|
Síðdegis í gær vatt kona sér inn í forlagsbúð Veraldar að Bræðraborgarstíg 9 og lýsti því yfir hátt og snjallt að hún ætlaði að kaupa 15 eintök af ævisögu Magneu Guðmundsdóttur eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Hún hafði lesið bókina og heillast svo af sögu þessarar einstöku baráttukonu að hún ákvað að gefa öllum þeim sem hún gefur jólagjafir sömu gjöfina: Magneu.
Kona þessi er ekki ein um að hrífast af Magneu; bók þeirra Sigmundar Ernis er mest selda ævisaga landsins samkvæmt metsölulista Morgunblaðsins sem mælir sölu í öllum bókaverslunum landsins.
meira >
|
Ítalska matreiðslubiblían, Silfurskeiðin, trónir á toppi metsölulista Eymundssonar yfir bækur almenns efnis þessa vikuna. Óhætt er að segja að bókin hafi slegið rækilega í gegn, enda er hún bæði yfirgripsmikil en um leið á frábæru verði. Svo ekki sé minnst á þann spottprís sem hún fæst á í forlagsbúð okkar að Bræðraborgarstíg 9! Í tilefni af þessum skemmtilegu tíðindum drögum við út þrjá heppna netfangahafa á póstlista Veraldar. Þeir eru:
benedikta@simnet.is
katrinja@hi.is
hansis@mi.is
Við óskum hlutaðeigandi til hamningju með vinninginn!
meira >
|
Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur er næst mest selda skáldsaga vikunnar samkvæmt metsölulista Morgunblaðsins sem birtur er í dag og þriðja mest selda bók vikunnar, að því er fram kemur í blaðinu í dag. Óhætt er að fullyrða að nýjasta glæpasaga Yrsu hafi slegið í gegn en enginn bóka hennar hefur fengið viðlíka start á jólavertíðinni. Fyrsta upplag bókarinnar var 10.000 eintök og þótti ýmsum nóg um. Nú stefnir í að Oddamenn verði að panta meiri pappír til að prenta meira.
Auðnin fékk fjórar stjörnur hjá Páli Baldvin Baldvinssyni í Fréttablaðinu en hann hefur ekki verið jafn örlátur við nokkra aðra glæpasögu á vertíðinni og sagði hann þetta "hörkutrylli".
meira >
|
Bók Sigmundar Ernis um Magneu Guðmundsdóttur skaust beint í fyrsta sætið yfir ævisögur á metsölulista Morgunblaðsins sem birtur er í dag. Þessi óþekkta alþýðukona skýtur þar aftur fyrir sig víðfrægu fólki á borð við forseta vorn, Þráin Bertelsson, Bryndísi Schram og Margréti Pálu. Konan sem enginn vissi hver var fyrir örfáum vikum er þannig skyndilega orðin þjóðkunn - og ekki að ástæðulausu. Ævisaga hennar hefur mælst einkar vel fyrir. Sigríður Arnardóttir, Sirrý, sagði til dæmis: "Mögnuð Magnea. Stórmerkilegt alþýðufólk sem á erindi við okkur í dag. Undurfallegur texti Sigmundar Ernis hlýjar manni um hjartarætur."
Katrín Fjeldsted læknir tekur í sama streng: "Eftir því sem á lesturinn leið þótti mér vænna um Magneu, ekki sem konu sem misst hefur börn sín, heldur litríka, greinda og sterka konu sem hefur frá mörgu áhugaverðu að segja úr lífi sínu."
Þá situr Þór -í Heljargreipum í tíunda sæti barnabókalista Morgunblaðsins og sýnir svo ekki verður um villst að þjóðin hefur enn áhuga á norrænni goðafræði og vill að börnin sín kynnist hinum fornu goðum.
meira >
|
Spurningakeppni liðinnar viku fékk fádæma undirtektir, enda margir sem vildu vinna bókina Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Hér er boðið upp á nýja spurningu. Að þessu sinni verður dregið í hádeginu á mánudag. Spurningin er svona:
Sænskur rithöfundur skilaði inn þremur fullbúnum handritum til útgefanda síns, og sagðist aðspurður ekki hafa komið með eitt og eitt í einu því hann gerði sér grein fyrir að hann væri með efni sem myndi gera allt vitlaust, og eftir að fyrsta bókin kæmi út fengi hann ekki frið til að skrifa meira.
