
Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur er vel skrifuð glæpasaga, atburðarásin hröð og andrúmsloft hennar frábært, að mati gagnrýnananda breska dagblaðsins Guardian en Pressan segir frá því í dag. Það besta í þessari annarri glæpasögu Yrsu er hins vegar persóna Þóru Guðmundsdóttur, að mati gagnrýnandans: "Hún er stórskemmtileg; kaldhæðin, fyndin og berst hetjulega við að finna jafnvægi milli einkalífs - nýr elskhugi, táningssonur, fyrrverandi eiginmaður sem henni gengur illa að eiga við - og vinnu. Ég hlakka til að lesa þriðju bókina."
Gagnrýnandi Guardian bætist þar með í hóp þeirra sem lofað hafa Yrsu að undanförnu í breskum fjölmiðlum. The Times sagið hvorki meira né minna en að Yrsa Sigurðardóttir væri í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda, Independent skrifaið að bókin væri “hrollkaldur tryllir”, Observer að Sér grefur gröf væri hörkuspennandi og skemmtileg og SkandiLit að Yrsa hefði sýnt og sannað hún væri ný stjarna í heimi glæpsagnanna.
meira >

Þór - í Helgjargreipum eftir Friðrik Erlingsson fær afar lofsamlega umsögn í tímaritinu Börn og menning sem nú er komið út. Brynja Baldursdóttir segir þar að Friðrik blandi saman ýmsum sögum úr norrænni goðafræði um goð og jötna, svo sem sögunni þegar Þór glímdi við Elli kerlingu og tapaði. Síðan segir Brynja: "Hann skrifar lipurlegan texta, leyfir sér alls kyns útúrdúra frá hinum fornu fræðum svo úr verður fjörleg, spennandi og skemmtileg saga.”
Bók Friðriks, sem unnin er í samvinnu við tölvuteiknimyndafyrirtækið CAOZ, fékk áður frábæra umsögn í Fréttablaðinu en þar sagði Hildur Heimisdóttir: „Þór í heljargreipum er æsispennandi saga sem vekur goðafræðina til lífs og segir frá baráttu góðs og ills, til síðasta blóðdropa.“
Þess má geta að CAOZ vinnur nú að alþjóðlegri tölvuteiknimynd sem byggir á sögunni en leikstjóri er enginn annar en Óskar Jónasson.
meira >
Þegar talið var upp úr kjörkössunum lá það fyrir sem búist hafði verið við: Sigmundur Ernir Rúnarsson er orðinn alþingismaður. Sigmundur Ernir gekk til liðs við Veröld þegar hann tók að sér að skrifa ævisögu Guðna Ágústssonar árið 2007 - eins þekktasta manns landsins - en söðlaði rækilega um og skrifaði ári síðar ævisögu konu sem líklega var sú minnst þekkta í upphafi jólavertíðar. Skemmst er frá því að segja að bókin Magnea sló rækilega í gegn og varð mest selda ævisaga liðinnar jólavertíðar.
Ritstjórn Veraldarvefjarins óskar Sigmundi Erni til hamingju með kjörið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Um leið er athygli hans vakin athygli á því að áður hafa vinsælir rithöfundar setið á þingi, án þess að þeir hafi slegið af í ritstörfum og nægir þar að nefna Guðrúnu Helgadóttur, Svövu Jakobsdóttur, Jónas Árnason og síðast en ekki síst, Davíð Oddsson.
meira >

Yrsa Sigurðardóttir er í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda, að mati breska blaðsins The Times. Þetta er niðurstaða lofsamlegrar umsagnar blaðsins um bók Yrsu, Sér grefur gröf, sem kom út á dögunum í Englandi. Áður hafa birst jákvæðir dómar í þarlendum fjölmiðlum. Independent sagði að bókin væri “hrollkaldur tryllir”, Guardian að Sér grefur gröf væri hörkuspennandi og skemmtileg og SkandiLit að Yrsa hefði sýnt og sannað hún væri ný stjarna í heimi glæpsagnanna.
Gagnrýnandi The Times segir í umsögn sinni að aðalpersóna glæpasagna Yrsu, Þóra Guðmundsdóttir lögmaður, sé skörp og aðlaðandi en lýkur henni með þeim orðum að andrúmsloft sögunnar sé frábærlega kuldalegt og valdi hvað eftir annað hrollkaldri skelfingu; Yrsa sé tvímælalaust í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda. Þess má geta að gagnrýnandi The Times sagði fyrir ári síðan í umsögn um Þriðja táknið að nú yrðu breskir lesendur að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum, Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur.
meira >



