Sér grefur gröf á þrotum hjá útgefanda
(2.12.2006)

Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur er nú á þrotum hjá Veröld. Þótt bókin sé horfin af lager útgáfunnar er hún enn til í verslunum en þeim sem vilja tryggja sér eintak er bent á að hafa hraðar hendur því að ekki verður mikið lengur bætt á borðin í verslunum. Síðustu bílarnir eru á leiðinni ...

meira >

Dregið um flug til Barcelona og Prag og dekurferð á Búðir
(2.12.2006)

Þá hafa síðustu þrír vinningarnir verið dregnir út í Veröldinni okkar. Um var að ræða flug fyrir tvo til Barcelona, flug fyrir tvo til Prag, hvorttveggja með Heimsferðum, en einnig fær einn þátttakandi kvöldverð, gistingu og morgunverð á Hótel Búðum. Hinir heppnu eru:

Kvöldverður, gisting og morgunverður á Hótel Búðum: svano@itn.is
Flug fyrir tvo til Prag með Heimsferðum: siggaragnars@grundaskoli.is
Flug fyrir tvo til Barcelona með Heimsferðum: ingibjorg@bifrost.is

Ritstjórn Veraldarvefjarins óskar hinum heppnu til hamingju með vinningana og vonar að þeir verði þeim til gæfu og gengis.

Hinir þurfa ekki að örvænta - á nýju ári verður efnt til nýs leiks með nýjum og spennandi vinningum. Sannarlega nýbreytni í því!

Gleðileg jól!

meira >

Sér grefur gröf greip gagnrýnandann heljartökum
(1.12.2006)
Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur er frábær spennusaga sem rígheldur lesandanum og dansar á fínni línu húmors og hrollvekju, segir Óttar M. Norðfjörð gagnrýnandi í DV, föstudaginn 1. desember. Niðurstaða hans er ótvíræð: Fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Þetta er annar dómurinn á tæpri viku þar sem bók Yrsu er ausin lofi. Þórarinn Þórarinsson sagði í Fréttablaðinu laugardaginn 25. nóvember að Sér grefur gröf búi yfir öllu því sem góð morðgáta þurfi að hafa. Og eins og þetta væri ekki nóg þá var greint frá því fimmtudaginn 30. nóvember að kvikmyndarétturinn á Þriðja tákninu hefði verið seldur til Þýskalands. meira >

(1.12.2006)
Óhætt er að segja að Yrsa Sigurðardóttir hafi slegið í gegn á þessari jólavertíð. Bók hennar, Sér grefur gröf, rennur út í verslunum, sem keppast við að bjóða hana á góðu verði, og hún hefur verið þaulsetin á metsölulistum. Dómar hafa verið afar jákvæðir; Yrsa er sögð vera flinkur höfundur, menn segja að bókin búi yfir öllu sem góð morðgáta þurfi að hafa, hrósa því hvernig hún sé fléttuð og gefa henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Þá var nýlega gengið frá samningi um gerð kvikmyndar eftir Þriðja tákninu eftir Yrsu sem út kom í fyrra. Sjálf tekur hún þessu með stóískri ró en hún hefur þegar hafist handa við næstu glæpasögu sem væntanleg er að ári. meira >

(1.12.2006)

Nú hefur heppinn þátttakandi verið dreginn úr hópi þeirra sem skráðu sig í Veröldina okkar á www.verold.is. Vinningurinn er ekki af verri endanum - steinanudd á NordicaSpa en innifalið í því er einnig aðgangur að heilsulind NordicaSpa þar sem boðið er upp á herðanudd í heitu pottunum og handklæði og sloppur. Hjá pottunum eru einnig tvær vatnsgufur með ilmi og slökunarlaug og úti á veröndinni er sauna.

Netfang sigurvegarans er: gudrundan@hotmail.com. Um leið og við óskum henni til hamingju minnum við á að á fimmtudaginn dettur einhver annar í lukkupottinn og fær hann kvöldverð, nótt og morgunmat á Hótel Búðum!


Fullt út úr dyrum í Borgarleikhúsinu í Helsingborg
(9.11.2006)
Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur kom fram í Borgarleikhúsinu Helsingborg í gær, laugardaginn 18. nóvember, í viðtali á sviði og var uppselt á viðburðinn. Hún ræddi þar um fyrstu glæpasögu sína, Þriðja táknið, sem kom út í Svíþjóð í haust. Þetta var liður í norrænni bókmenntahátíð í borginni en höfundar frá öllum Norðurlöndunum taka þátt í henni. meira >

Þriðja táknið í 2. sæti yfir kiljur!
(9.11.2006)
Yrsa Sigurðardóttir er hástökkvari vikunnar á metsölulista Pennans / Eymundssonar sem var að koma í hús. Nýja glæpasagan hennar, Sér grefur gröf, er fjórða mest selda skáldverkið í flokki innbundinna bóka þessa vikuna og Þriðja táknið er í öðru sæti yfir kiljur. Viðtökur við Sér grefur gröf hafa verið frábærar og ekki dregur góður dómur í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag úr stemmningunni þar sem bókin fékk þrjár stjörnur. meira >

(8.11.2006)

Lesendur bíða greinilega í ofvæni eftir nýrri glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur sem hlotið hefur nafnið Sér grefur gröf. Það leynir sér ekki á símtölum og tölvupóstum sem okkur berast. Þar sem bókarinnar er ekki að vænta í verslanir fyrr en 18. nóvember höfum við hjá Veröld ákveðið að koma til móts við þessa miklu eftirvæntingu og setja upphaf sögunnar ókeypis á netið. Biðin er því á enda – í bili!

Sér grefur gröf …
Óhugnanlegt morð er framið á nýju heilsuhóteli á Snæfellsnesi. Reimleikar í svartaþoku og hörmulegir atburðir grafnir úr fortíðinni. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður, sem lesendur þekkja úr Þriðja tákninu, glímir við þá spurningu hvort og þá hvernig þetta tengist morði á ungri konu sumarið 2006.

meira >

Höfundurinn er að heiman í dag
(8.11.2006)
Í dag kemur út hjá bókaforlaginu Veröld glæpasagan Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurðardóttur. Nú þegar hefur verið gengið frá samningum um útgáfu á henni um víða veröld, m.a. í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu og um allan hinn spænskumælandi heim. Höfundurinn er að heiman en Yrsa situr í dag fyrir svörum á norrænni bókmenntahátíð í Svíþjóð. meira >

Fischer Verlag kaupir hönnun Ragnars Helga
(8.11.2006)
Fischer Verlag í Þýskalandi hefur ákveðið að kaupa réttinn á kápu Ragnars Helga Ólafssonar sem hann gerði fyrir bók Yrsu Sigurðardóttur, Sér grefur gröf, en forlagið tryggði sér útgáfuréttinn á bókinni nú í sumar. Þar með er ljóst að nýja kápan fylgir í kjölfar þeirrar sem Ragnar Helgi gerði fyrir Þriðja táknið eftir Yrsu í fyrra en útgefendur víða um lönd nota hana á útgáfur sínar. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar bókakápur fara svo víða.  meira >

Síða 60 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar