
Ragnar Jónasson er ungur lögfræðingur sem ákvað að spreyta sig á að skrifa spennusögu úr íslenskum veruleika eftir að hafa þýtt á annan tug bóka Agöthu Christie.
"Bók sem erfitt er að leggja frá sér. Hér kveður við nýjan tón í íslensku glæpasagnahljómkviðunni." Ármann Jakobsson íslenskufræðingur
"Vel uppbyggð bók með spennandi ráðgátu. Flott frumraun." Guðríður Haraldsdóttir, ritstjóri Vikunnar
meira >

Í dag kemur út hjá Veröld bókin Frá Evróvisjón til Evru - Allt um ESB eftir Eirík Bergmann dósent við Háskólann á Bifröst og forstöðumann Evrópufræðaseturs. Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitthvert umdeildasta mál síðari tíma. En hvað er þetta ESB? Hver er saga þess? Hvernig er það byggt upp? Hvert er eðli Evrópusamvinnunar? Hvaða áhrif hefur Evrópusambandið á líf, störf og viðskipti Íslendinga nú þegar – og hvað breytist ef ákveðið verður að ganga í sambandið?
Um hvað snýst samvinna þessara 27 aðildarríkja þar sem býr hálfur milljarður
manna og talar 89 tungumál?
Íslendingar verða á næstunni að gera upp hug sig sinn til ESB. Bókin Frá Evróvisjón til Evru eftir Eirík Bergmann hefur að geyma allt sem þú vildir vita um Evrópusambandið en þorðir ekki að spyrja um; bók sem á erindi inn á hvert heimili í landinu.
Á bókarkápu er vitnað til
umsagna tveggja lesenda bókarinnar. Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra segir: "Liprasti texti sem Íslendingur hefur skrifað
um ESB og fjandi
skemmtilegur aflestrar. Á köflum einsog leiftrandi
spennusaga." Og Svanhildur Hólm Valsdóttir lögfræðingur segir:
"Lipurlega ritað yfirlit um ESB, aðgengilegt g yfirgripsmikið, eftir
höfund sem er ástríðufullur hugamaður um alþjóðasamvinnu."

Á morgun, fimmtudag, kemur út hjá Veröld glæpasagan Fölsk nóta eftir Ragnar Jónasson og er þetta fyrsta bók höfundar. Af því tilefni verður efnt til útgáfufagnaðar í Eymundsson, Skólavörðustíg kl. 17 þann sama dag þar sem Ragnar les úr bók sinni en á eftir verður gestum boðið upp á léttar veitingar. Allir velkomnir! Ármann Jakobsson íslenskufræðingur segir á kápu bókarinnar að það hafi verið erfitt að leggja hana frá sér og bætir við: "Hér kveður við nýjan tón í íslensku glæpasagnahljómkviðunni." Guðríður Haraldsdóttir, ritstjóri Vikunnar, tekur í sama streng þar sem hún segir: "Vel uppbyggð bók með spennandi ráðgátu. Flott frumraun."
Þótt Ragnar Jónasson sé ungur að árum hefur hann þýtt fjórtan af glæpasögum Agöthu Christie og er óhætt að segja að andi hennar svífi yfir vötnum í þessari fyrstu glæpasögu hans. Ragnar starfar sem lögfræðingur í Reykjavík. Heimasíða hans er www.ragnarjonasson.com.
meira >
Einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í málefnum Evrópusambandsins, Eiríkur Bergmann, er í viðtali við Fréttablaðið í dag um íslenskan landbúnað og ESB. Í lok fréttarinnar er þess getið að væntanleg sé á markað bók eftir Eirík sem nefnist Frá Evróvisjón til Evru. Sú merka bók kemur út hjá Veröld nú í vikunni og verður þar að finna allt sem Íslendingar vildu vita um Evrópusambandið en þorðu ekki að spyrja. Eiríkur Bergmann fjallar þar meðal annars um það hvaða áhrif Evrópusambandið hefur á líf, störf og viðskipti Íslendinga nú þegar – og hvað muni breytast ef ákveðið verður að ganga í sambandið.
Óhætt er að fullyrða að hér sé loksins komin bók um Evrópusambandið fyrir almenning - á mannamáli!
meira >

