|
Í viku bókarinnar, sem nú stendur yfir, geta Íslendingar loksins prentađ peninga. Á heimasíđu Félags íslenskra bókaútgefenda býđst ţér ađ prenta út 1.000 króna ávísun sem ţú getur leyst út í nćstu bókabúđ. Eina skilyrđiđ er ađ ţú kaupir bćkur útgefnar á Ísland fyrir ađ minnsta kosti 3.000 krónur. Ţú leggur fram 2.000 krónur - og fćrđ 1.000 krónur ađ gjöf! Viđ hvetjum alla til ađ bregđa undir sig betri fćtinum og skella sér í nćstu bókabúđ. Ţar er međal annars ađ finna frábćrar kiljur á borđ viđ Ösku eftir Yrsu Sigurđardóttur, Strákinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne, Frjáls eftir Ayaan Hirsi Ali, auk metsöluljóđabókar Ólafs Ragnarssonar, Agnarsmá brot úr eilífđ. Ávísunina má, eins og fyrr segir, prenta út hér.
Gleđilega bókaviku!
meira >
|
|
Aska eftir Yrsu Sigurđardóttur er enn í öđru sćti á nýjum metsölulista Eymundssonar yfir allar bćkur - ađra vikuna í röđ. Ţađ er ţví óhćtt ađ segja ađ ţessi fimm stjörnu glćpasaga Yrsu njóti mikilla vinsćlda međal ţjóđarinnar en Aska var međal mest seldu bóka síđasta árs í innbundnu formi. Nú ţegar hefur veriđ samiđ um útgáfu á Ösku víđa um lönd en bćkur Yrsu eru vćntanlegar á meira en ţrjátíu tungumálum í öllum byggđum heimsálfum jarđar. Engin bókaútgáfa á fleiri bćkur á ađallista Eymundssonar en samsteypan Bjartur Veröld og hafa menn fagnađ af minna tilefni!
meira >
|
Ólafur Ragnarsson átti ađ baki merkan feril sem útgefandi, fyrst hjá Vöku, síđar Vöku-Helgafelli og Eddu - útgáfu og miđlun og loks Veröld. Ţá liggja eftir hann ýmis ritverk og ber ţar hćst ţrjár bćkur um Halldór Laxness.
Starfsmenn Bjarts Veraldar senda eftirlifandi eiginkonu Ólafs, Elínu Bergs, sonum ţeirra, Ragnari Helga og Kjartani Erni, og fjölskyldu ţeirra allri innilegar samúđarkveđjur.
meira >
|
|
Sasa Stanisic fékk á dögunum virt bókmenntaverđlaun, sem kennd eru viđ Adelbert von Chamisso, fyrir bók sína Hermađur gerir viđ grammófón en hún kom út hjá Veröld fyrir síđustu jól. Verđlaunin, sem nema 15.000 evrum, eru veitt höfundi sem skrifar á ţýsku enda ţótt hún sé ekki móđurmál hans. Stanisic er ađ mati dómnefndar framúrskarandi hćfileikaríkur og bók hans allt í senn fyndin og sorgleg, létt og erfiđ, ljóđrćn og áköf.
Hermađur gerir viđ grammófón er frumraun Stanisic á skáldsagnasviđinu. Hann var gestur Bókmenntahátíđar í Reykjavík á liđnu hausti og hlaut afar lofsamlega dóma í íslenskum fjölmiđlum fyrir sögu sína.
meira >Lesbók Morgunblađsins birti á dögunum ljóđiđ Vetur ásamt fallegri myndskreytingu. Höfundur var sagđur Ólafur Ragnarsson og ađ hann fengist viđ ritstörf. Fjölmargir hafa velt ţví fyrir sér hvort ţetta sé sami Ólafur Ragnarsson og var um árabil umsvifamikill útgefandi og höfundur ýmissa rita almenns efnis, m.a. tveggja stórra bóka um Halldór Laxness.
Ţađ skal upplýst hér ađ ţetta er einn og sami mađurinn - og ţađ sem meira er: Fyrsta ljóđabók Ólafs, Agnarsmá brot úr eilífđ, er vćntanleg hjá Veröld innan skamms. Yrkisefni Ólafs eru margbreytileg og persónuleg og snerta lesandann. Á kápu er vitnađ í Matthías Johannessen skáld sem segir um ljóđ Ólafs: "Ólafur hefur ljóđskáldstaugar, er persónulegur og hlýr og er nćmur fyrir landi og umhverfi. En mesta athygli vekur ţrekmikiđ ćđruleysi og afstađa hans til lífs og dauđa."
Agnarsmá brot úr eilífđ kemur út innan fárra vikna en ţangađ til geta lesendur yljađ sér viđ lestur Vetrar međ ţví ađ smella hér.
meira >
|
Aska eftir Yrsu Sigurđardóttur stökk beint í annađ sćti metsölulista Eymundssonar yfir allar bćkkur sem gefinn var út í dag. Ađeins Ţúsund bjartar sólir eftir Khaled Hosseini er ofar. Aska kom sem kunnugt er út fyrir síđustu jól í innbundnu formi og hlaut frábćrar viđtökur, fékk m.a. fimm stjörnur í Fréttablađinu. Ţá hefur veriđ samiđ um útgáfu á Ösku víđa um lönd.
Fyrri glćpasögur Yrsu, Ţriđja tákniđ og Sér grefur gröf, eru enn sem fyrr á lista yfir mest seldu kiljur landsins - nú í 14. og 15. sćti.
meira >Metsölubókin Frjáls eftir Ayaan Hirsi Ali er komin út í kilju. Ali var einn umtalađasti gestur Bókmenntahátíđarinnar í Reykjavík á liđnu hausti. Ţangađ kom hún í tilefni af útgáfu ćvisögu sinnar í innbundnu formi hjá Veröld. Ali flúđi kúgun og harđrćđi í Sómalíu og víđar en tókst ađ breyta veröldinni međ hugrekki sínu. Hún varđ ţingmađur í Hollandi en leitađi skjóls í Bandaríkjunum undan ofsóknum múslima og er hennar gćtt ţar allan sólarhringinn. Í bókinni Frjáls segir Ali frá lífi sínu sem er ćvintýri líkast.
Frjáls hefur hlotiđ mikiđ lof austan hafs og vestan. Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablađsins, ritađi um Ali á liđnu hausti: "Ayaan Hirsi Ali er ein merkasta hetja okkar tíma. ... Lífshlaup hennar er dramatísk hetjusaga." Egill Helgason tók í sama streng í ţćtti sínum Kiljunni og sagđi ađ Ali vćri "einn hugađasti einstaklingur samtíđarinnar og hugsanlega einn sá áhrifamesti."
Gagnrýnandi The New York Times sagđi í umsögn sinni um bókina: "Fagurlega skrifađar minningar sem bera vott um ótrúlegan kjark." Og ekki var síđri dómurinn í The Wall Street Journal ţar sem sagđi ađ Frjáls vćri "heillandi sjálfsćvisaga." Í umsögn Sunday Times kom fram ađ ţetta vćri "stórkostleg bók" og ađ Frjáls sýndi "ađ kjörkuđ kona getur breytt sögunni - ekki bara eigin örlögum." Vikuritiđ Time útnefndi Ayaan Hirsi Ali fyrir skemmstu einn af 100 áhrifamestu einstaklingum samtímans.
meira >Síđa 50 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

