Ţau tíđindi urđu í dag ađ Guđni Ágústsson lagđi sjálfan Harry Potter á metsölulista Eymundssonar - međ hjálp ćvisöguhöfundar síns, Sigmundar Ernis, og Yrsa Sigurđardóttir stökk beint í 39. sćti ţýska kiljulistans sem birtur verđur mánudaginn 10. desember međ glćpasögu sína Sér grefur gröf. Ţá nartar hún enn í hćlana á Arnaldi Indriđasyni á metsölulistum hérlendis međ nýjustu bók sinni, Ösku. Ţá er bók Ólafs Ragnarssonar, Til fundar viđ skáldiđ Halldór Laxness, komin á fljúgandi siglingu - enda mál manna ađ hér sé líklega komin skemmtilegasta Laxnessbókin.
Menn hafa fagnađ af minna tilefni og ţví hefur veriđ ákveđiđ ađ draga út flugmiđa fyrir tvo til Barcelona í bođi Heimsferđa í Veröldinni okkar og sá heppni fćr einnig bćkurnar ţrjár, Guđni - Af lífi og sál, Ösku og Til fundar viđ skáldiđ Halldór Laxness. Netfangiđ sem dregiđ var út er: einsi@emax.is.
meira >"Aska er hörkuvel fléttuđ glćpasaga," segir Áki G. Karlsson á www.kistan.is. Ţar međ er fyrsti dómurinn um ţriđju glćpasögu Yrsu Sigurđardóttur fallinn og ekki hćgt ađ kvarta yfir honum - ţvert á móti. Áki heldur síđan áfram: "Ţađ sem ber verkiđ uppi er vel riđinn söguţráđur, úthugsuđ flétta sem heldur lesandanum viđ efniđ međ ţví ađ gefa hćfilega mikiđ af upplýsingum og skilja eftir nógu marga lausa enda ţegar glittir í lausn gátunnar til ađ teyma mann áfram alveg ţar til hinn óvćnti endahnútur er festur." Hann lýkur umsögn sinni međ ţessum orđum: "Aska er spennandi frá upphafi til enda, hreinrćktuđ glćpasaga ţar sem fléttan sjálf er í fyrirrúmi og glćsilega tekst til ađ teyma lesandann frá einum kafla til ţess nćsta án ţess ađ gefa nokkurn tíma slaka."
Aska eftir Yrsu Sigurđardóttur er vćntanleg á markađ í á ţriđja tug landa en nú ţegar hefur veriđ samiđ um útgáfu á henni í Ţýskalandi, Póllandi, Grikklandi og um allan hinn spćnskumćlandi heim.
meira >Páll Baldvin Baldvinsson jós bók Ólafs Ragnarsson, Til fundar viđ skáldiđ Halldór Laxness, miklu lofi í Kiljunni í Ríkissjónvarpinu í gćrkvöldi. Hann sagđi ađ í ţessu verki kćmist mađur "eina ferđina enn ađ ţví hvađ [Halldór Laxness] var ótrúlega brilljant." Ađ mati hans er bókin ákaflega upplýsandi og ađ hún vćri mjög ţarft rit. Síđan tók hann undir ţá skođun sem víđa hefur heyrst ađ hér sé komin skemmtilegasta Laxnessbókin. Hér er ađ finna upptöku á ţćttinum.
Bók Ólafs Ragnarssonar hefur líklega ađ geyma síđustu óbirtu samtölin viđ Halldór Laxness. Ţeir fara um víđan völl í spjalli sínu og er óhćtt ađ segja ađ hér fái lesandinn svolítiđ ađra mynd af Nóbelsskáldinu en í hinum gömlu viđhafnarviđtölum.
meira >Aska er í öđru sćti skáldsagnalista Félagsvísindastofnunar sem birtur er í Morgunblađinu í dag. Og Guđni - Af lífi og sál er í öđru sćti á lista yfir ćvisögur. Ţá eru ţćr báđar á lista yfir mest seldu bćkur vikunnar ţegar allir flokkar eru teknir saman, Guđni í fjórđa sćti og Yrsa í ţví sjötta. Harry Potter sem systurforlag Veraldar, Bjartur, gefur út klemmist ţar á milli í fimmta sćti. Ţađ er ţví gaman ađ segja frá ţví ađ minnst risinn á markađnum, Bjartur Veröld, er međ ţrjár af sex mest seldu bókum landsins ţessa vikuna - fleiri en nokkur önnur útgáfa.
