|
|
“Dramatísk hetjusaga“
(2.09.2007)
Það vakti mikla athygli á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík þegar Ayaan Hirsi Ali tók Nóbelsskáldið J.M. Coetzee á beinið fyrir ummæli hans á setningarathöfninni. Hann sagði þar að ritskoðun á Vesturlöndum hefði færst í vöxt á liðnum árum en Ali taldi skáldið vera með of mikla einföldun. Ekki mætti gleyma tilburðum múslíma til að stöðva alla gagnrýna umræðu og sveigja hana að sínum gildum. "Málfrelsi er rétturinn til að móðga," sagði hún í Norræna húsinu. ´ Ali sló rækilega í gegn í heimsókn sinni til Íslands en ævisaga hennar, Frjáls, er nú komin í verslanir. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins fjallaði um deilur Ali og Coetzee og Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, sagði í leiðara að Ali væri ein merkasta hetja okkar tíma. "Lífshlaup hennar er dramatísk hetjusaga." Hægt er að lesa upphaf ævisögu Ali hér. meira >
Rauða hauskúpan og Hr. Rokk á prent
(9.08.2007)
Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem dr. Gunni, skúbbaði því á bloggi sínu að hann ynni nú að bók sem byggði á söngleik hans, Abbababb!, í samvinnu við Fanneyju Sizemore. Það upplýsist hér með að bókin kemur út undir merkjum Veraldar nú á haustmánuðum. Söngleikurinn Abbababb! gekk fyrir fullu húsi í Hafnarfjarðarleikhúsinu í fyrra í uppsetningu leikhópsins Á senunni og hlaut Grímuna sem barnasýning ársins. Sýningar fara aftur í gang nú í haust. Abbababb! segir frá leynifélaginu Rauðu hauskúpunni sem fæst við það að upplýsa sakamál og koma upp um alls kyns illvirki. meira >
Sagan “Hermaður gerir við grammófón“ lofuð í Lesbókinni
(7.08.2007)
Á dögunum birtist í Lesbók Morgunblaðsins afar áhugaverð grein um bókina Hermaður gerir við grammófón eftir Sasa Stanišić sem væntanleg er hjá Veröld á næstunni. Stanišić verður gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík sem hefst þann 9. september næstkomandi. Höfundur greinarinnar, Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, segir að bókin sé "einkar vel heppnuð" og lýkur grein sinni með þeim orðum að langt sé síðan hann hafi lesið áhugaverðari bók. Ólafur Guðsteinn er þannig sammála gagnrýnendum í Þýskalandi, þar sem bókin kom fyrst út, en þeir hafa lokið miklu lofsorði á bók Stanišić . meira >
Skráðu þig á póstlista Veraldar og þú gætir fengið óvæntan glaðning!
(0.08.2007)
Ef þú skráir þig í Veröldina okkar áttu möguleika á glæsilegum vinningum. Þú gætir unnið flugmiða fyrir tvo til Barcelona, Kraká eða Prag í boði Heimsferða, ævintýralega dagsferð fyrir tvo til Vestmannaeyja í boði Flugfélags Íslands, fengið tvo miða á söngleikinn Abbababb! í Hafnarfjarðarleikhúsinu, tvo miða í Hús skáldsins á Gljúfrasteini eða hreppt skemmtilega bókavinninga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig! Einfaldara getur það ekki verið. Við sendum svo óreglulega spennandi fréttir úr jólabókatíðinni með óvæntum tilboðum. Ekki láta happ úr hendi sleppa! meira >
Íslenskar skáldsögur sjaldséðar eystra
(9.07.2007)
Tvö af stærstu forlögum Japans hafa undanfarnar vikur bitist um réttinn á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur en forsvarsmenn Veraldar ákváðu loks að Shueisha skyldi hreppa hnossið. Afar fátítt er að íslenskar skáldsögur komi út á japönsku og eru þetta því nokkur tíðindi. Útgáfurétturinn á Þriðja tákninu hefur þar með verið seldur á þrjátíu tungumálum, auk þess sem þýski framleiðandinn Ziegler Film er með í undirbúningi gerð kvikmyndar eftir sögunni. Yrsa vinnur nú að sinni þriðju glæpasögu sem kemur út hjá Veröld í haust. meira >
Ótrúleg lífssaga og stórkostleg frumraun
(8.06.2007)