Hann reyndist sannspár, bækurnar hafa allar þrjár farið sigurför um heiminn og selst í milljónum eintaka, en höfundinum entist því miður ekki aldur til þess að sjá spá sína rætast, því hann lést árið 2004, langt fyrir aldur fram. Höfundurinn sem um ræðir er Stieg Larsson og bækurnar hafa gengið undir nafninum "Millenium trílógían."
Í Grikklandi til forna voru harmleikir
settir á svið í þrennum, eða trílógíum. Nefnið þekktan fjölmiðlamann sem er
annálaður Grikklandsvinur.
|
Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur stökk beint í 47. sæti á þýska kiljulistanum um leið og hún kom út. Þetta er önnur bók Yrsu sem kemst inn á þýska listann en Sér grefur gröf lék sama leik í fyrra og fór meira að segja inn á topp tíu í Austurríki.
Árlega koma út um 20.000 skáldverk á þýskum bókamarkaði og um 80.000 titlar alls. Óhætt er því að segja að samkeppnin sé nokkur. Aska nefnist Das glühende Grab á þýsku. Fischer Verlag sem gefur út bækur hennar í Þýskalandi tryggði sér Auðnina þegar í vor - löngu áður en Yrsa hafði lokið við að skrifa hana.Yrsa er núna stödd í Vancouver í Kanada en hún lagði upp í fjögurra vikna upplestrarferð um Bandaríkin og Kanada fyrir viku til að undirbúa jarðveginn fyrir bók sína Sér grefur gröf sem kemur út vestan hafs nú eftir áramótin.
meira >
|
|
Á dögunum vöktum við athygli á getraun bókaútgáfunnar Bjarts
þar sem í verðlaun var metsölubókin Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson en
Larsson átti einmitt þrjár mest seldu bækur Svíþjóðar árið 2007 og alls
hefur Millenium-þríleikur hans selst í átta milljónum eintaka um allan
heim. Niðurstöðurnar urðu heldur vandræðalegar eins og gerð er grein
fyrir á heimasíðu Bjarts.
Af þessu tilefni drögum við út þrjá heppna af póstlista Veraldar og
hljóta þeir í glaðning Auðnina eftir Yrsu Sigurðardóttur, Magneu eftir
Sigmund Erni og Þór - í Heljargreipum. Handhafi netfangsins begga82@hotmail.com fær Auðnina, lindaros@hive.is fær Magneu og jsb52@simnet.is fær Þór - í Heljargreipum. Vinningshafarnir getað vitjað glaðningsins á skrifstofu Veraldar að Bræðraborgarstíg 9 í Reykjavík.
|
Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur er í öðru sæti metsölulista Eymundssonar yfir skáldverk sem birtur er í dag og í þriðja sæti þegar sala á öllum bókum er mæld. Þannig eltir "drottning glæpasögunnar", eins og erlendir gagnrýnendur hafa kallað hana, sjálfan konunginn, Arnald Indriðason á röndum. Yrsa fékk fjórar stjörnur hjá Páli Baldvin í Fréttablaðinu í gær en það eru fleiri stjörnur en nokkur glæpasagnahöfundur hefur fengið hjá þessum stranga gagnrýnanada á vertíðinni.
Þá er athyglisvert að sjá að bók Sigmundar Ernis um Magneu Guðmundsdóttur sveiflar sér á listann yfir bækur almenns efnis og Þór - í Heljargreipum eftir Friðrik Erlingsson og Heitur snúður með glassúr eftir Gunnstein Ólafsson læða sér inn á barnabókalistann.
meira >
|
Sigríður Arnardóttir, betur þekkt sem fjölmiðlakonan Sirrý, er geysilega ánægð með bók Sigmundar Ernis Rúnarssonar um Magneu Guðmundsdóttur. Hún segir: "Mögnðu Magnea. Stórmerkilegt alþýðufólk sem á erindi við okkur í dag. Undurfallegur texti Sigmundar Ernis hlýjar manni um hjartarætur." Sigmundur Ernir var í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og þar sem Hrafnhildur Halldórsdóttir, umsjónarmaður þáttarins, mælti með þessari mögnuðu ævisögu við hlustendur.
meira >Síða 44 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

