|
|
Þriðja táknið “óvenjuleg glæpasaga“
(7.10.2007)
Bandaríska stórblaðið New York Times fjallar í dag um þrjá norræna höfunda, Arnald Indriðason, Yrsu Sigurðardóttur og Mari Jungstedt frá Svíþjóð. Tilefnið er að bækur þessara höfunda koma nú út vestra, Röddin eftir Arnald, Þriðja táknið eftir Yrsu og Ósagt eftir Mari Jungstedt. Höfundur greinarinnar segir að norrænum glæpasagnahöfundum hætti til að vera drungalegir í skrifum sínum en þessar þrjár bækur sýni að þeir hljómi sannarlega ekki allir eins. Hann segir að Arnaldur komist næst hinni þunglyndislegu viðkvæmni sem búast megi við á Íslandi með Röddinni en sagan einkennist af hörkulegri fegurð. Þriðja táknið sé mjög óvenjuleg glæpasaga þar sem hið alræmda rit, Nornahamarinn, leiki stórt hlutverk ásamt göldrum fyrr á tíð en gagnrýnandinn segir það gera söguna bara áhugaverðari að hún sé blandin hryllingi. Þá segir gagnrýnandinn að sænska bókin sé meira í ætt við hreinræktaða spennusögu. Afar fátítt er að fjallað sé um núlifandi íslenska höfunda í The New York Times - hvað þá tvo í einu. meira >
“Frábær glæpasaga“
(4.10.2007)
Einn áhrifamesti gagnrýnandi heims segir að Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur sé “frábær glæpasaga” og gefur bókinni fimm stjörnur af fimm mögulegum en bókin kom út á dögunum í Bandaríkjunum. Gagnrýnandinn áhrifamikli, Harriet Klausner, segir að bókin sé spennandi og skemmtileg aflestrar, ráðgátan hugvitssamlega smíðuð og lesandinn geti fundið marga hugsanlega sökudólga, jafnvel þegar lögreglan telji sig vera búna að leysa málið öðru sinni. Stórblaðið The New York Times sagði nýverið að Þriðja táknið væri frumleg glæpasaga og það gerði söguna bara áhugaverðari að vera blandin hryllingi. Þriðja táknið var frumraun Yrsu Sigurðardóttur á sviði glæpasagna og er sagan væntanleg á þrjátíu tungumálum um víða veröld. meira >
(4.10.2007)
Dregið hefur verið úr þeim sem skráðir eru í Veröldina okkar og hlýtur einn þátttakandi miða fyrir tvo á söngleikinn vinsæla Abbababb! eftir Dr. Gunna sem gengur nú fyrir fullu húsi í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Bók sem byggir á söngleiknum kemur út hjá Veröld nú um mánaðarmótin. Vinningshafinn fær að auki bókin Topp tíu að gjöf en þar er að finna tíu stærstu, minnstu, fjölmennustu, fámennustu, hæstu, lengstu, stystu, bestu, verstu, eitruðustu ... fyrirbæri í heimi. Nánari upplýsingar um Topp tíu má finna hér.
Netfangið sem dregið var út er: soh13@hotmail.com og verður haft samband við viðkomandi. Hinum, sem ekki fengu vinning, er hins vegar bent á að eftir er að draga út ferðir til Barcelona, Kraká, Prag og Vestmannaeyja, auk miða á safnið á Gljúfrasteini. meira >
Fjallar um mesta skipsskaða allra tíma
(3.10.2007)
Skáldsagan Krabbagangur eftir Günter Grass er væntanleg hjá Veröld innan skamms. Engin bók Nóbelsskáldsins hefur vakið viðlíka athygli síðan hann sendi frá sér Blikktrommuna fyrir meira en fjörutíu árum.
