir dyrum. Þetta kemur fram í bók Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ristjóra Morgunblaðsins, Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn, sem kemur út hjá bókaforlaginu Veröld nú í byrjun nóvember og Morgunblaðið segir frá í dag. Styrmir byggir í bók sinni á upplýsingum úr innsta hring stjórnmála, banka og embættismanna og gögnum sem ekki hafa verið gerð opinber. Þá hefur hann átt einkasamtöl við fjölmarga þeirra sem stóðu í miðju þessarar örlagaríku atburðarásar.
Í bók sinni segir Styrmir að tilefni ákvörðunar Bjarna Benediktssonar á þeim tíma hafi verið óánægja nokkurra yngri þingmanna Sjálfstæðisflokksins með það sem þeir töldu vera aðgerðarleysi formannsins. Þeir töldu sig hafa gert ítrekaðar tilraunir til að knýja fram frekari aðgerðir ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en á þá væri ekki hlustað. Tveimur dögum fyrir fund þeirra Bjarna hafði Geir fengið staðfestingu á alvarlegum veikindum sínum. Í framhaldi af því tók hann ákvörðun um að draga sig í hlé í stjórnmálum en aðeins fjölskylda hans og nánustu samstarfsmenn vissu af henni. Geir tók áskorun Bjarna rólega, kvaðst mundu vinna kosningu þeirra í milli og að hann hefði ekkert við það að athuga að slík kosning færi fram. Daginn eftir fund þeirra Bjarna skýrði Geir frá því opinberlega að hann væri á leið úr stjórnmálum.
meira >


Á morgun, fimmtudag, kemur út skáldsaga Sindra Freyssonar, Dóttir mæðra minna. Sindri Freysson hefur fyrir löngu skipað sér í hóp okkar fremstu rithöfunda og því sætir útgáfa á nýrri skáldsögu hans miklum tíðindum. Af því tilefni verður efnt til útgáfufagnaðar í Eymundsson, Skólavörðustíg, á morgun kl. 17.
Dansinn dunar á Ísafirði þegar hermenn með alvæpni ganga þar á land á bjartri sumarnótt árið 1941. Þeir handtaka sjö heimamenn og meðal þeirra eru sautján ára stúlka og móður hennar. Þau eru send í fangelsi í Bretlandi þar sem stúlkan spinnur áhrifamikla og átakanlega sögu kynmóður sinnar; konunnar sem gaf hana forðum. Utan múranna geisar blóðug styrjöld - rétt eins og innan þeirra.
meira >
Hjálmar Jónsson ólst upp austur í Biskupstungum og á Akureyri og segir í bók sinni frá föður sínum heimsmanninum og móður sinni sveitastúlkunni, einstæðingi á næsta bæ jafnt sem skrautlegu athafnaskáldi norðan heiða. Hann skrifar um glímuna við Guð, prestskap í Húnavatnssýslu, Skagafirði og í Reykjavík. Þá fjallar hann um eftirminnileg ár á Alþingi, segir frá ýmsu sem þar gerðist að tjaldabaki og ekki hefur komið fram opinberlega áður. Þá greinir hann frá tildrögum þess að hann sagði skilið við stjórnmálin og gerðist dómkirkjuprestur. Og að sjálfsögðu fylgir með í kaupunum ógrynni af landsfrægum skáldskap hans.
Saga Hjálmars Jónssonar, sem nefnist Hjartsláttur, er full af gleði og húmor en hann hefur heldur ekki farið varhluta af myrkari hliðum tilverunnar, bæði í einkalífi og starfi. meira >
Síða 34 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