Í dag er alþjóðlegi barnabókadagurinn haldinn hátíðlegur. Af því tilefni efnir Eymundsson til mikillar veislu í verslunum sínum. Þar er meðal annars á boðstólum Heitur snúður með glassúr eftir Gunnstein Ólafsson og Freydísi Kristjánsdóttur á aðeins 990 krónur. Upphaflega stóð til að senda fréttina út í gær en af ótta við misskilning var ákveðið að bíða til dagsins í dag. Hér gildir sem víðar: Ekki missir sá er fyrstur fær!
Heitur snúður með glassúr kom út fyrir síðustu jól. Hvað eiga systkinin Unnur og Halldór að gera þegar tveir skuggalegir náungar birtast á bæjarhlaðinu og þykjast ætla að hafa á brott með sér uppáhaldið þeirra, Jóa fjörkálf? Kálfinn sem þau voru að enda við að bjarga úr miklum vandræðum! Systkinin grípa til sinna ráða og upphefst þá æsileg atburðarás þar sem við sögu koma snobbuð frænka, sterkasta löggan í sveitinni og síðast en ekki síst … heitur snúður með glassúr!
meira >
Réttindastofa Bjarts & Veraldar hefur gengið frá samningi við Arabesque Publishing Press í Egyptalandi um útgáfu á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þessi fyrsta glæpasaga Yrsu er því væntanleg á meira en þrjátíu tungumálum um víða veröld. Eftir því sem næst verður komist hefur íslenskt skáldverk ekki verið gefið út á arabísku, amk ekki í háa herrans tíð. Egypska forlagið hefur jafnframt tryggt sér rétt til að dreifa Þriðja tákninu um allan hinn arabíska heim.
Þriðja táknið hefur nú þegar komið út víða um lönd og fengið góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda, meðal annars í Bandaríkjunum og Bretlandi. Gagnrýnandi The Times ritaði til dæmis að breskir lesendur yrðu nú að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum, Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur og Wall Street Journal sagði að Þriðja táknið héldi athygli jafnvel lúnustu lesenda. Önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, kemur út í Bandaríkjunum og Bretlandi síðar í þessum mánuði og nefnist My Soul to Take í enskri þýðingu.
meira >

Kvikmynd byggð á skáldsögunni Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne verður frumsýnd nú um helgina í Háskólabíói. Sagan "lætur engan ósnortinn," sagði Katrín Jakobsdóttir þáverandi gagnrýnandi í Mannamáli á Stöð 2 - núverandi menntamálaráðherra. Katrín skipar sér þarna á bekk með kollegum sínum um víða veröld því að bókin hefur hvarvetna fengið glimrandi dóma. Nægir þar að nefna umsögn gagnrýnanda Irish Times sem sagði. "Ég sat eftir með tárin í augunum."
Dómar um myndina hafa verið fádæma fínir, t.d. gaf breska stórblaðið The Times myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Um leið og við drögum út fimm heppna á póstlista Veraldar sem fá kiljuna að gjöf bendum við fólki á að hafa með sér vasaklút þegar það fer að sjá þessa hrífandi bíómynd! Netföngin sem dregin voru út eru birt hér að neðan og geta viðkomandi nálgast bækurnar hjá Veröld að Bræðaborgarstíg 9.
hofs@simnet.is
einarsnes@internet.is
thordish@visir.is
bergljot@gardabaer.is
vidar3@oldusel.is
meira >Síða 40 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