Sagan fjallar um mesta skipsskaða allra tíma þegar sovéskur kafbátur sökkti Wilhelm Gustloff í Eystrasalti að morgni 31. janúar 1945. Um borð voru yfir 10.000 Þjóðverjar; hermenn, sjómenn, áhöfn og flóttamenn, en talið er að á meðal farþega í þessari örlagaríku ferð hafi verið um fjögur þúsund börn. Tæplega átta þúsund manns fórust með skipinu.
Krabbagangur er hvorttveggja í senn magnþrungin frásögn af hrikalegum harmleik á sjó og vægðarlaus saga um það hvaða augum ólíkar kynslóðir Þjóðverja líta fortíðina. meira >
Sjáðu kvikmyndina sem kostaði Theo van Gogh lífið
(9.09.2007)
Ævisaga Ayaan Hirsi Ali, Frjáls, kom í gær út hjá Veröld í þýðingu Árna Snævarr í tilefni af komu Ali á Bókmenntahátíðina í Reykjavík um helgina. Vikuritið Time útnefndi Ali meðal 100 áhrifamestu einstaklinga samtímans árið 2005. Sómalski flóttamaðurinn Ayaan Hirsi Ali er ein umtalaðasta og dáðasta kona veraldar nú um stundur. Athygli heimsins beindist óvænt að henni í kjölfarið á því að íslamskur öfgamaður myrti hollenska kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh og hótaði að hún yrði næst. Þá átti hún sæti á hollenska þinginu. Um árabil hefur hún neyðst til að fara huldu höfði en lífi hennar hefur margsinnis verið ógnað. Deilur um ríkisborgararétt hennar ollu óbeint sjórnarslitum í Hollandi. Hér má lesa magnaðan inngang ævisögu hennarar og á Youtube er að finna kvikmyndina sem hún gerði ásamt Theo van Gogh og kostaði hann lífið. Hún nefnist Submission I eða Undirgefni I. meira >
Stanisic lofaður í Lesbókinni
(9.09.2007)
Hermaður gerir við grammófón eftir Sasa Stanisic fær afar lofsamlegan dóm í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Björn Þór Vilhjálmsson segir þar að bókin sé allt í senn, sorgleg, gamansöm og bráðfyndin. Björn Þór er þannig sammála Jóni Yngva Jóhannssyni sem sagði á Stöð 2 í vikunni að þetta væri "mögnuð stríðssaga" og gaf henni þrjár og hálfa stjörnu. Jón Yngvi gekk meira að segja svo langt að segja að sagan minnti á meistaraverkin Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum, Blikktrommuna og Góða dátann Svejk. meira >
Ayaan Hirsi Ali les í Iðnó á sunnudagskvöld
(7.09.2007)
Bókmenntahátíðin í Reykjavík verður sett í Norræna húsinu á sunnudag kl. 17. Þar ávarpar meðal annars nóbelsskáldið J. M. Coetzee samkomuna ásamt Thor Vilhjálmssyni. Veislan heldur áfram um kvöldið í Iðnó þar sem Ayaan Hirsi Ali les upp úr ævisögu sinni, Frjáls, sem út kemur hjá Veröld í tilefni af heimsókn hennar á hátíðina. Ali verður síðan í viðtali á sviði í Norræna húsinu í hádeginu á mánudag. Annar Veraldarhöfundur, Sasa Stanisic, verður í pallborðsumræðum í hádeginu á þriðjudag í Norræna húsinu og les úr bók sinni Hermaður gerir við grammófón á fimmtudagskvöld í Iðnó. Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar í þaula á vefsetri hennar, www.bokmenntahatid.is. meira >
Inniklósetti fagnað gífurlega
(6.09.2007)
