Ljóđabók Ólafs beint í annađ sćtiđ
(9.04.2008)

Í dag kemur formlega út hjá Veröld ljóđabókin Agnarsmá brot úr eilífđ eftir Ólaf Ragnarsson fyrrum bókaútgefanda og fréttamann. Ljóđin orti Ólafur síđustu tvö ár ćvi sinnar eftir ađ hann greindist međ MND-sjúkdóminn, hreyfitaugahrörnun, og missti máliđ af völdum hans. Ţótt hann vćri nánast alveg orđinn lamađur frá tungurótum og niđur í tćr er ljóst af ljóđunum ađ baráttuviljinn var óbilandi, hugurinn frjáls og flögrađi víđa.

 

Á kápu bókarinnar er vitnađ til umsagnar Matthíasar Johannessen um ljóđ Ólafs en ţar segir: „Ólafur hefur ljóđskáldstaugar, er persónulegur og hlýr og er nćmur fyrir landi og umhverfi. En mesta athygli vekur ţrekmikiđ ćđruleysi og afstađa hans til lífs og dauđa.“

 

Ólafur Ragnarsson lést ţann 27. mars síđastliđinn en bókin kom úr prentverkinu nokkrum dögum áđur.

 

Agnarsmá brot úr eilífđ fór strax á útgáfudegi í annađ sćti metsölulista Eymundssonar yfir innbundin skáldverk.

meira >

Strákurinn í röndóttu náttfötunum lofađur
(8.04.2008)

Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne er "bók sem lćtur engan ósnortinn," ađ mati Katrínar Jakobsdóttur gagnrýnanda. Ţetta kom fram í ţćttinum Mannamáli í umsjá Sigmundar Ernis á Stöđ 2 á dögunum. Ţađ leynir sér ekki í samtali ţeirra ađ ţau féllu bćđi fyrir ţessari einstöku bók, t.d. segir Sigmundur Ernir á einum stađ: "Ég tek eftir ađ ţú ert nokkuđ heilluđ af ţessari bók." Og ekki vildi Katrín sverja fyrir ţađ.

Umfjöllunina má sjá í heild sinni hér. Ţađ má segja ađ Katrín og Sigmundur Ernir séu svipađrar skođunar og gagnrýnandi Irish Times sem sagđi í umsögn sinni um Strákinn í röndóttu náttfötunum: "Ég sat eftir međ tárin í augunum."

meira >

(6.04.2008)

Ljóđabók Ólafs Ragnarssonar, Agnarsmá brot úr eilífđ, er mest selda innbundna skáldverkiđ í Eymundsson um ţessar mundir. Ţađ stađfestir metsölulisti dagsins. Fast á hćla honum á listanum koma gamlir kunningjar hans, höfundar sem Ólafur gaf út á löngum ferli: Ţórarinn Eldjárn er í öđru sćti, Steinn Steinarr í ţví ţriđja og Halldór Laxness í ţví sjöunda og níunda.

Agnarsmá brot úr eilífđ hefur ađ geyma ljóđ sem Ólafur orti tvö síđustu ár ćvi sinnar en hann lést eftir harđa glímu viđ MND-sjúkdóminn ţann 27. mars síđastliđinn.

meira >

(5.04.2008)

Síminn á skrifstofum Veraldar hefur ekki stoppađ ađ undanförnu vegna kápumyndarinnar á bókinni Strákurinn í röndóttu náttfötunum. Menn spyrja einum rómi: Hvađ merkir ţríhyrningurinn á náttfötunum? Hér er ţví til ađ svara ađ myndin er fengin frá safninu í Auschwitz í Póllandi og sýnir fanga í útrýmingarbúđunum. Nasistar skráđu fanga međ númerum og ţríhyrningi eđa Davíđsstjörnu og fór ţađ eftir ţví hvađa flokki fanga viđkomandi tilheyrđi og ástćđu ţess ađ hann hafđi veriđ sendur til Auschwitz.

