

Á morgun, þriðjudag, kemur út skáldsagan Svo skal dansa eftir Bjarna Harðarson. Menn hafa glaðst af minna tilefni í tímans rás svo að Veröld blæs hvorki meira né minna en til útgáfufagnaðar þann sama dag í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 17. Allir velkomnir!
Svo skal dansa – Skáldsaga úr veruleikanum
eftir Bjarna Harðarson bóksala og fyrrverandi þingmann er skáldsaga um baráttu kvenna, hetjusaga hinna snauðu og ættarsaga hinna
ættlausu. Sagan hefst seint á 19. öld í óvenjulegu gistihúsi við
hálendisbrúnina rétt hjá Reykjavík og lýkur um hundrað árum síðar í
Efstasundinu og Houston Texas. Svo skal dansa er saga
syndugra og brotgjarnra alþýðukvenna sem eru hamingjusamar í fátæktinni þrátt
fyrir að þær séu sviptar öllu.
Bjarni Harðarson byggir þessa stórbrotnu sögu á harðri en ævintýralegri
lífsbaráttu formæðra sinna en allar þurftu þær að yfirgefa börn sín. Hann sýnir
hér á sér óvænta hlið í skáldsögu sem er harmræn og gleðileg í senn; heillandi
óður til horfinna kvenna.

Svo skal dansa eftir Bjarna Harðarson er að hans sögn saga um kvenréttindi og hetjudáðir hina fátæku. Sagan á rætur að rekja til langömmu hans, Sesselju Helgadóttur, og kvenna sem henni tengast. Þetta kemur fram í viðtali Kolbrúnar Bergþórsdóttur við Bjarna í Morgunblaðinu í dag. Svo skal dansa kemur formlega út á þriðjudag en dreifing í bókaverslanir er þegar hafin.
Í viðtalinu segir Bjarni að þessar konur hafi átt það sammerkt að lifa við harðneskjuleg kjör sveitarómagans í landlausum hrakningi. Sagan berist þess vegna um allt land, úr Hafnarfirði, Mosfellssveit, Stokkseyri og austur á firði en endar í Reykjavík ástandsáranna og Houston í Texas á sjöunda áratug 20. aldar. "Það litar líf þessara kvenna sterkum litum að þær urðu allar að gefa börn sín frá sér til vandalausra og stóðu þar frammi fyrir valkostum sem allir voru slæmir. Á bókum finnum við ótal frásagnir af fátækum alþýðukonum sem börðust við að halda börnum sínum og höfðu sigur þrátt fyrir andstreymi. Það hefur minna verið skrifað um hinar sem lifðu við þá skömm að tapa í þessari orrustu. Þær eru óhreinu börnin og ég er hér að segja sögu þeirra.
En þó svo að efnið sé harmrænt er ég um leið að skrifa sögur af lífsglöðum, ástföngnum og breyskum konum sem voru öðrum þræði ótrúlegir töffarar, kannski af því að þær gátu ekki annað. Og þær voru kvenréttindakonur sem fóru sínu fram í allri örbirgðinni," segir Bjarni í athyglisverðu viðtali við Kolbrúnu.
meira >

Pétur Gunnarsson, gagnrýnandi Fréttablaðsins, gefur Frá Evróvisjón til Evru eftir Eirík Bergmann fjórar stjörnur og segir þetta hið þarfasta verk. Hann ritar að oft heyrist kallað eftir því að fræða þurfi almenning um Evrópusambandið svo hann geti tekið upplýsta afstöðu til spurningarinnar um aðild. Bókin bæti úr þessu og sé upplýsingarit fyrir almenning, þannig að fók viti hvaðan á það stendur veðrið þegar ESB ber á góma. Bókin nái þessum tilgangi sínum með sóma.
"Nú standa yfir aðildarviðræður milli Íslands og ESB. Það á að gera samning sem almenningur þarf að kjósa um og þess vegna er brýnt að koma málinu upp úr skotgröfum þar sem sannfærðir fylgjendur og andstæðingar hafast við. Eiríkur Bergmann, sem er einn þekktasti Evrópusinni landsins, er hins vegar ekki í neinum skotgröfum í þessari bók heldur í hlutverki alþýðufræðarans og tekur sig ágætlega út sem slíkur. Stíll bókarinnar er yfirleitt knappur og skýr og er það nokkurs virði að hér er sýnt fram á að hægt er að fjalla um málefni tengd ESB á mannamáli og á þann hátt að það nýtist flestum þeim sem geta lesið sér til gagns á annað borð."
meira >