Í dag kemur út hjá bókaforlaginu Veröld skáldsagan Hermaður gerir við grammófón eftir Sasa Stanišić í þýðingu Bjarna Jónssonar. Þetta er gáskafull saga með alvarlegum undirtón sem vakið hefur mikla athygli og fengið frábæra dóma. Stanisic fæddist í Visegrad í Bosníu árið 1978 en 14 ára gamall flúði fjölskyldan hildarleikinn ógurlega á Balkanskaganum til Þýskalands og er sagan byggð á minningum hans. Stanišić er gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Knattspyrna á jarðsprengjusvæðiHermaður gerir við grammófón segir frá Aleksandar sem elst upp í litlu þorpi í Bosníu. Hann hefur miklar frásagnargáfu sem hann hefur frá afa sínum. Bókin er uppfull af sögum af fjölskyldu Aleksandars og þorpsbúum; til dæmis er sagt frá veislu sem haldin er í tilefni af nýju inniklósetti, frá kokkáluðum eiginmanni sem ferðast um landið þvert og endilangt í leit að nýrri móður fyrir son sinn, ótrúlegum fótboltaleik milli stríðandi fylkinga í vopnahléi þar sem völlurinn er umlukinn jarðsprengjum. Hvað gerist þegar boltinn fer út af? Stríðið leggur veröld Aleksandars í rúst og hann verður að flýja til Vesturlanda – með frásagnargáfuna að vopni og það er listin að segja sögur sem bjargar lífi hans. “Bók sem maður vill að allir lesi”Gagnrýnandi tímaritsins Spiegel sagði í umsögn um Hermaður gerir við grammófón að þrátt fyrir efni sögunnar væri sagan létt og skemmtileg en umfram allt geisli hún af lífsgleði og sé full af stórbrotnum persónum og fáránlegum aðstæðum. Gagnrýnandi Die Welt sagði að Hermaðurinn væri “stórkostleg frumraun”, þetta væri “saga um það að glata föðurlandi sínu, saga um uppvöxt á stríðstímum, fjölskyldualbúm með gríðarlegum húmor. Stanisic kennir okkur sitthvað um mátt frásagnarlistarinnar og sýnir að með sögum getum við náð því sem töfrar megna ekki: að sigrast á veruleikanum.” Gagnrýnandi Welt am Sonntag sagði að þetta væri bók sem maður vildi að allir læsu. meira >
Þriðja táknið lofað í Bandaríkjunum
(6.09.2007)
Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur kemur á markað í Bandaríkjunum hjá bókaforlaginu William Morrow næstkomandi mánudag en nú þegar eru umsagnir teknar að birtast um bókina vestra. Tímaritið Kirkus Review segir í nýlegum dómi að Þriðja táknið sé "spennandi, heillandi og einstök" glæpasaga. Gagnrýnandi Library Journal ritar að þetta sé glæpasaga með tveimur vel unnum aðalpersónum, óvenjulegri umfjöllun um nornir, og mælir með bókinni fyrir öll almenningsbókasöfn. Hún sé sérstaklega tilvalin fyrir alla þá er hafi gaman af norrænum glæpasögum. Þá eru teknar að birtast lofsamlegar umsagnir um Þriðja táknið á ýmsum netmiðlum vestan hafs. Þar er Þriðja táknið sagt "ein besta glæpasaga sem komið hafi út á liðnum árum" og að þetta sé "frábær spennusaga." meira >
Jón Yngvi gefur Hermanninum þrjár og hálfa stjörnu
(5.09.2007)
Hermaður gerir við grammófón eftir Sasa Stanisic fékk glæsilega umsögn á Stöð 2 mánudaginn 25. september hjá Jóni Ynga Jóhannssyni. Þetta er að mati hans "ansi mögnuð stríðssaga" og gaf hann henni þrjár og hálfa stjörnu. Þá sagði hann að sig grunaði að þessi bók yrði honum minnisstæðari en Mæling heimsins eftir Daniel Kehlmann en hún var næst mest selda skáldsaga heims árið 2006. Jón Yngvi sagði ennfremur að Hermaðurinn kinkaði kolli til "evrópskra stórvirkja um fyrri stríð, bóka eins og Tíðindalaust á Vesturvígstöðvunum, Blikktrommunnar og jafnvel Góða dátans Svejk." Hér má lesa umsögn Jóns Yngva í heild á bloggsíðu hans. meira >
Síða 55 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63
|