Tveir af höfundum Veraldar verða gestir á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík sem fram fer 9.- 15. september næstkomandi. Líklega mun annar þeirra, Ayaan Hirsi Ali, verða einn umtalaðasti höfundurinn þessa haustdaga á Íslandi því að saga hennar er einstök: sómalskur flóttamaður sem varð þingmaður í Hollandi en býr nú í Bandaríkjunum undir stöðugri vernd þar sem öfgamúslimar kváðu upp dauðadóm yfir henni eftir að hún gerði kvikmynd með Theo van Gogh. Hann var myrtur fyrir að leikstýra myndinni. Hinn höfundurinn er Sasa Stanisic, bosnískur flóttamaður í Þýskalandi, sem tilnefndur var til þýsku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Hermaður gerir við grammófón. meira >
Ekkert lát á útrás Yrsu Sigurðardóttur
(6.06.2007)
Veröld hefur gengið frá samningum við ungverska bókaforlagið Animus um útgáfu á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þar með er ljóst að glæpasaga Yrsu kemur á markað á hátt í þrjátíu tungumálum um allan heim. Þriðja táknið hefur þegar verið gefið út víðs vegar um Evrópu, allt frá Noregi í norðri til Ítalíu og Spánar í suðri, frá Hollandi í vestri til Rúmeníu í austri. Fljótlega bætast við nýjar lendur því að bókin er væntanleg í Bandaríkjunum nú í haust og fljótlega í kjölfarið kemur hún á markað í Bretlandi, Rússlandi, Tælandi, Kína og víðar. Þess má geta að á dögunum kom ný útgáfa Þriðja táknsins í verslanir á Íslandi með kápunni sem prýða mun bandaríska útgáfu bókarinnar og er hún því frumsýnd hér á landi. meira >
“Mikill heiður og ánægja að fá að gefa út verk hans“
(5.06.2007)
Nóbelsskáldið Günter Grass hefur ákveðið að skipta um útgefanda á Íslandi og mun Veröld gefa út verk hans hér á landi en áður var hann hjá Eddu útgáfu. Fyrsta bókin sem kemur út undir merkjum Veraldar eftir Grass verður nýjasta skáldsaga hans, Krabbagangur, í þýðingu Bjarna Jónssonar. Krabbagangur fjallar um stærsta skipsskaða 20. aldar þegar sovéskur kafbátur sökkti farþegaskipinu Wilhelm Gustoff í lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Ekki þarf að hafa mörg orð um þann heiður sem fylgir því að gefa út verk einhvers merkasta höfundar samtímans. meira >
Þriðja táknið í höndunum á þekktum bandarískum hönnuði
(1.06.2007)
Ervin Serrano, sem hannað hefur kápur á fjölmargar metsölubækur í Bandaríkjunum, hefur gert nýja kápu á Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur fyrir Morrow-útgáfuna vestra. Bandarísk útgáfa Þriðja táknsins, með kápu Serranos, lítur dagsins ljós nú í haust en íslenskir lesendur fá forskot á sæluna því að Veröld fékk sérstakt leyfi til að "þjófstarta" kápunni hér á landi. Ný kiljuútgáfa Þriðja táknsins er nú komin í verslanir með hönnun Serranos en það er Ragnar Helgi Ólafsson, margverðlaunaður hirðhönnuður Veraldarmanna, sem íslenskar kápuna. Ekki er vitað til þess að áður hafi bandarísk kápa, sem hönnuð er fyrir skáldsögu íslensks höfundar, prýtt hérlenda útgáfu verksins. meira >
Þriðja táknið á rúmensku
(7.05.2007)
Glæpasagan Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur er nú komin út á rúmensku hjá forlaginu Humanitas í þýðingu Sanda Munteanu og nefnist hún Ultimul Ritual. Þessi frumraun Yrsu á glæpasagnasviðinu er væntanleg á hátt í þrjátíu tungumálum í öllum byggðum heimsálfum veraldar. Bókin er þegar komin út víða um heim og hafa viðbrögð erlendra gagnrýnenda verið afar góð; Yrsa hefur verið kölluð ný drottning í heimi glæpasagna og á dögunum ritaði þýskur gagnrýnandi að söguhetja Yrsu, lögmaðurinn Þóra, væri "hressilegur valkostur í heimi norrænna glæpasagna".
meira >
Síða 56 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63
|