Sagan Strákurinn í röndóttu náttfötunum hefur veriđ hlađin lofi um víđa veröld og nćgir ţar ađ nefna ađ Guardian sagđi ađ ţetta vćri “undraverđ skáldsaga”, USA Today ađ hún vćri “kraftmikil og hrífandi” og gagnrýnandi Irish Independent komst svo ađ orđi: “Ţessi bók er svo einföld, svo áreynslulaus ađ hún nálgast fullkomnun. Ég sat eftir međ tárin í augunum.”

meira >

Vćntanleg á sjö erlendum tungumálum
(5.04.2008)

Bókaforlagiđ Veröld hefur gengiđ frá samningum um útgáfu á Ösku eftir Yrsu Sigurđardóttur í Noregi og Danmörku. Ţar međ er ljóst ađ ţessi glćpasaga Yrsu kemur út á ađ minnsta kosti sjö erlendum tungumálum en áđur hefur veriđ samiđ um útgáfu á ţýsku, pólsku, grísku, sćnsku og um allan hinn spćnskumćlandi heim. Ţá standa yfir samningaviđrćđur viđ forlög víđa um lönd.

 

Aska er ţriđja glćpasaga Yrsu Sigurđadóttur. Hún var ein mest selda bók síđustu jólavertíđar og hlaut góđa dóma, međal annars fimm stjörnur í Fréttablađinu. Frumraun hennar á ţessu sviđi, Ţriđja tákniđ, kom út áriđ 2005 og er engin íslensk skáldsaga eftir núlifandi höfund vćntanleg á fleiri tungumálum en ţau eru nú orđin meiri en ţrjátíu talsins. Sér grefur gröf kemur um ţessar mundir út víđa um heim en útgáfurétturinn á henni hefur veriđ seldur á fjórtán tungumálum. Ţetta var jafnframt fyrsta bók Yrsu til ađ komast inn á erlenda metsölulista en ţađ gerđist bćđi í Ţýskalandi og Austurríki.

meira >

(4.04.2008)

Ólafur Ragnarsson, sem borinn er til grafar í dag, er einhver hugdetturíkasti mađur sem ég hef kynnst. Hugmyndirnar kviknuđu ein af annarri hjá honum, hann hafđi ánćgju af ţví ađ rćđa ţćr viđ samstarfsmenn, hreif alla međ sér – og var um leiđ hrifnćmur sjálfur; eitt leiddi af öđru, stuttur fundur ađ morgni um stöđu bókaklúbbs hjá Vöku-Helgafelli áđur en menn héldu til verka varđ ađ maraţonsetu ţar sem hugmyndir ađ nýjum bókum, ritröđum eđa öđru fćddust hver af annarri. Undir kvöld var ţessum “stutta” fundi slitiđ. Tilefni hans var kannski löngu gleymt en í stađinn höfđu menn ef til vill dottiđ niđur á óvćnta leiđ til ađ vekja athygli á verkum Halldórs Laxness erlendis, lagt drög ađ kynningarefni, hringt nokkur símtöl og sett allt í gang.

 

Ég kynntist Ólafi Ragnarssyni haustiđ 1991 ţegar ég réđ mig í sex vikna verkefni hjá Vöku-Helgafelli. Ţetta varđ upphafiđ ađ ógleymanlegum kynnum og vináttu sem er mér ákaflega dýrmćt og aldrei bar skugga á.

meira >

Kemur fyrst út á Íslandi í haust
(4.04.2008)

Bókaforlagiđ Veröld hefur gengiđ frá samningi um útgáfu á nćstu glćpasögu Yrsu Sigurđardóttur hjá Fischer Verlag í Ţýskalandi – áđur en hún hefur skilađ inn handriti ađ sögunni. Glćpasagan, sem enn hefur ekki hlotiđ nafn, kemur út á Íslandi í haust. Ţetta sýnir sterka stöđu Yrsu á ţýskum bókamarkađi en Ţriđja tákniđ og Sér grefur gröf hafa selst í á annađ hundrađ ţúsund eintökum ţar í landi og sú síđarnefnda ratađi meira ađ segja inn á kiljulistann ţar í lok nýliđins árs. Ţriđja glćpasaga Yrsu, Aska, kemur út í haust í Ţýskalandi en verk hennar eru vćntanleg á yfir ţrjátíu tungumálum um allan heim.

