- Snjóblinda lofuð í tímaritinu BÜCHER
(21.11.2011)
Þýska tímaritið BÜCHER hrósar mjög Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson, hann segi sína ísköldu sögu á hófstilltan hátt með sannfærandi söguþræði, hraðinn sé töluverður, persónurnar lifandi og samtölin trúverðug. Á dögunum útnefndi tímaritið Gala Snjóblindu sem eina af fjórum bestu skáldsögum haustsins í Þýskalandi.

 

meira >

16.000 eintök prentuð af nýrri bók Yrsu
(21.11.2011)

Starfsmenn prentsmiðjunnar Odda afhentu í dag Yrsu Sigurðardóttur rithöfundi og Pétri Má Ólafssyni útgefanda hjá Veröld fyrstu eintökin af nýrri glæpasögu hennar, Brakinu. Fyrsta upplag bókarinnar er 16.000 eintök. Þetta mun vera stærsta frumprentun á bók eftir konu á Íslandi - og stærsta upplag Veraldarsögunnar.

 

Vegur Yrsu hefur vaxið mjög á liðnum árum, ekki síst eftir síðustu bók hennar, Ég man þig. Sú bók hefur setið í níu vikur samfleytt á þýska metsölulistanum, lengur en nokkur önnur íslensk bók á þessu hausti.

meira >

- Ómunatíð lofuð í Fréttablaðinu
(20.11.2011)

"Ómunatíð er djörf tilraun til að horfast í augu við sjúkdóm sem litað hefur líf heillar fjölskyldu áratugum saman," segir Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir í Fréttablaðinu um bók Styrmis Gunnarssonar.  Niðurstaða hennar er fjórar stjörnur með þessari samantekt: "Hugvitsamlega smíðuð og fróðleg bók, skrifuð af sjaldséðri einlægni." Hún segir ennfremur: "Þetta er saga konunnar sem veiktist, en líka saga aðstandandans sem áður reyndi að fela ástandið en neitar að gera það lengur. Saga eiginmanns og föður sem lítur til baka og viðurkennir að hafa ekki alltaf brugðist rétt við, þó hann hafi reynt að gera sitt besta. Og Ómunatíð er líka saga fjölmargra geðsjúkra og aðstandenda þeirra, sem aldrei var skrifað um." Þórunn Hrefna nefnir sérstaklega þann þátt bókarinnar þar sem Styrmir fjallar um það hvernig maki hins veika þarf oft að taka erfiðar ákvarðanir, "eins og þær að skrifa undir beiðni um innlögn á geðdeild eða samþykkja raflækningar, í trássi við vilja sjúklingsins. Það er djúpur sársauki í textanum þegar Styrmir spyr: "En hvað átti ég að gera?""

 

 

 

meira >

Ragnheiður Gestsdóttir lofuð í Kiljunni
(18.11.2011)

Gegnum glervegginn eftir Ragnheiði Gestsdóttur er "hröð og skemmtileg," að mati Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Kiljunni. Páll Baldvin Baldvinsson bætti um betur og sagði að bókin væri ljómandi fallega skrifuð og fallega hugsuð og spennandi. Hann lauk máli sínu með því að segja: "Að öllu leyti vel heppnað verk ... flott verk." Þess má geta að í vikunni birtist á fésbókarvegg ánægðs lesanda. "Gegnum glervegginn átti að vera helgarlesningin mín. Byrjaði á henni í baði í gær og las þar til baðið var orðið kalt. Kláraði hana svo klukkutíma seinna, ennþá vafin í blautt baðhandklæði.“ Hildur Knútsdóttir fjallaði um bókina á Druslubókasíðunni og sagðist vera "ótrúlega ánægð".

 

Ragnheiður er einn ástsælasti barna- og unglingabókahöfundur þjóðarinnar og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, þ.á.m. Norrænu barnabókaverðlaunin. 

meira >

(18.11.2011)

Ómunatíð eftir Styrmi Gunnarsson er "ein mikilvægasta bók ársins" að mati Hrafns Jökulssonar. Stórvirkið Bjarni Þorsteinsson - Eldhugi við ysta haf eftir Viðar Hreinsson kom út og Ragnheiður Gestsdóttir hlaut frábæra dóma í Kiljunni hjá Kolbrúnu og Páli. Það er því full þörf á að fagna og því drögum við út þrjá heppna af póstlista Veraldar og hlýtur hver sína bókina. Netföng vinningshafanna er að finna hér að neðan en þeir geta vitjað bókanna í höfuðstöðvum Veraldar að Bræðraborgarstíg 9.

 

david.stefansson@capacent.is fær bókina Bjarna Þorsteinsson - Eldhugi við ysta haf eftir Viðar Hreinsson

 

sgberta@simnet.is fær Ómunatíð eftir Styrmi Gunnarsson

 

gudnysigga@visir.is hlýtur Gegnum glervegginn eftir Ragnheiði Gestsdóttur 

meira >

Merkir munir til sýnis
(18.11.2011)
Sunnudaginn 20. nóvember kl. 14 verður útgáfu ævisögu Bjarna Þorsteinssonar eftir Viðar Hreinsson fagnað í Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18. Viðar mun segja frá bókinni og lesa brot úr henni og Guitar Islancio leikur íslensk þjóðlög en Bjarni er einmitt ekki síst þekktur fyrir að hafa bjargað íslenskum þjóðlagaarfi frá glötun. Síðastliðið sumar fundust vaxhólkar með upptökum með söng Bjarna og verða þeir til sýnis ásamt upptökutækinu. Þá verður einnig hægt að skoða uppdrætti Bjarna að skipulagi Siglufjarðar en þeir komu í leitirnar við gerð bókarinnar. Bjarni Þorsteinsson var á sínum tíma kallaður "höfundur Siglufjarðar" en hann var þar allt í öllu um áratuga skeið þegar hann breyttist úr fámennri verstöð í miðstöð síldarævintýrisins. meira >