Sá fáheyrði atburðir hefur nú gerst að nýr höfundur nær fyrsta sæti metsölulista Eymundssonar með sinni fyrstu skáldsögu. Fölsk nóta eftir Ragnar Jónasson kom út í liðinni viku og hefur þegar tekið flugið - fór beint á toppinn. Þá er spennusaga hans þriðja mest selda bók vikunnar þegar allir titlar eru metnir saman. Þá er bók Eiríks Bergmanns, Frá Evróvisjón til Evru, í þriðja sæti yfir handbækur, fræðibækur og ævisögur og situr í níunda sæti listans yfir allar bækur. Það er því óhætt að segja að Veröld hefji haustið með látum.
Ekkert lát er á vinsældum Stiegs Larssons hjá systurforlagi Veraldar, Bjarti, en Stúlkan sem lék sér að eldinum fylgir Falskri nótu fast á eftir í innbundnum skáldverkum, svo og Karlar sem hata konur. Þá er sú síðar nefnda næst mest selda kilja vikunnar. Loks má geta þess að sálfræðitryllirinn Í meðferð eftir Sebastian Fitzek er í tíunda sæti kiljulistans. Bjartur & Veröld eru síðan með alls fjórar af tíu mest seldu bókum vikunnar.
meira >
Frá Evróvisjón til Evru eftir Eirík Bergmann er "mikilvægt, áhugavert innlegg í umræðuna," sagði Bjarni Harðarson, einn rammasti andstæðingur aðildar Íslands að ESB, á opnunarhátíð Bókabúðar Máls og menningar nú um helgina. Þá fjallaði Fréttastofa Stöðvar 2 um bókina sunnudagskvöldið 11. október og ábendingar Eiríks Bergmanns um það hvernig hægt væri að styrkja gengi krónunnar í samvinnu við Seðlabanka Evrópu
Óhætt er að segja að menn hafi rekið í rogastans við ummæli Bjarna Harðarsonar eftir að hafa lesið frétt Pressunnar á dögunum um að erfiðlega hefði gengið að fá andstæðinga aðildar Íslands að ESB til að gefa umsögn um bókina þar sem þeir óttuðust að það myndi skapa úlfúð í þeirra röðum. Hins vegar hefur komið fram að bæði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Svanhildur Hólm Valsdóttir lögfræðingur hrósa bókinni á kápu, Össur segir að hún sé á "einsog leiftrandi spennusaga" og Svanhildur Hólm að þetta sé "aðgengilegt og yfirgripsmikið" yfirlit.
meira >
Í dag var því fagnað í Eymundsson á Skólavörðustíg að Fölsk nóta eftir Ragnar Jónasson kom út. Mikill fjöldi gesta hlýddi á Ragnar lesa úr bók sinni og þáði veitingar að því loknu. Góður rómur var gerður að lestri höfundarins en þetta er í fyrsta sinn sem hann les úr þessari fyrstu spennusögu sinni. Hann er þó enginn nýgræðingur á ritvellinum, enda hefur hann þýtt fjórtán glæpasögur Agöthu Christie frá því að hann var í menntaskóla. Hann hefur haldið því áfram þótt hann sé nú orðinn virðulegur lögfræðingur. Myndir úr útgáfufagnaðinum má sjá á heimasíðu Ragnars, ragnarjonasson.com.
meira >Síða 35 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