Bókaforlagið Veröld hefur samið við stærsta forlag Rússlands, AST, um útgáfu á Þriðja tákninu og Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur. Meðal annarra höfunda sem AST gefur út eru Dan Brown, Stephen King, Stephanie Meyer, Chuck Palanick og John Grisham svo nokkrir séu nefndir. Þessar fyrstu tvær glæpasögur Yrsu hafa nú þegar komið út víða um lönd og fengið góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda, meðal annars í Bandaríkjunum og Bretlandi. Gagnrýnandi The Times ritaði til dæmis í umsögn um Þriðja táknið að breskir lesendur yrðu nú að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum, Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur og sama blað bætti um betur þegar Sér grefur gröf kom út og fullyrti að Yrsa væri tvímælalaust í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda.
Yrsa Sigurðardóttir er nýkomin heim af Bókmenntahátíðinni í Edinborg þar sem hún var í samtali á sviði. Hún er meðal gesta á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík sem nú stendur yfir og les úr væntanlegri glæpasögu sinni í Iðnó föstudagskvöldið 11. september en bókin kemur út nú fyrir jólin.
meira >

Sindri Freysson rithöfundur og bókaútgáfan Veröld hafa gengið frá samningi um að forlagið fari með útgáfumál hans bæði heima og erlendis en um tæplega tveggja áratuga skeið hefur Forlagið og síðar JPV gefið út bækur Sindra. Hann leggur nú lokahönd á skáldsögu sem kemur á markað síðar í haust en síðasta skáldsaga hans, Flóttinn, kom út árið 2004 og hlaut mikið lof gagnrýnenda, var m.a. sögð “ein áhugaverðasta skáldsagan” um þau jól. "Við erum afskaplega stolt af því að Sindri skuli hafa ákveðið að ganga til liðs við Veröld. Það er mikill fengur að honum, enda er hann í hópi okkar fremstu rithöfunda," segir Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri Veraldar.
Sindri Freysson hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 1998 fyrir
skáldsöguna Augun í bænum og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
árið 2000 fyrir ljóðabókina Harði kjarninn (njósnir um eigið líf). Sindri
kvaddi sér hljóðs með ljóðabókinni Fljótið sofandi konur árið 1992 en hefur
síðan sent frá sér smásagnasafn, skáldsögur, ljóð, leikrit og barnabók.

Breski spennusagnahöfundurinn Michael Ridpath hefur haft hljótt um sig að undanförnu en hann sló í gegn með sinni fyrstu bók, Myrkraverkum, árið 1995 og var þá m.a. útnefndur hinn breski Grisham. Ridpath hefur sent frá sér ýmsar spennusögur síðan þá en nú hefur hann söðlað rækilega um, sagt skilið við glæpasögur úr heimi fjármála og skrifað trylli sem gerist á Íslandi. Tímaritið Bookseller greinir frá því í dag að breska forlagið Corvus Books hafi keypt fyrstu tvær bækurnar í þessari nýju seríu og vitnar til útgefandans, Nicoals Cheetham, sem segir að Ridpath sé alþjóðlegur metsöluhöfundur sem nú sendi frá sér sögu með ótrúlega frumlegri fléttu.
Þess má geta að Veröld varð eitt fyrsta forlagið til að tryggja sér útgáfuréttinn á bók Ridpaths og er hann væntanlegur til landsins til að fylgja útgáfu bókarinnar eftir nú í haust en hún er ekki væntanleg á frummálinu fyrr en vorið 2010. Afar fátítt er að skáldsaga komi út á íslensku áður en hún er gefin út í heimalandi höfundar. Þess má geta að Veraldarvefurinn hefur traustar heimildir fyrir því að Ridpath hefur komið allnokkrum sinnum til Íslands í tengslum við bókina og rætt við ýmsa aðila til að hafa allar staðreyndir á hreinu. Fréttina í Bookseller má sjá hér.
meira >
Mynddiskurinn Raddir Íslands er eigulegur og forvitnilegur að mati Begþóru Jónsdóttur, blaðamanns á Morgunblaðinu, og spyr hún hvort skólakerfið hafi nokkra ástæðu lengur til að hunsa þennan merkilega þjóðararf. Diskurinn kom nýlega út og hefur að geyma lifandi dæmi um rímnakveðskap og ýmsar aðrar greinar þjóðlegrar tónlistar- og dansmenningar. Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður og Dúi Landmark kvikmyndagerðarmaður söfnuðu saman efninu á diskinn. Bjartur& Veröld annast dreifingu á mynddisknum.
meira >
Síða 36 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