"Ein mikilvægasta bók ársins"
(18.11.2011)
"Mögnuð lesning," sagði Freyr Eyjólfsson á Rás 2 um Ómunatíð eftir Styrmi Gunnarsson í viðtali við höfundinn á dögunum. Hrafn Jökulsson bætti um betur í Viðskiptablaðinu þar sem hann sagði: "Styrmir hefur nú skrifað stórmerkilega bók um persónulega reynslu sína og fjölskyldu sinnar. ... Styrmir og fjölskylda hans sýna aðdáunaverða djörfung með því að opna okkur innsýn í heim, sem flestir þekkja, eða hafa að minnsta kosti pata af, en fæstir þora að tala um. ... Bók Styrmis Gunnarssonar markar þáttaskil í umræðunni og er tvímælalaust einhver mikilvægasta bók ársins." Í bókinni lýsir hann sjúkdómsbaráttu eiginkonu sinnar og þeim áhrifum, sem veikindin hafa haft á líf fjölskyldu þeirra í meira en fjóra áratugi. Í þeirri glímu hafa skipst á skin og skúrir, dimmir dagar og glaðar stundir en geðveikin hefur ævinlega verið nálæg. Styrmir fjallar einnig um ólíkar aðferðir í geðlækningum og afleiðingar veikindanna fyrir þá sem næst standa, ekki síst börn geðsjúks foreldris. meira >

"Spennandi og skemmtileg"
(17.11.2011)
"Margslungin og flott saga sem erfitt er að leggja frá sér," sagði Hrafn Jökulsson á dögunum um Hefndarþorsta eftir Michael Ridpath er í Viðskiptablaðinu. Karl Blöndal bætti svo um betur í Morgunblaðinu þar sem hann ritaði: "Hefndarþorsti er spennandi og skemmtileg aflestrar. Þarna ægir saman íslenskum byltingarsinnum, gjaldþrota bankamönnum, rótlausum lögreglumönnum og glefsum úr fortíðinni." Karl hrósar Ridpath fyrir þekkingu á íslenskum aðstæðum og segir: Ljóst er að íslenskir lesendur munu lesa Hefndarþorsta með mjög gagnrýnum augum í þeirri von að geta hankað höfundinn á vanþekkingu á Íslandi og íslenskum aðstæðum. Á frásögninni er hins vegar hvergi að sjá að útlendingur skrifi hér um land, sem hann hefur nýverið kynnst. Lýsingar á hugarfari landans fyrir og eftir hrun hitta beint í mark." meira >

Bjarni Þorsteinsson - Eldhugi við ysta haf
(15.11.2011)

Út er komin hjá Veröld bókin Bjarni Þorsteinsson – Eldhugi við ysta haf eftir Viðar Hreinsson.

 

Hér er sögð saga saga sveitapilts sem varð einn merkasti frumherji íslensku þjóðarinnar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Stórbrotið lífshlaup Bjarna einkenndist af háleitum hugsjónum og mikilli athafnaþrá – en hann þurfti einnig að kljást við tómlæti og andstöðu ráðamanna.

 

Bjarni var prestur á Siglufirði og helsti forystumaður bæjarins þegar síldarævintýrið byrjaði. Hann hóf þjóðlagasöfnun innan við tvítugt og bjargaði þannig stórum hluta af þjóðlagaarfi Íslendinga frá glötun. 

meira >

(15.11.2011)

Út er komin hjá Veröld bókin Ómunatíð - Saga um geðveiki eftir Styrmi Gunnarsson.

 

„Ég kom heim til mín síðla dags þetta vor. Vissi að það var eitthvað að. Það var búið að draga gluggatjöld fyrir alla glugga. Konan mín æddi um íbúðina. Það mátti hvergi sjást ljósskíma. Hún var að verjast einhverju. Svo bráði af henni. Hún lagðist upp í rúm og sagði:

„Varstu hræddur?“

 

„Já, ég er hræddur,“ sagði ég.

 

„Þetta er allt í lagi. Þetta er búið,“ sagði hún.

 

Hún var nýorðin 25 ára. Ég þrítugur. Við áttum tvær dætur. Tveggja og hálfs árs og fimm mánaða gamlar.

 

Þessa dagsstund breyttist líf okkar með óafturkallanlegum hætti.“

 

 

Þannig hefst saga Styrmis um sjúkdómsbaráttu eiginkonu hans og þau áhrif, sem veikindin hafa haft á líf fjölskyldu þeirra í meira en fjóra áratugi. Í þeirri glímu hafa skipst á skin og skúrir, dimmir dagar og glaðar stundir en geðveikin hefur ævinlega verið nálæg. Styrmir fjallar einnig um ólíkar aðferðir í geðlækningum og afleiðingar veikindanna fyrir þá sem næst standa, ekki síst börn geðsjúks foreldris.

meira >

Síða 8 af 63: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63

Bjartur er systurforlag Veraldar