Aska og Guđni - Af lífi og sál eru báđar uppseldar á lager en nýjar prentanir fara í verslanir í dag og á morgun. Menn ţurfa ţví ekki ađ örvćnta - ţađ verđur nóg til fyrir alla. Ţess má einnig geta ađ hvortveggja bókin verđur prentuđ aftur í nćstu viku.
meira >Menn segja ađ valt sé veraldargengiđ en gengi Veraldar hefur aldrei veriđ betra en ţessar vikurnar. Guđni - Af lífi og sál og Aska eftir Yrsu Sigurđardóttur stefna í algjöra metsölu og á Veröld ţví tvćr af mest seldu bókum landsins ţessar vikurnar. Ţá tók Páll Baldvin Baldvinsson í Kiljunni í gćr undir ţá skođun ađ Til fundar viđ skáldiđ Halldór Laxness sé skemmtilegasta Laxnessbókin.
Menn hafa fagnađ af minna tilefni og ţví drögum viđ út fimm nýja vinningshafa en ađ ţessu sinni ţótti rétt ađ velja bók sem hćfđi tilefninu: Topp tíu. Hinir heppnu eru:
thorir@tryggir.is
bibs@simnet.is
sololga@hotmail.com
ellaclausen@simnet.is
jonafh@strik.is
Guđni - Af lífi og sál eftir ţá Guđna Ágústsson og Sigmund Erni Rúnarsson og Aska eftir Yrsu Sigurđardóttur eru á slíku flugi í bókaverslunum landsmanna ađ erfiđlega gengur ađ anna eftirspurn.
Bćkurnar voru varla komnar á markađ ţegar útgefandinn pantađi ný risaupplög af báđum titlum í Prentsmiđjunni Odda. Nú er svo komiđ ađ hvortveggja bókin er uppurin á lager. Síđasta eintakiđ af Guđna (bókinni) fór af lager í gćr og kl. 9.27 í morgun (ađ stađartíma) hvarf síđasta Askan út um dyrnar.
Björn Heimir Björnsson, yfirađalframleiđslustjóri Odda, sagđi í samtali viđ www.verold.is í morgun, eftir ađ hafa ráđfćrt sig viđ framkvćmdastjóra markađssviđs fyrirtćkisins, Eyţór Pál Hauksson, ađ ţar á bć legđu menn nótt viđ dag, bćttu viđ vöktum og aukavöktum, svo ađ afhenda megi bćkurnar sem fyrst. Hann segir ađ takmarkiđ sé ađ Oddalestin bruni af stađ međ bćkurnar síđdegis á morgun, miđvikudag, og megi hann hundur heita takist ţađ ekki. Og, eins og áđur hefur komiđ fram á ţessum vettvangi: Ţegar Björn Heimir, yfirađalframleiđslustjóri í Odda, hefur talađ - (og ráđfćrt sig viđ Eyţór Pál Hauksson framkvćmdastjóra markađssviđs fyrirtćkisins) ţá hefur hann talađ. Ađdáendum Guđna og Ösku er ţví ráđlagt ađ halda ró sinni - ţađ verđur nóg til fyrir alla!
meira >
|
Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurđardóttur er níunda mest selda skáldsagan í kilju í Austurríki ţessa vikuna og hćkkar sig um eitt sćti frá fyrri viku. Listinn birtist í Buchmarkt. Yrsa hefur ekki náđ jafn hátt á erlendum metsölulista. Ţá situr Sér grefur gröf í 50. sćti ţýska kiljulistans sem birtur var í vikunni en bókin stökk beint í 39. sćti listans ţegar hún kom út fyrr í mánuđinum.
Sér grefur gröf kom út á Íslandi í fyrra en fer nú á markađ víđa um lönd. Spánverjar riđu á vađiđ fyrr í sumar, Svíar fylgdu í kjölfariđ, Ţjóđverjar voru nćstir og síđan birtast ţćr ein af annarri en alls er Sér grefur gröf vćntanleg á fjórtán tungumálum, m.a. í Bandaríkjunum og Bretlandi. Ţriđja tákniđ eftir Yrsu er vćntanlegt á 31 tungumáli um víđa veröld. Nýveriđ kom út ţriđja glćpasaga Yrsu, Aska, og hefur nú ţegar veriđ samiđ um útgáfu á henni í á ţriđja tug landa. meira >Hildur Heimisdóttir, gagnrýnandi Fréttablađsins, gefur Ösku Yrsu Sigurđardóttur fimm stjörnur í sunnudagsblađinu og gagnrýnandi Morgunablađsins, Björn Ţór Vilhjálmsson, segir í laugardagsblađinu ađ Yrsa fari á kostum í persónusköpuninni og lesendur fyrri bóka hennar muni taka Ösku fagnandi. Áđur birtist dómur á Kistunni eftir Áka G. Karlsson sem sagđi ađ Aska vćri "hörkuvel fléttuđ glćpasaga" sem vćri "spennandi frá upphafi til enda".
meira >Síđa 52 af 63: <-síđasta | nćsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