 

Yrsa hefur veriđ dugleg ađ fylgja eftir bókum sínum í Ţýskalandi og er einmitt um ţessar á upplestrarferđ ţar um slóđir.

meira >

(3.04.2008)

Föstudaginn 4. apríl verđa skrifstofur Veraldar og Bjarts lokađar frá kl. 10-14 vegna jarđarfarar Ólafs Ragnarssonar bókaútgefanda en hún fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Ólafur var annar stofnenda Veraldar áriđ 2005 en varđ ađ draga sig út úr fyrirtćkinu í ársbyrjun 2006 vegna heilsubrests. Í fyrra kom út hjá Veröld bók hans Til fundar viđ skáldiđ Halldór Laxness og á nćstunni verđur gefin út ljóđabók hans Agnarsmá brot úr eilífđ.

Ólafur Ragnarsson hóf bókaútgáfu áriđ 1981 er hann stofnađi Vöku ásamt Elínu Bergs, eiginkonu sinni. Fjórum árum síđar keypti Vaka hiđ gamalgróna forlag Helgafell. Ólafur varđ innan fárra ára einn umsvifamesti útgefandi landsins. Vaka-Helgafell sameinađist Máli og menningu undir merkjum Eddu - miđlunar og útgáfu áriđ 2000 og tveimur árum síđar sagđi Ólafur skiliđ viđ félagiđ. Hann stofnađi síđan Veröld međ Pétri Má Ólafssyni áriđ 2005.

meira >

“Gimsteinn“ - “Hrein snilld“ - segja lesendur
(3.04.2008)

Ljóđabók Ólafs Ragnarssonar, Agnarsmá brot úr eilífđ, er enn í fyrsta sćti á metsölulista Eymundssonar yfir innbundin skáldverk. Ţađ er ljóst ađ ţrekmikiđ ćđruleysi Ólafs hefur heillađ lesendur um land allt. Útgáfunni barst t.d. nýlega óvćnt umsögn Skúla Jóns Sigurđarsonar, fyrrverandi forstöđumanns Rannsóknarnefndar flugslysa. Hann sagđi: "Bókin hans Ólafs er gimsteinn og perlurnar í henni snerta viđkvćma strengi í brjósti hvers manns." Ţá bloggađi Hulda Sigurdís Ţráinsdóttir um bókina á dögunum og ritađi: "Ţessi bók er hrein snilld. Fyrir utan ađ vera virkilega falleg og smekklega unnin eru ljóđin ótrúlega falleg. Ţau eru svo full af tilfinningu og ţroska. Mćli sérstaklega međ ljóđinu Hugarhiminn. Ţetta er bók sem enginn alvöru ljóđaunnandi má láta framhjá sér fara." meira >

Ný kilja hjá Veröld: Strákurinn í röndóttu náttfötunum
(1.04.2008)

Veröld hefur gefiđ út í kilju írsku skáldsöguna Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne í ţýđingu Áslaugar Agnarsdóttur og er ţetta frumútgáfa á íslensku. Bruno, sem er níu ára ţýskur drengur í síđari heimsstyrjöld, veit ekkert um helförina eđa grimmdarverk landa sinna erlendis. Dag einn flytur fjölskyldan úr notalegu húsi ţeirra í Berlín og upp í sveit ţar sem hann hefur engan til ađ leika viđ.

 

Ţar kynnist hann Shmuel; strák sem lifir undarlegu lífi handan girđingar og klćđist ţar ađ auki röndóttum náttfötum – eins og allir ađrir hinum megin gaddavírsins. En vinátta Brunos og Shmuels á eftir ađ draga dilk á eftir sér og hafa ófyrirsjáanlegar afleiđingar.

 

Bókin hefur veriđ hlađin lofi um víđa veröld og nćgir ţar ađ nefna ađ Guardian sagđi ađ ţetta vćri “undraverđ skáldsaga”, USA Today ađ hún vćri “kraftmikil og hrífandi” og gagnrýnandi Irish Independent komst svo ađ orđi: “Ţessi bók er svo einföld, svo áreynslulaus ađ hún nálgast fullkomnun. Ég sat eftir međ tárin í augunum.”

 

Hollywoodmynd á leiđinni
Framleiđendur Harry Potter myndanna, kvikmyndafyrirtćkiđ Heyday, hefur nú lokiđ framleiđslu á kvikmynd byggđri á bókinni og verđur hún frumsýnd innan skamms.

meira >

Síđa 49 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar