
Samningurinn við Telepool tekur til dreifingar og sölu myndarinnar inn á markaði um allan heim, utan Norðurlandanna. Stefnt er að því að kvikmyndin verði frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar 2011 og hefur þegar verið gengið frá sölusamningum til 10 landa um sýningarrétt. Meðframleiðendur CAOZ að myndinni eru Ulysses Film í Þýskalandi og Magma Productions á Írlandi. meira >

Í Veröldinni er mörgu að fagna um þessar mundir. Hagsýni og hamgingja eftir Láru Ómarsdóttur og MEMO eftir Oddbjörn By renna út eins og heitar lummur. Yrsa Sigurðardóttir gerði tveggja bóka samning við breska útgefandann sinn um Auðnina og Ösku - eftir að Sér grefur gröf hefur fengið frábæra dóma í Bretlandi. Og Sigmundur Ernir Rúnarsson, höfundur metsölubókarinnar Magneu flutti á dögunum jómfrúarræðu sína á Alþingi. Af því tilefni drögum við út fjóra heppna af póstlista Veraldar.
Hinir heppnu eru:
bugur@vortex.is sem fær Hagsýni og hamingju
siggud@bok.hi.is sem fær MEMO
irisbaldursd@hotmail.com sem fær Magneu
ragnarr@internet.is sem fær Auðnina meira >

Morgunblaðið vekur í dag athygli á bók Láru Ómarsdóttur, Hagsýni og hamingju, og segir þar réttilega að hún hafi hitt í mark með henni. Þar kenni hún fólki í þrengingum hvernig takast eigi á við fjárhagslega erfiðleika og lifa af litlu með bros á vör.
Blað allra landsmanna bendir á að Lára hefði getað veitt lesendum sínum það ráð framan á bókarkápu að ódýrast væri að kaupa sér bókasafnskort og fá sparnaðarráðin að láni á safninu. Þetta er vissulega rétt athugað hjá Morgunblaðinu. Vandamálið er hinsvegar það að samkvæmt lauslegri könnun Veraldarvefjarins hjá almenningsbókasöfnum er nánast útilokað að verða sér úti um eintak af Hagsýni og hamingju næstu mánuði, svo umsetin er bókin. Og ekki fara menn að ráðum Láru á meðan beðið er eftir bókinni á safninu. Það gæti því reynst dýrkeyptur sparnaður að ætla sér að bíða eftir Hagsýni og hamingju á bóksafninu ...
meira >

Yrsa Sigurðardóttir var í útvarpsviðtali á rás 4 hjá BBC í gærmorgun. Samtalið, sem heyra má hér, var liður í kynningarferð hennar um England sem staðið hefur undanfarna daga til að fylgja eftir útkomu glæpasögu hennar, Sér grefur gröf. Yrsa tók þátt í mikilli glæpasagnahátíð í Bristol á föstudag en hélt svo til London til að ræða við fjölmiðla, m.a. BBC.
Bretar hafa tekið Sér grefur gröf fagnandi. Gagnrýnandi The Times fullyrti að Yrsa væri tvímælalaust í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda, í umsögn Independent sagði að þetta væri hrollkaldur tryllir og gagnrýnandi Sunday Telegraph lét svo um mælt að Agatha Christie hefði verið fullsæmd af fléttu sögunnar.
Þá tryggði útgefandi Yrsu í Englandi, Hodder & Stoughton, sér réttinn á næstu tveimur bókum hennar, Auðninni og Ösku.
meira >
Í dag kemur út hjá bókaforlaginu Veröld bókin Hagsýni og hamingja eftir Láru Ómarsdóttur fréttakonu. Hagsýni þarf ekki að vera leiðinleg og með því að tileinka sér ákveðna hugsun og skipulag á fjármálum heimilisins verður ráðdeild þvert á móti gleðileg og gefandi. Í þessari áhugaverðu bók fjallar Lára um hvernig hægt er að endurskoða fjárhag og neyslu og spara tugi þúsunda í hverjum mánuði.
En áður en hafist er handa er nauðsynlegt að taka fyrst til í eigin huga – menn koma fáu í verk nema þeim takist að losna undan fargi neikvæðni og vanlíðunar.
Lára byggir bókina á eigin reynslu en hún varð fyrir nokkrum árum að takast á við efnahagslegt hrun heimilisins, ásamt eiginmanni og fimm börnum, í kjölfar þess að þau misstu bæði vinnuna. Þá er í bókinni að finna uppbyggilegar ráðleggingar um það hvernig hægt er bregðast við uppsögnum og hefja leit að nýju starfi.

Veröldin er full af viðburðum um þessar mundir. Memo eftir OddbjørnBy hefur vakið mikla athygli, Hagsýni og hamingja eftir Láru Ómarsdóttur er að gera allt vitlaust og Bretar halda ekki vatni yfir Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur - fyrir utan að Hodder & Stoughton hafa nú fest kaup á tveimur næstu bókum hennar, Ösku og Auðninni. Af því tilefni drögum við út þrjá heppna af póstlista Veraldar sem fá bókarvinning. Hinir heppnu eru:
hs@mitt.is sem fær Auðnina eftir Yrsu Sigurðardóttur
guggar@flataskoli.is sem fær Hagsýni og hamingju eftir Láru Ómarsdóttur
styrmirsig@visir.is sem fær Memo eftir Oddbjørn By.
Hinir heppnu geta nálgast vinninginn á Bræðraborgarstíg 9.
meira >


Bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningi um útgáfu á Ösku og Auðninni eftir Yrsu Sigurðardóttur við breska forlagið Hodder & Stoughton. Þetta er annar tveggja bóka samningurinn sem Yrsa gerir við útgáfuna. Skömmu eftir að Þriðja táknið kom út á Íslandi árið 2005 tóku mörg af helstu forlögum Bretlands að bjóða hvert í kapp við annað í bækur þessa óþekkta höfundar og tryggði Hodder sér útgáfuréttinn með því að kaupa líka óskrifaða sögu Yrsu. Sú bók, Sér grefur gröf, kom út núna í apríl á ensku og hefur fengið afar góðar viðtökur, meðal annars í mörgum af helstu dagblöðum landsins. Gagnrýnandi The Times fullyrti að Yrsa væri tvímælalaust í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda, í umsögn Independent sagði að þetta væri hrollkaldur tryllir og gagnrýnandi Sunday Telegraph lét svo um mælt að Agatha Christie hefði verið fullsæmd af fléttu sögunnar. Hodder hefur greinilega ákveðið að veðja á Yrsu til framtíðar því að forlagið hefur nú keypt næstu tvær bækur hennar, Auðnina og Ösku.
Yrsa er nú stödd í Bretlandi að fylgja eftir útkomu Sér grefur gröf. Hún tók þátt í tveimur pallborðsumræðum á glæpasagnahátíðinni Crimefest í Bristol á föstudaginn en er nú kmoin til London þar sem hún mun veita fjölmiðlum viðtöl, m.a. BBC.
Hodder & Stoughton var stofnað árið 1868 og hefur á að skipa höfundum á borð við John le Carré, Stephen King og Siri Hustvedt. meira >
Síða 38 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

